Fréttablaðið - 24.12.2019, Síða 39
Eftir tæpan áratug í Suð-ur-Afríku og jólahald í steikjandi hita f luttu hjónin Bragi Þór Vals-son og Christina Van Deventer aftur heim til
Íslands og settust að á Hólmavík þar
sem Strandafólk tók hlýlega á móti
þeim. Hamfaravindarnir sem gengu
yfir landið og miðin á aðventunni
kaffærðu aftur á móti húsið þeirra
svo úr varð heimsfrétt.
„Við f luttum héðan stuttu eftir
hrun og höfum bara verið hérna
tvisvar um jól á þessum átta árum
sem við bjuggum í Suður-Afríku,“
segir tónlistarmaðurinn Bragi Þór
Valsson sem stýrði drengjakór fyrir
sunnan og hefur ekki skipt um takt
þótt þau Christina Van Deventer
hafi f lutt sig um set norður á
Strandir.
„Ég er tónlistarkennari á Hólma-
vík og Christina vinnur í frístund-
inni í grunnskólanum,“ segir Bragi
sem stjórnar um það bil helmingi
kóranna, barna- og kvennakórnum,
í bænum sem þrátt yfir smæðina
telur þrjá til fjóra kóra.
Jólaandi liðinna ára vaknar
„Það hefur verið tekið afskap-
lega vel á móti okkur á Ströndum.
Fólkið hérna er yndislegt og tekur
vel á móti öllum sem hingað koma,“
segir Bragi. „Þetta er alveg magnað
fólk og samfélag og almennt bara
rosalega fínt að búa hérna.“
Þegar talið berst að gerólíku jóla-
haldi, sem að sjálfsögðu stjórnast
ekki síst af gerólíku loftslagi suður í
Afríku og norður á Ströndum, segir
Bragi Strandir hafa áberandi yfir-
burði hvað jólastemninguna varðar.
„Þau skreyta alveg rosalega hérna
á Hólmavík og það þyrfti ekki að
bæta miklu við til þess að geta aug-
lýst þetta sérstaklega sem jólaþorp.“
Bragi og Christina eyddu jólunum
í fyrra á Íslandi og áttu þá heldur
von á að þau myndu dansa í Afríku
um næstu jól en þá gerðist eitt-
hvað innra með þeim báðum. „Það
einhvern veginn small bara eitt-
hvað í hausunum á okkur báðum í
myrkrinu og þótt okkur hefði ekk-
ert langað að flytja heim áður þá allt
í einu vorum við til í það.“
Jólakúltúrsjokk
„Fyrstu jólin mín þarna vissi vinnu-
alkinn ég bara ekkert hvað ég ætti
af mér að gera. Á ég ekkert að vera
á haus í vinnu og bara sitja rólegur
með fjölskyldunni, lesa, grilla og
hafa það gott? Það var mjög óvenju-
legt,“ segir tónlistarmaðurinn öllu
vanari því að syngja í eitthvað um
tuttugu messum frá miðjum des-
ember og fram yfir áramót.
Stuttbuxnajól
Hægur aðdragandi jóla er jafn
fáheyrður á Íslandi og að fólk
grilli sér léttmeti á stuttbuxum á
aðfangadagskvöld en mannskaða-
veður eru hins vegar algengari syðra
þótt þar hverfi hús, skepnur og fólk
ekki undir fönn. Steikjandi hiti,
langvarandi þurrkar og skortur á
rennandi vatni geta skapað lífs-
hættulegar aðstæður.
„Meirihluti þjóðarinnar býr líka
í svo hræðilega lélegu húsnæði að
það þarf ekki að hreyfa mikinn
vind til þess að þau fari hreinlega í
sundur,“ segir Bragi Þór sem hefur
komist hjá því bæði að drepast úr
hita og kulda.
„Hólmavík er ekki með hitaveitu
en býr svo vel að vera með vara-
rafstöðvar þannig að við duttum
aldrei út lengur en í tvo tíma,“ segir
Bragi Þór um rauðan veðurofsann
sem þeytti húsinu þeirra í heims-
pressuna eftir að myndbönd Braga
af ósköpunum vöktu mikla athygli
á samfélagsmiðlum.
Twitter fauk um koll
„Við eigum mikið af vinum í útlönd-
um og ég byrjaði að taka vídeó af
þessu og setti á Twitter til þess að
sýna þeim,“ segir Bragi og bendir
á að fákunnátta hans á samskipta-
forritinu hefði verið slík að hann
gerði sér enga grein fyrir áhrifa-
mætti þess. „Þetta fékk svo fárán-
lega mikið áhorf.“
Bragi brást við óvæntum vin-
sældunum með örari uppfærslum
á fréttaskeytum frá Ströndum í
takt við harðnandi atlögu bylsins
að heimilinu. „Ég keyrði um bæinn
daginn eftir og húsið okkar virtist
vera það eina sem bara hvarf í skafl
en snjórinn var svo blautur að það
var eins og það væri búið að byggja
snjóhús, lag eftir lag, utan um húsið
okkar.“
Þegar Bragi birti myndband af
umbreytingu hússins keyrði allt
um koll á netinu og heimspressan
bankaði í klakaklæðninguna með
slíkum ákafa að Bragi endaði með
að fá sér umboðsmann og koma
upptökunum þannig í verð. „Ég
er búinn að selja þetta töluvert til
Spánar, Ítalíu, Bretlands og þetta
fór allavega í sýningar á Weather
Channel í Ameríku til dæmis.
Þetta myndband er komið með
70.000 áhorf á Twitter en þetta eru
engar rosalegar upphæðir en þetta
safnast saman og kemur sér vel.
Fimm þúsund kall hér og fimm þús-
und kall þar. Þetta kom mér ekkert
smá á óvart,“ segir Bragi og bætir við
að þrátt fyrir allt séu þau Christina
orðin ýmsu vön og láti jólastorminn
ekki raska ró sinni.
toti@frettabladid.is
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Á ÉG EKKERT AÐ VERA
Á HAUS Í VINNU OG
BARA SITJA RÓLEGUR MEÐ
FJÖLSKYLDUNNI, LESA, GRILLA
OG HAFA ÞAÐ GOTT?
Það er ýmist Afríka eða Strandir hjá Christinu og Braga Þór sem eru flutt frá Suður-Afríku á Hólmavík úr sól í snjó.
SKILTAGERÐ
Ljósakassar
Ljósaskil
3D stafir
Hönnun
Ráðgjöf
Uppsetning
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, lögg. fast.sali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
Óskum viðskiptavinum okkar nær
og fjær og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
Gleðin kemur innanfrá
Jólaöfganna á milli í
skafli eða Afríkusól
Christina Van Deventer og Bragi Valsson hafa farið öfga og heims-
álfa á milli um jól. Grillað jólamatinn á stuttbuxum í Afríku og
fennt í kaf á Ströndum í sögulegum veðurofsa aðventunnar.
intellecta.is
RÁÐNINGAR
2 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð