Fréttablaðið - 27.12.2019, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —3 0 1 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9
allt að
afsláttur
86%
LÖGREGLUMÁL Á árinu sem er að
líða hefur verið lagt hald á mun
meira magn sterkra f íkniefna
en á síðustu árum. Á fyrstu tíu
mánuðum þessa árs var lagt hald
á 54 kíló af amfetamíni en lög-
regla lagði hald á tæp fimm kíló af
amfetamíni allt árið 2018 og 13,5
kíló árið 2017.
Haldlagt magn kókaíns á fyrstu
tíu mánuðum þessa árs var 35 kíló
sem er tæplega tvöfalt meira en allt
síðasta ár þegar lögreglan lagði hald
á 18,5 kíló af efninu.
Innf lutningur á amfetamíni
hefur rokkað mjög upp og niður á
undanförnum áratug en skýr breyt-
ing varð á haldlögðu kókaíni árið
2017. Á árunum 2008 til 2016 var
haldlagt magn kókaíns ávallt undir
10 kílóum á ári. Árið 2017 hækkaði
talan um meira en helming milli ára
og fór í tæp 27 kíló. Sem fyrr segir
var lagt hald á rúmlega 18,5 kíló í
fyrra og strax á fyrstu tíu mánuðum
yfirstandandi árs hefur magnið tvö-
faldast og farið yfir 35 kíló.
Samkvæmt mati Lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu er ætlað verð
þess amfetamíns og kókaíns sem
haldlagt hefur verið á árinu rúm-
lega 650 milljónir króna.
Upplýsingar um magn haldlagðra
fíkniefna sem Fréttablaðið af laði
hjá Ríkislögreglustjóra ná eingöngu
til 31. október 2019. Töluvert magn
sterkra fíkniefna hafur verið hald-
lagt hjá lögreglunni á Suðurnesjum
í nóvember og desember og magn
þess efnis er ekki inni í áðurnefnd-
um upplýsingum. – aá
Lögreglan haldlagt mun meira
af sterkum fíkniefnum á árinu
Lögreglan lagði hald á mun meira af sterkum fíkniefnum á fyrstu 10 mánuðum ársins en allt árið í fyrra.
54 kíló af amfetamíni og 35 af kókaíni. Áætlað götuverðmæti efnanna er rúmlega 650 milljónir króna. Þá
hefur verið lagt hald á töluvert magn af sterkum fíkniefnum á Suðurnesjum í nóvember og desember.
Eftir kjötát og afslöppun jólanna er tilvalið að skella sér í brekkurnar og ná púlsinum aðeins upp. Í gær voru fyrirtaks aðstæður til sleða- og skíðaiðkunar við Jafnasel í Breiðholtinu þó að
sólin væri stutt á lofti. Þegar ljósmyndari Fréttablaðsins kom á staðinn voru krakkarnir brosandi út að eyrum og rjóðir í kinnum. Einnig þeir eldri eins og glöggt má sjá. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lagt var hald á 35 kíló af
kókaíni fyrstu tíu mánuði
ársins.
VIÐSKIPTI Árni Oddur Þórðarson,
forstjóri Marels, er viðskiptamaður
ársins að mati dómnefndar Mark-
aðarins. Félagið lauk vel heppnaðri
skráningu í kauphöllina í Amster-
dam, erlent eignarhald hefur marg-
faldast á tveimur árum og hluta-
bréfaverð hækkað um 70 prósent.
Árni Oddur segir að nú
þegar dregið hefur úr
óvissu í alþjóðamálum
sé betri tónn í viðskipta-
vinum og fyrirtækið ætli
sér stóra hluti í Asíu.
„Fram undan er heild-
arendurskipulagning
á framleiðslu á
svínakjöti í álf-
unni og ætlum við
okkur stóra hluti
þar. “ Sjá Markaðinn
Árni Oddur
viðskiptamaður
ársins 2019