Fréttablaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 57
AÐRIR MAKA KRÓK- INN, HVER OG EINN ER AÐ HUGSA UM SIG OG LÍTIÐ VIRÐIST EFTIR AF BYLTINGAR- HUGSJÓNUNUM. Bókin Meistarinn og Margaríta kemur út 1930 og það er athyglis-vert að í Moskvu á þeim tíma þurfi djöfulinn sjálfan til að stinga á kýlum. Það segir ýmislegt um söguna að það skuli vera hann sem kemur og afhjúpar það sem miður fer, spillingu og annað,“ segir Hilm- ar Jónsson, þýðandi og leikstjóri jólasýningar Þjóðleikhússins. Hann segir söguna af mörgum talda eitt magnaðasta skáldverk 20. aldar. „Það var Ingibjörg Hjartardóttir sem þýddi hana og ég gerði leikgerð upp úr henni fyrir Hafnarfjarðar- leikhúsið árið 2003. En sú leikgerð sem hér er á fjölunum er þýdd úr sænsku. Hún er trú bókinni.“ Ekki er nauðsynlegt að hafa lesið bókina til að njóta sýningarinnar, að mati Hilmars. „Við erum náttúr- lega að segja söguna, hún rekur sig og er með upphafi, miðju og endi eins og gengur. En maður les það í gegnum þetta verk að það hafa orðið ákveðin vonbrigði hjá Búlgakov með hvernig alþýðu- byltingin hefur þróast á þeim tólf til fimmtán árum sem hún hefur staðið, þegar hann skrifar söguna. Ástandið er strax orðið spillt og ógnvænlegt, fólk er að hverfa af götunum og lenda í fangelsi. Það er allt ritskoðað og enginn getur eiginlega um frjálst höfuð strokið. Það er húsnæðisskortur, mútur og alls konar ólögleg starfsemi í gangi. Aðrir maka krókinn, hver og einn er að hugsa um sig og lítið virðist eftir af byltingarhugsjónunum fyrir hinn almenna borgara.“ Hilmar segir Meistarann og Margarítu vinsælt verk um allan heim. „Það eru fjölmargar leikgerðir búnar til og settar upp á hverju ári, enda er þetta merkilegt verk fyrir margra hluta sakir. Það er í raun harmsaga meistarans, hann er rit- höfundur sem skrifar bók í óþökk yfirvalda. Þetta er líka ádeila og spenna og svo falleg ástarsaga.“ Hilmar tekur fram að valinn maður sé í hverju rúmi í sýningu Þjóðleikhússins, bæði inni á sviðinu og utan. Ádeila, spenna og falleg ástarsaga Barátta góðs og ills er kjarninn í verkinu Meistarinn og Margaríta, eftir Búlgakov, sem Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær í þýðingu og leikstjórn Hilmars Jónssonar. Hann var króaður af í önnum dagsins. Hilmar Jónsson segir Meistarann og Margarítu merkilegt verk fyrir margra hluta sakir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Bæði ólga og ástir eru í Meistaranum og Margarítu. MYND/HÖRÐUR SVEINSSON Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F Ö S T U D A G U R 2 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.