Fréttablaðið - 31.12.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 31.12.2019, Blaðsíða 2
Veður Gengur í sunnan 13-18 m/s, gamlársdag, með rigningu um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt norðaustan til. Dregur úr vindi sunnan- og austanlands um kvöldið. Hiti 2 til 7 stig. SJÁ SÍÐU 32 Feðraveldi í meintri paradís femínista Þú færð Víg Tuma á næsta flugeldamarkaði björgunarsveitanna Ein með öllu. Gríðarlega fjölbreytt, samsett kaka sem skýtur upp beint og í blævæng. Eftir mikla litardýrð með glitrandi ljósum þá endar hún á silfurlituðum stjörnublómum með grænum og rauðum kúlum í sannkallaðri stórskotahríð með braki og brestum. skot 195 SEK 5 5 24 240 kg SAMFÉLAG Elsta þekkta frásögnin af áramótabrennu hér á landi er frá árinu 1791 í Ferðabók Sveins Páls- sonar. Siðurinn breiddist hægt og rólega út um landið og nú er svo komið að hjá mörgum einstakling- um er það ómissandi liður í hátíðar- höldunum á gamlárskvöld að vera viðstaddur slíka brennu. En þessi siður vekur að sjálfsögðu athygli ferðamanna sem sýna því mikinn áhuga að upplifa áramótin hérlendis. Stjórnendur Breiða- bliks sáu sér því leik á borði og hafa undanfarin ár boðið ferðaþjónustu- fyrirtækjum upp á að heimsækja brennusvæðið gegn þóknun. „Þetta hefur gengið mjög vel undanfarin ár. Við gerum ráð fyrir um 1.000 manns sem er svipaður fjöldi og í fyrra. Við útbúum sér- stök stæði fyrir rúturnar og þannig gengur þetta allt vel fyrir sig,“ segir Eysteinn Pétur Lárusson, fram- kvæmdastjóri Breiðabliks. Íþróttafélagið fær styrk frá Kópa- vogsbæ til þess að standa straum af kostnaði við brennuna en það dugar engan veginn til. „Því brugðum við á þetta ráð fyrir nokkrum árum og það hefur gefist vel. Við stöndum fyrir þessari brennu ánægjunnar vegna en vilj- um helst sleppa við að bera mikinn kostnað af henni,“ segir Eysteinn Pétur. Í fyrra hafi verið bryddað upp á þeirri nýbreytni að bjóða erlendu ferðamönnunum upp á heitt kakó og kleinur eftir brennuna gegn vægri þóknun og það hafi gefist vel. „Við endurtökum leikinn í ár og það er gert ráð fyrir því að 500 manns mæti á þann viðburð.“ Breiðabliksbrennan hefur verið til umræðu á íbúasíðum Kópavogs- búa. Þar hafa heyrst þær gagnrýnis- raddir að brennan geti breyst í ein- hvers konar túristauppákomu. „Ég skil vel að sitt sýnist hverjum í þessum efnum. Að okkar mati hefur fjöldi ferðamanna alls ekki farið úr böndunum og miklu frekar setja þeir skemmtilegan svip á viðburðinn. Við eru þó meðvituð um þessar áhyggjur og reynum að vanda okkur,“ segir Eysteinn Pétur. bjornth@frettabladid.is Þúsund ferðamönnum er stefnt á Blikabrennu Stærsta áramótabrenna höfuðborgarsvæðisins er líklega brenna Breiðabliks í Fífunni. Það skýrist meðal annars af því að reiknað er með heimsókn um eitt þúsund ferðamanna á vegum íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja gegn þóknun. Búið er að hlaða í stóran bálköst hjá Breiðabliki í Fífunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR VEÐUR Búast má við ágætis flugelda- veðri á höfuðborgarsvæðinu þegar nýtt ár gengur í garð á miðnætti í kvöld. Eiríkur Örn Jóhannesson, veður fræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að gott skyggni verði á Suður- og Austurlandi. „Eins og þetta lítur út núna ættu flugeldarnir að sjást best á Suður- og Austurlandi og svo erum við heppin hér í Reykjavíkinni,“ segir Eiríkur. Rauðar tölur verði um allt land í dag en að búast megi við hvössum vindi á norðvestanverðu landinu. „Þar má búast við vindi alveg fram á nýja árið, 8 til 13 metrum á sekúndu. En hér í Reykjavík verður frekar hvöss sunnanátt um morg- uninn og yfir daginn með rigningu en það styttir upp seinnipartinn og snýst í suðvestan fimm til tíu metra og skúrir.“ Hvað varðar mengun af f lug- eldum segir Eiríkur að f lugeldar séu alltaf mengandi en á höfuð- borgarsvæðinu séu skilyrði betri en verið hefur síðastliðin ár. „Þetta gæti verið töluvert verra og það að hér falli örlítil úrkoma hjálpar til við að hreinsa loftið. Mengunin hverfur ekki heldur fellur á jörðina svo önd- unarmengunin er minni.“ – bdj Sprengjurnar munu sjást vel í höfuðborginni Að okkar mati hefur fjöldi ferða- manna alls ekki farið úr böndunum og miklu frekar setja þeir skemmtilegan svip á viðburðinn. Eysteinn Pétur Lárusson, fram- kvæmdastjóri Breiðabliks „Við viljum minna á að feðra veldið lifir góðu lífi í þessari meintu femínísku para dís hérna á Ís landi,“ segir Katrín Harðar dóttir, einn skipu leggj enda mót mæla hóps kvenna við stjórnar ráðið í gær. „Úr skurðurinn yfir lektornum sannar þörfina á slíkum mót mælum,“ segir Katrín og vísar þá til máls Kristjáns Gunnars Valdimarssonar sem nú er laus úr haldi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Það gæti viðrað ágætlega fyrir skot- elda í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR +PLÚS LÖGREGLUMÁL Fjórða konan hefur til kynnt lög reglu um meint kyn- ferðis brot K r istjáns Gunnars Valdimars sonar, lektors við Há- skóla Ís lands. Þetta kom fram á Vísi á gærkvöldi. Vísir segir konuna er- lendis og að hún óski eftir að gefa skýrslu vegna kyn ferðis brots á heimili Kristjáns. Líkt og Frétta blaðið hefur greint frá er Kristján sakaður um að hafa frelsis svipt þrjár konur á heimili sínu og beitt þær kyn ferðis legu of- beldi. Konan er því sú fjórða sem sem sakar Kristján um slíkt brot. Hér að s dómu r Reyk ja v í k u r hafnaði í gær kröfu lög reglunnar um á fram haldandi gæslu varð hald yfir Kristjáni. Úrskurðurinn hefur verið kærður til Lands réttar. Kristján var fyrst hand tekinn að fara nótt að fanga dags og síðan aftur á jóla nótt og þá úr skurðaður í gæslu varð hald til 29. desember. – kdi Fjórða konan kærir Kristján 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.