Fréttablaðið - 31.12.2019, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 31.12.2019, Blaðsíða 11
endaði í tíunda sæti keppninnar en lagið naut mun meiri hylli meðal almennings en dómnefnda. Það sem vakti þó mesta athygli var þegar liðsmenn Hatara veifuðu Pal­ estínufánum á meðan stigagjöfin fór fram. Í kjölfarið var RÚV sektað um fimm þúsund evrur þar sem gjörningurinn taldist andstæður reglum keppninnar. Frekari eftir­ mál urðu hins vegar ekki af málinu og mun Ísland taka þátt í keppninni á næsta ári. Harmleikur í Mehamn Þann 27. apríl handtók norska lög­ reglan tvo Íslendinga í smábænum Mehamn en þeir voru grunaðir um að hafa orðið þriðja Íslendingnum, Gísla Þór Þórarinssyni, að bana. Annar hinna handteknu, Gunnar Jóhann Gunnarsson sem er hálf­ bróðir Gísla Þórs, var síðar ákærður fyrir að hafa skotið Gísla til bana með haglabyssu. Gunnar Jóhann hefur verið í haldi lögreglu síðan en hann segir að um hræðilegt slys hafi verið að ræða. Tíu dögum fyrir morðið hafði Gunnar Jóhann verið úrskurðaður í nálgunarbann gagnvart Gísla Þór vegna hótana. Réttarhöld yfir Gunnari munu fara fram í mars næstkomandi. Ríkislögreglustjóri hættir Haraldur Johannessen ríkislög­ reglustjóri mun láta af störfum um áramótin að eigin ósk. Mikil ólga hefur verið innan lögreglunnar tengd embætti ríkislögreglustjóra. Í haust lýstu átta af níu lögreglu­ stjórum landsins og Landssamband lögreglumanna yfir vantrausti á Harald. Í yfirlýsingu lögreglumannanna sagði að um langt skeið hefði ríkt óánægja með störf yfirstjórnar embættis ríkislögreglustjóra. Var þar meðal annars vísaði í meint eineltismál, fatamál og rekstur bíla­ miðstöðvar. Haraldur sagði í kjölfarið í viðtali við Morgunblaðið að gagnrýnin á störf hans væri hluti af rógsher­ ferð og reynt væri að hrekja hann úr embætti. Þá sagði Haraldur að spilling ríkti innan lögreglunnar. Rafmagnslaust varð á Dalvík í kjölfar óveðursins sem gekk yfir landið í desember og varði það í nokkra daga. Varðskipið Þór var nýtt sem rafstöð fyrir bæinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði voru undirritaðir hjá sáttasemjara í byrjun apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Liðsmenn Hatara með Palestínufánana í Tel Avív. Regnbogafánar tóku á móti Pence. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Regnbogafánar mættu Pence Mike Pence, varaforseti Banda­ ríkjanna, heimsótti Ísland í byrjun september. Var heimsóknin talin til marks um aukinn áhuga Banda­ ríkjamanna á norðurslóðum og viðbrögð við ásælni Kínverja til aukinna áhrifa á svæðinu. Pence fundaði meðal annars með Guðna Th. Jóhannessyni forseta, Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð­ herra og Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra. Varaforsetinn lagði áherslu á mikilvægi banda­ lags ríkjanna tveggja og varaði við áhrifum Kínverja og Rússa á norð­ urslóðum. Fyrirtæki í grennd við Höfða, sem var einn af fundarstöðunum, nýttu tækifærið og f lögguðu regnboga­ fánum til marks um stuðning við baráttu hinsegin fólks. Pence hefur lýst íhaldssömum viðhorfum þegar kemur að réttindum hinsegin fólks. Vonbrigði með PISA Niðurstöður PISA­könnunarinnar voru kynntar í byrjun desember. Óhætt er að segja að þær hafi valdið vonbrigðum. Lesskilningur íslenskra nemenda minnkaði frá síðustu könnun en 26 prósent þeirra töldust ekki geta lesið sér til gagns. Þó batnaði árangur í stærðfræði og var svipaður í náttúruvísindum. Ísland var neðst Norðurlandanna í öllum þremur matsflokkum PISA. Lilja Alfreðsdóttir, mennta­ og menningarmálaráðherra, boðaði strax víðtækar aðgerðir til að bregð­ ast við niðurstöðunum. Alvarlegar ásakanir á hendur Samherja Þann 12. nóvember fjölluðu frétta­ skýringaþátturinn Kveikur á RÚV og Stundin um starfsemi útgerðar­ félagsins Samherja í Namibíu. Þar komu fram alvarlegar ásakanir á hendur félaginu. Meðal annars hefði félagið greitt stjórnmálamönnum í Namibíu mútur gegn því að fá ódýr­ an sjófrystikvóta á hrossamakríl. Einnig komu þar fram ásakanir um peningaþvætti og skattasniðgöngu. Umfjöllunin sem var unnin í sam­ starfi við Wikileaks og Al Jazeera var byggð á gögnum sem Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi rekstrar­ stjóri Samherja í Namibíu, lak til fjölmiðlanna. Þorsteinn Már Bald­ vinsson ákvað að stíga tímabundið til hliðar sem forstjóri Samherja á meðan málið er í rannsókn og tók Björgólfur Jóhannsson við. Samherjamenn hafa neitað ásök­ unum um mútugreiðslur og segja að Jóhannes hafi þar verið einn að verki. Þá hefur félagið ráðið norsku lögmannsstofuna Wikborg Rein til að rannsaka ásakanirnar um brota­ starfsemi í Namibíu. Málið hefur einnig haft mikil áhrif í Namibíu en bæði sjávar­ útvegs­ og dómsmálaráðherra landsins sögðu af sér eftir að málið kom upp. Þeir eru nú í haldi lögreglu ásamt fjórum öðrum mönnum vegna ásakana um spillingu, fjár­ svik og peningaþvætti. Samkvæmt umfjöllun Kveiks og Stundarinnar stóðu meintar mútu­ greiðslur yfir allt fram á þetta ár en Jóhannes lét af störfum hjá Sam­ herja árið 2016. Er talið að heildar­ fjárhæð mútugreiðslnanna nemi um 1,4 milljörðum króna. Íslensk stjórnvöld brugðust við málinu með því að samþykkja aðgerðir til að auka traust á íslensku atvinnulífi. Er þar meðal annars gert ráð fyrir því að Skattrann­ sóknarstjóri og Ríkisskattstjóri geti tímabundið bætt við sig mannafla vegna umfangs þeirra mála sem skoða þurfi í tengslum við Sam­ herjamálið. Óveður og rafmagnsleysi Versta óveður síðari ára skall á landinu 10. desember. Gefin var út rauð viðvörun á öllu Norðurlandi og Ströndum en það var í fyrsta sinn sem það gerist frá því að nýtt kerfi um viðvaranir tók gildi. Skólahald féll víða niður og samgöngur fóru úr skorðum. Óveðrinu fylgdu miklar raf­ magnstruflanir og varð rafmagns­ laust víða á Norðurlandi. Nokkur heimili á Norðurlandi voru enn án rafmagns fimm dögum síðar og annars staðar var keyrt á varaafli. Í kjölfar óveðursins sköpuðust umræður um ástand innviða víða um land. Ríkisstjórnin skipaði starfshóp til að meta leiðir til að efla innviði raforku­ og fjarskiptakerfa. Ljóst er að umtalsvert tjón varð af óveðrinu en Landsnet áætlar að tjón sitt nemi um 300 milljónum króna. Sextán ára piltur, Leif Magnús Grétarsson Thisland, féll í Núpá í Sölvadal í Eyjafirði þar sem hann var að aðstoða bónda við að koma rafmagni aftur á. Hann fannst lát­ inn í ánni tveimur dögum síðar. INNLENDUR FRÉTTAANNÁLL 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.