Fréttablaðið - 31.12.2019, Page 20

Fréttablaðið - 31.12.2019, Page 20
Ríkisreknir fjölmiðlar eru ekki á auglýsinga-markaði á Norður-löndunum, í Bretlandi og víðast hvar á megin-landi Evrópu. Það þarf að leita aftur til ríkja gömlu Austur- Evrópu til að finna fyrirkomulag eins og viðgengst hér á Íslandi þar sem ríkið rekur útvarp og sjónvarp fyrir milljarða skattfé borgaranna – og leyfir þessum ríkisrekna miðli að hamast á auglýsingamarkaði í samkeppni við smáa og stóra einka- rekna fjölmiðla. Eru einhver rök fyrir því að við höfum annað fyrirkomulag varð- andi þetta en nágrannalönd okkar á Vesturlöndum? Það verður ekki séð í f ljótu bragði. Annaðhvort erum við að gera mistök með þess- ari skipan eða þá allir hinir. Getum við gert ráð fyrir því að nágrann- ar okkar á Norðurlöndunum og í öðrum löndum Vestur-Evrópu viti ekki hvað þeir eru að gera þegar kemur að fyrirkomulagi rekstrar ríkisfjölmiðla? Eru þessar þjóðir allar svona galnar og við á Íslandi svona miklu klárari en nágrannar okkar? Fátt bendir til þess. Umræðan um rekstur RÚV er mjög gömul og virðist engan enda ætla að taka. Nýlega birti Ríkisend- urskoðun skýrslu um það álitaefni hvort RÚV þyrfti að fara að lögum landsins eða ekki. Niðurstaðan var sú að þessari ríkisstofnun bæri að fara að lögum. Við það gladdist stjórn stofnunarinnar mikið og fagnaði því sérstaklega að hafa feng- ið svör við þessu f lókna álitaefni! Einfaldar sálir hafa haldið hingað til að þarna væri ekki um neitt álitaefni að ræða því okkur væri öllum uppálagt að fara að lögum. Alltaf. Einnig ríkisstofnunum. Því er vægast sagt einkennilegt að það hafi þurft sérstaka rannsókn Ríkis- endurskoðunar til að komast að þeirri niðurstöðu að RÚV bæri að fara að lögum. En segir þó nokkuð um hrokafullt viðhorf þeirra sem ráða þar á bæ. Lilja Alfreðsdóttir menntamála- ráðherra hefur mælt fyrir f jöl- miðlafrumvarpi á Alþingi þar sem hún vill styrkja frjálsa fjölmiðla um 400 milljónir króna. Um það eru skiptar skoðanir. Í umræðum á Alþingi fyrr í desember komu fram margháttuð sjónarmið þing- manna. Umræðan fór öll út og suður og virtist á köflum sem ræðumenn væru ekki að fjalla um sama málið. Flestir vörðu stórum hluta tíma síns í ræðustól Alþingis til að fjalla um RÚV. Virtust f lestir vera þeirrar skoðunar að RÚV ætti ekki að starfa á samkeppnismarkaði auglýsinga. Sumir þeirra sögðust hafa verið þeirrar skoðunar um árabil án þess að fá nokkru áorkað þrátt fyrir langa þingsetu. Fram hefur komið að ýmsir fjöl- miðlar á Íslandi eiga við ramman reip að draga. Þeir eru reknir með tapi og það jafnvel miklu tapi. Slíkt getur ekki gengið til lengdar. Fyrir taprekstri sumra þeirra eru ýmsar ástæður. Breyttar aðstæður í umhverfinu, of margir að berjast um sama markaðinn og ekki síst ójöfn og ósanngjörn samkeppnis- staða gagnvart ríkisreknum fjöl- miðli. Þá er átt við RÚV sem sækir styrk sinn í skattfé okkar borgar- anna. Þeir tala um RÚV OKKAR ALLRA. Það á vissulega við varð- andi RÚV OKKAR ALLRA SKATT- GREIÐENDA. Við sem eigum í sam- keppni við ríkismiðilinn þurfum einnig að styðja hann með skatt- greiðslum frá okkur sjálfum. Það er vægast sagt einkennilegt og reyndar alls ekki boðlegt. Sé það vilji löggjafans á Íslandi að um líf lega og eðlilega samkeppni sé að ræða á fjölmiðlamarkaði, þá er brýnt að færa okkur Íslendinga í átt að vinnubrögðum þjóðanna í kringum okkur í Vestur-Evrópu. Ef ekki þá verður okkur áfram skipað á bekk með Rúmeníu, Búlgaríu og öðrum jaðarþjóðum Evrópu að þessu leyti. Er það eftirsóknarvert? Væntanlega ekki. Núverandi rekstur RÚV í harðri samkeppni á auglýsingamarkaði er tímaskekkja. Ef þingmenn og ráð- herrar hafa ekki kjark til að taka á þessu fyrirkomulagi strax, þá fer maður að trúa því að þeir óttist RÚV eins og einn þeirra þingmanna sem tjáði sig um málið fyrr í desember hélt fram. Hann sagði: Ráðamenn óttast að þeir verði teknir fyrir á RÚV ef þeir reyna að færa rekstur þessarar ríkisstofnunar í boðlegt horf. Ég er þeir rar skoðunar að umræddur þingmaður hafi hitt naglann á höfuðið. Sennilega mun ekkert breytast vegna þess að stjórnmálamenn skortir kjark. Þeir eru alltaf tilbúnir að tala – en eru minna fyrir að hrinda góðum hug- myndum í framkvæmd. Óháð því sem gerist – eða gerist ekki – á Alþingi mun Torg ehf., sem gefur út Fréttablaðið, rekur sjónvarpsstöðina Hringbraut og vefmiðla, halda áfram að standa „lýðræðisvaktina“ og veita lands- mönnum góða þjónustu með mál- efnalegum skoðanaskiptum og vönduðum fréttaflutningi. Gleðilegt nýtt ár! Er þörf á frjálsri fjölmiðlun? Núverandi rekstur RÚV í harðri samkeppni á aug- lýsingamarkaði er tíma- skekkja. Helgi Magnússon formaður stjórnar Torgs ehf. Við sendum landsmönnum hlýjar kveðjur 569 6900 09:00–16:00www.ils.is Með ósk um gleðileg jól og farsæld á komandi árum S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19Þ R I Ð J U D A G U R 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.