Fréttablaðið - 31.12.2019, Side 49

Fréttablaðið - 31.12.2019, Side 49
SIGMUNDUR DAVÍÐ BENDIR Á AÐ AL- MENNA NOTKUN FLUGELDA MEGI REKJA ALLT AFTUR TIL LANDNÁMSBRÆÐRANNA INGÓLFS OG HJÖRLEIFS. 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ Eftir nokkrar fortölur lét völvan þó til leiðast og dró fram sína bölvuðu spilastokka, eiturbolla, kristals- og postulíns-kúlur og samþykkti að rýna aðeins í komandi ár. Þó með þeim fyrirvara að framtíðin sé á stöðugu iði og sveif list í takt við hinn þunga njálg tímans. Því sé ekki við hana að sak- ast þótt síðasta spá hennar hafi í veigamiklum atriðum reynst jafn óáreiðanleg og skoðanakannanir dauðlegra smásála í jafn mikilvæg- um málum og Brexit og kosningum forseta í nágrannaríkjunum Íslandi og Bandaríkjunum. Hún sá þó helling fyrir í fyrra og spádómsgáfa hennar og yfirnátt- úrulegt innsæi brugðust aðeins þegar skán settist á andsetna krist- alskúluna, verksmiðjugallar komu fram í galdrastöfunum og stjórn- málafræðingur á geðdeyfðarlyfja- trippi stalst til þess að stokka Tarot- spilin. Nú þegar geggjaðar vættir og ræstitæknaher handanheima hafa kippt þessum annmörkum í liðinn má treysta þessari völvuspá sem nýjum netsokkabuxum og láta í góðri trú eiga sig að máta aðrar teg- undir úr ómerkilegum gerviefnum. Jafnvel aumustu spámenn í eigin föðurlandi vita að forsetakosningar eru haldnar á fjögurra ára fresti á Íslandi þannig að í sumar er komið að því að einmitt of margir spá- menn munu freistast til þess að safna liði til þess að gera Guðna Th. Jóhannesson brottrækan af Bessa- stöðum með alla sína mislitu sokka og virðulegu höfuðbuff. Guðmu ndu r Frank lín Jónsson, athafnaspá- maður á Borgund- a rhól m i, ger i r aðra atrennu að embættinu og er þegar byrj- aður að leggja grunn að for- setaframboði sínu með sér- stakri Face- book-síðu og skörpum fals- fréttaskýringum á sálarlífi forseta B a nd a r í k ja n n a á Útvarpi Sögu. Honum gengur aðeins betur nú en síðast þar sem eftir að hann les þennan spádóm í Fréttablaðinu í dag man hann eftir að skrá lögheimili sitt á Íslandi. Það hrekkur þó skammt og Gúndi situr uppi í þeirri vandræða- legu stöðu að jafnvel sem skráðum Íslendingi hafnar þjóðin honum svo afgerandi að Davíð Oddsson má vel við una í samanburðinum. Einmenningskjördæmið Sturla Jónsson býður sig einnig fram og fær þremur f leiri atkvæði en hinn króníski frambjóðandinn Ástþór Magnússon. Einn óvæntasti frambjóðandinn, Birgir Örn Guðjónsson, miklu betur þekktur sem Biggi lögga, virðist á tímabili helst geta ógnað sitjandi forseta en þegar talið er upp úr pappakössunum og kærum Sturlu og Guðmundar Franklíns hefur verið vísað frá stendur Guðni uppi sem óumdeildur sigurvegari og bætir verulega við sig frá forseta- kosningunum 2016. Biggi lögga tekur tapinu eins og hverju öðru hvítf libbakrimma- biti og telur ljóst að þjóðin hafi sameinast um að skerða ekki tjáningarfrelsi hans með því að troða silkimúl upp í hann á Bessa- stöðum. Skoðanir hans á öllu milli himins og jarðar þurfi greinilega áfram að fá að heyrast. Útvarp Saga kennir síðan Gallup, RÚV og EES um að spádómur hennar konu um að Guðni myndi ekki ná kjöri hafi ekki orðið að veruleika. Uppspuni frá Rótum skellir á skeið á gjörningaárinu 2020 Fréttaritara Fréttablaðsins í Sumarlandinu var tekið heldur fálega þegar hann raskaði grafarró völvu blaðsins á næst- síðasta degi ársins til þess að spyrja fregna úr náinni framtíð og hvaða ósköp árið 2020 beri helst í skauti sér. „Hætt er ég að hirða um að biðja hljóðs allar heilagar beljur, minni- sem og meiriháttar, því viska mín drukknar í óráðshjali minni spá- kerlinga og stallsystra á sveppatrippi og dugir nú til þess eins að fóðra nettröllin sem betur væru gleymd, grafin og í ginnungagapi huga síns í hel soltin.“ Stífluð lagnalína Vesturbær Reykjavíkur nánast lamast og verður einangrað borg- ríki hugsjónavilltra Vinstri grænna og lattélepjandi uppi á geðrænum mörkum Viðreisnar og Sjálfstæðis- flokksins þegar lagnir undir Hofs- vallagötu springa með svo stór- fenglegum látum að drjúgum hluta götunnar verður lokað fyrir umferð. Viðgerð dugir ekki til þess að breyta hættumati sérfræðinga borgarinnar í holufyllingum og umferðarf lækjum þannig að hún verður áfram lokuð fram eftir sumri. Mikið umferðaröngþveiti myndast í kringum hringtorgið við Hótel Sögu og neyðist borgar- stjóri til að stíga inn í umræðuna, meira að segja á Útvarpi Sögu, og minna fólk á að ekki sé um hring- torg að ræða heldur götu sem liggur í kringum torg. Melabúðin og Hagavagn Emmsjé Gauta taka við keflinu af Gráa kett- inum sem píslarvottar götulokana og efnt er til fámennrar kertafleyt- ingar við Tjörnina þeim til stuðn- ings. Götulokanir í Vesturbænum eru sagðar útskýra lélega mætingu. Eyþór Arnalds rekur öngþveitið til borgarlínunnar og ítrekar að hann er á móti henni um leið og hann skorar á Dag B. Eggertsson að greiða fyrir hamborgara á línuna. Vigdís Hauksdóttir er ekki með svör á hrakhólum e n h l æ r a ð f y n d n i E y þ ó r s o g uppsker enn eitt ábyrgðar- bréfið frá borg- arritara þar sem hún er sökuð um einelti á skemmti- stað. Stóra bomban Árið hefst af miklu fjöri þegar elds- voði í Grjótaþorpinu á þrettánd- anum hleypir lífi í frumvarp um blátt bann við notkun almennings á flugeldum í einkaeigu. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráð- herra leggur frumvarpið þó fram á umhverfisforsendum og eign- ast bæði óvænta bandamenn og óvænta andstæðinga. Þar munar ekki síst um mála- fylgjumanninn og júdókempuna ógurlegu Guðjohnsen, skiltagerðar- mann, skógræktarfrömuð og fyrr- verandi oddvitaefni Sjálfstæðis- f lokksins í borginni. Hann berst gegn skoteldunum í nafni gælu- dýraréttinda og rekur þá úrkynjun skattborgarans að vilja kveikja í peningum til sundrungar fjöl- skyldunnar, ofáts og framafíknar mæðra sem láti barnauppeldi í hendur stofnana. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sér í frum- varpinu enn eina aðförina íslenskri menningu, stígur ákveðinn á bak Miðflokksgæðingnum, Uppspuna frá Rótum undan Þvælu frá Upp- hafi, og ríður reiður um héruð. Sigmundur Davíð bendir á að almenna notkun f lugelda megi rekja allt aftur til landsnámsbræðr- anna Ingólfs og Hjörleifs sem, eins

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.