Fréttablaðið - 31.12.2019, Page 51

Fréttablaðið - 31.12.2019, Page 51
3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R46 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð og frægt er orðið, fögnuðu þræla- vígum með því að sprengja rosa- terturnar Hallgerði langbrók og Egil Skallagrímsson og vei sé þeim Íslendingi sem þurfi að gúgla til þess að átta sig á því hvaðan rak- ettupakkarnir fá nöfn sín. Hann mótmælir banninu auk þess á þeim forsendum að flugeldar séu „hornsteinn íslenskra áramóta“ og að fjölskyldupakkarnir Ingólfur og Grettir hafi um ára- bil „glætt áhuga ungs fólks á Íslendinga- sögunum“. K at r í n Ja k- obsdóttir for- sætisráðherra v i l l e k k e r t um bannið og gagnrýni Sig- mundar Davíðs segja annað en að hún hafi ekki verið og sé ekki hlynnt þeirri afstöðu að smætta kerfislægan vanda í einstök siðferðileg álitamál sem eru afleiðing aukinnar einstaklingshyggju og einstaklings- væðingar stjórnmálanna. Dróni Freyr Mannanafnanefnd verður ekki lögð niður í ár frekar en fyrri ár og verður áfram sía á þau nöfn sem þykja boð- leg í íslensku samfélagi. Öryggis- ventill á foreldra sem þrá ekkert heitar en steypa ómálga börnum sínum í svarthol eineltis til þess að fá útrás fyrir eigin hallærislegheit. Meðal nafna sem verður hafnað á árinu er drengsnafnið Aaron og stúlkunafnið Hvítá. Heit umræða skapast þegar fyrstu nöfnunum í hvorugkyni er hafnað en það eru nöfnin Ljón og Fjall. Þá verða sam- þykkt drengsnöfnin Dróni og Króli og stúlkunöfnin Lárpera og Tesla. Nýju fötin keisarans Mathallir spretta áfram upp eins og ofskynjunarsveppir víða um land og verða fjórar nýjar opnaðar á árinu; í Kórahverfi, á Selfossi, í Keflavík og Viðey. Ung stúlka situr á nýopnaðri mathöll og byrjar skammlífa bylt- ingu þegar hún segir háum rómi við foreldra sína að hana langi bara í venjulegar franskar kartöflur. Orðin ná til annarra gesta mat- hallarinnar sem horfa furðu lostnir á sætkartöflubátana, trufflumæjóið og kimchiið og spyrja sig hvernig þetta varð að norminu. Mathallar- gestirnir fylkja liði á síðasta útibú Snælandvídeós sem liggur í andar- slitrunum. Þar minnist mannfjöld- inn þess hversu ógeðslegur gamaldags sjoppumat- ur var og síðasti naglinn er negldur í k istu hinnar íslensku vídeó- leigu. Kemur þá þar aðvífandi á harðastökki S i g m u n d u r Davíð á Upp- spuna frá Rótum og heldu r eld- ræðu sem magnar upp kokteilsósuf lóð sem drekkir ranghug- myndum og erlendum spill- ingaráhrifum. Iðnaðarsöltuð ýsa var það heillin! #kranabjór Heitasta samfélagsmiðlaæði ársins hefst þegar ungur áhrifavaldur klifrar í leyfisleysi upp í krana á byggingarsvæði með kippu af bjór og tekur sjálfu í kranaklefanum með myllumerkinu „#kranabjór“. Eftir að tónlistarmaðurinn Flóni tekur þátt í fjörinu verður mikið fár – upp koma nokkur lögreglu- mál og byggingarverktakar ítreka hætturnar í fjölmiðlum sem fylgja því að klífa slíkar hæðir undir áhrifum áfengis. Æðið deyr svo eftir að Eyþór Arnalds deilir myndum af sjálfum sér með #kranabjór. Fullar sættir nást einnig milli skattrannsóknarstjóra, nei ekki hans heldur þess nýja, og herskara skattsvikulla áhrifavalda þegar þeir síðarnefndu gangast við skattalaga- brotum sínum á forsendum fávisku. Allar kærur eru síðan felldar niður í kjölfar herferðarinnar #éssskasko- borgaskattinnminn og myndaflóði á Instagram þar sem allir dáðustu áhrifavaldarnir sýna edikbón- aða bossa sína þegar þeir stinga útprentuðu framtali í bréfalúguna hjá Tollinum við Tryggvagötu. Berlín norðursins Veður og loftslag verða allsráðandi í deiglunni á árinu. Miklar vendingar verða í umræðunni um hamfara- hlýnun en ný gögn frá loftslags- vísindamönnum benda til þess að ástandið sé alls ekki jafn slæmt og áður var haldið, heldur sé það mun verra. Í kjölfarið færa mótmælendur sig frá Austurvelli yfir að Leifsstöð þar sem þeir f leygja eggjum í nýkomna ferðamenn. Flugviskubitið ungt fólk dregur mjög úr utanlandsferðum og blása listamenn í stað þess lífi í Hveragerði sem fær heitið „Berl- ín Norðursins“. Trampólínin fljúga á ný B erl í n Norð - ursins tekur þó skuggalega f ljótt á sig mynd þeirrar einu sönnu í apríl 1945 þegar fyrsta haustlægðin gengur yfir landið í byrjun sept- ember. Hún mun reynast jafnvel hyldýpri en skilningur Brynjars Níelssonar á eignarréttinum og mannréttindum, ekki síst stjórnar- skrárvörðum rétti fýlupúka til þess að vera leiðinlegir við þá sem þeim finnst leiðinlegir. Af því bara. Og þrátt fyrir eldrauðar viðvar- anir veðurfræðinga tekur fjöldinn lítið mark á margboðuðu gjörn- ingaveðrinu. Mögulega vegna þess að veðurvitinn Haraldur Ólafsson mismælir sig nokkrum sinnum í viðtölum í útvarpi og sjónvarpi og kallar fellibylinn ýmist Evrópu- sambandið eða Schengen og verður tíðrætt um einhvern dularfullan fjórða veðurpakka frá Brussel. Trampólínin sem ætla mætti að bitur reynslan væri búin að kenna mörlandanum að jarðbinda munu því takast á loft á ný í septem- ber en sem fyrr er u þau i l lu heilli enn háð sömu lögmálum og FH og hluta- bréf í Kauphöll- inni og koma alltaf aftur niður eftir að hafa farið upp. Mann- tjón verður sem betur fer ekki í þeirri skæðadrífu. Eignatjónið verður hins vegar umtalsvert og fær á sig þungan virðisauka þegar lög- menn grafa sér nýja matarholu með því að gera smátjónakröfur að hætti Bandaríkjamanna að tískufyrirbæri. Þarna mun enn eina ferðina hið f o r n k v e ð n a , a ð b l a n k i r b l a ð a m e n n og tæk nilega gjaldþrota fjöl- miðlar kenna vel k læddu m lögmönnum að spinna, sannast þegar Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, sem hefur stráfellt fjölmiðla fyrir dómi með lagatæknilegum hælkrókum, gerist frekur til fjörsins á trampólínunum og kyndir undir nágrannaerjum frekar en hitt. PAUSE eða STOP? Nýstof naða f lug félag ið PL AY verður lagt af í lok árs eftir hverja furðufréttina á fætur annarri. Mesta athygli fær heiðarleg en mis- heppnuð tilraun eigenda félagsins til að sannfæra Isavia um að endur- nefna Leifsstöð tímabundið „PLAY station“. Leiðinlegasti brandari ársins lítur dagsins ljós þegar allt of margir á samfélagsmiðlum skilja eftir athugasemdina: „Ætti þetta ekki frekar að heita STOP?“ Frétta- blaðið fær skömm í hattinn fyrir forsíðumynd um málið og Vilj- inn. is birtir langar og inn- blásnar varnarræður um mikilvægi f lug- elda og f lugferða fyrir raunhag- k e r f i ð , h a g - vöxtinn og þar með af komu eldri borgara og öryrkja. Katr ín Jak- obsdóttir v ill s íð u r s m æ t t a kerfislægan vanda í einstök siðferðileg álitamál og treystir fjár- málaráðherra til þess að sigla f lugmóðurskipinu Íslandi í örugga Landeyjahöfn. Tónlistarhátíðir Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður haldin á árinu. Erlendur rappari, sviðs nafn hvers byrjar á ‚Lil‘ og endar á „Erlendur“, verður eina alvöru nafn hátíðarinnar en hann af boðar skyndilega komu sína eftir að hann er handtekinn fyrir brask með hátíðararmbönd. Miðasala bíður hnekki fyrir vikið og virðist ekki skipta máli þótt Hjaltalín og Úlfur Úlfur spili lög hvor annars. Aðstandendur hátíðarinnar skrifa væmið bréf þar sem þeir hvetja landsmenn til að kaupa miða en skilaboðin virðast ekki ná til landsmanna. Skömmu eftir að hátíðinni lýkur lýsa aðstandendur yfir að gamnið verði ekki endur- tekið að ári og skrifa harðort bréf þar sem þeir kenna landsmönnum TRAMPÓLÍNIN SEM ÆTLA MÆTTI AÐ BITUR REYNSLA VÆRI BÚIN AÐ KENNA MÖRLANDANUM AÐ JARÐBINDA MUNU ÞVÍ TAKAST Á LOFT Á NÝ Í SEPTEMBER.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.