Fréttablaðið - 31.12.2019, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 31.12.2019, Blaðsíða 53
VÖLVAN SKYNJAR STERKLEGA AÐ FJÖLMARGAR ÍÞRÓTTAGREINAR VERÐI IÐKAÐAR AF FÓLKI Á ÝMSUM ALDRI UM LAND ALLT Á KOMANDI ÁRI. 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð kornum. Viljinn eignast í kjölfarið Stundina.is, Kjarnann.is, Lögbirt- ingablaðið og Mosfelling. Kaup- verð miðlanna fæst ekki gef ið upp en í f jölmiðlarýni páskaút- gáfu Viðskiptablaðsins er stoðum rennt undir kenningar um að greitt hafi verið í öðrum gjald- miðlum en íslenskum krónum og yfirtöku skulda þegar er sagt frá fyrirhugaðri stofnun kynlífsleik- fangabúðarinnar Stundarfrygðar og steikhússins Kjarnabræði. Ásadrama Ásmundur Friðriksson fer út fyrir gufuhvolfið í sumarfríinu og leggur ekki færri en 401 milljón kílómetra að baki þegar ferðaskrifstofa Rich- ards Bransons flytur hann til reiki- stjörnunnar Mars. Fríið breytist skyndilega í vinnuferð þegar Ási ákveður að nota ferðalagið til þess að kanna möguleika á útvíkkun kjördæmakerfisins með innlimun Mars eftir að hafa kannað vandlega útúrspeisaðar siðareglur þarlendra og hug til helstu stefnumála Sjálf- stæðisf lokksins. Þar sem ófært er til rauðu plánetunnar á einka- sem og bílaleigubílum var endurgreiðsla Ása reiknuð út frá því að kílómetra- milljónirnar hefðu verið eknar. Upphæðin kallar á aukaaukafjár- aukalög sem fljúga í gegnum þingið eftir að forsætisráðherra telur óráð- legt að smætta kerfislægan vanda í einstök sið- ferðileg álitamál og fjármálaráðherra út sk ý r i r pól i- tískan mög u- leika á því að leggja f logna k í lómet r a í þyngdarleysi að jöfnu við þá sem ekið er á sunnlensku malbiki. Bl i nd aðu r a f rökstuddum grun um að geimaksturs- dagbókin fái ekki staðist mun Björn Leví Gunnarsson reyta hár sitt og skegg og af sér gúmmískó og skræpótta sokka og tekur ekki sönsum fyrr en Smári McCarthy, þingf lokksbróðir hans og óreiðu- sérfræðingur, fær stærðfræðinginn og Viðreisnarborgarfulltrúann Pawel Bartoszek, til þess að útskýra réttmæti endurgreiðslunnar með diffurjöfnu. Límið og lygin Þótt límið sem samfélagið er límt saman á gefi víða eftir á árinu heldur ríkisstjórn Katr- ína r Ja kobsdót t u r áfram að sigla sinn lygna sjó og ekkert bendir til þess að stjórnarand- staðan hristi af sér slenið. Sam- fylkingarskáld- u nu m G u ð - mundi Andra Thorssyni þing- manni og Einari Kárasyni varaþing- manni tekst helst að sýna eitthvert lífsmark úr þeim mótsagnakenndu herbúðum með því að teygja á lang- inn deiluna um hvort glói fegur grá- mosinn eða slípað parket heima hjá Friðriki Þór leikstjóra. Æsingurinn fjarar síðan út þegar Einar fær lista- mannalaun í tólf mánuði þar sem aðstoðarmaður þing f lokksins mundi eftir að sækja um fyrir hann. um. Secret Solstice verður óvænt í brennidepli þegar upp kemur að Jóa Pé og Króla hafi verið boðið að spila gegn lífstíðarpassa á hátíðina frekar en pening. Ákveðin huggun samt harmi gegn að fjögur svein- börn eru í kjölfarið skírð Króli. Allir í boltanum? Völvan skynjar sterklega að fjöl- margar íþróttagreinar verða iðk- aðar af fólki á ýmsum aldri um land allt á komandi ári. Hún sér einnig að sumum muni ganga betur en öðrum en töluvert verði þó um jafntefli, sem verða um 13,6% fleiri en í landsmeðaltali síðustu 32 ára. Íslandsmet verður sett og óvænt úrslit munu líta dagsins ljós. Leikar æsast svo þegar Sigmundur Davíð reynir að prjóna upp stemninguna á Uppspuna. Sigmundi og skjaldarmerki hans tekst einna best upp í ársbyrjun þegar blásið er til leiks á EM í þjóð- aríþróttinni handbolta, sem Jónas frá Hrif lu fann upp á sínum tíma eins og elstu karlar muna. Með hjálp Sigmundar munu ungu gutt- arnir hans Gumma Gumm lands- liðsþjálfara líma þjóðina niður í sófann með alíslensku Jötungripi, frammistöðu sem lofar góðu og verður lengi í minnum höfð. Aron Pálmarsson verður sjóð- heitur í skyttunni, Björgvin Páll sést ekki fyrir í markinu og ver eins og óður maður enda án filters og Haukur Þrastarson mun sýna að hann er ekki einn efnilegasti leik- maður Evrópu heldur einn af þeim betri. Sjaldan er Húh! of oft kveðið Eins og oft áður verða þó íslensku áhorfendurnir í stúkunni aðal senuþjófarnir. Þúsundir Íslendinga munu streyma til Malmö og Húh-ið mun óma á ný, hætta að vera hallær- islegt og verða eitt af vörumerkjum keppninnar. Húh! Logi Geirsson, handboltaálits- gjafi í sjónvarpinu, getur lengi á sig blómum bætt og mun skemmta boltaóðum landanum og æra óstöð- uga antisportista enn frekar enda úrslitin góð. Ummæli hans og val á hálstaui verða áberandi meðal mest lesnu frétta ársins 2020. Völvan fær ekki betur séð en að liðið fari alla leið í undanúrslit en því miður glittir ekki í merkari góð- málm en brons. Hverjum er ekki sama? En Liverpool mun fara í gegn- um tímabilið án þess að tapa leik og fá gullbikar eins og Arsenal þegar titillinn fer á loft. Liver- pool-samfélagið á Ísla nd i mu n vitaskuld komast í heimsfréttirnar fyrir af brigðilega einlægan áhugann og fagnaðarlæti og Sky-sjónvarpsstöðin mun slást í för þegar Sóli Hólm og aðrir stuðnings- menn Liverpool ryðjast niður Skóla- vörðustíginn á opinni rútu með neyðarblys á lofti. Senurnar munu minna á þegar íslenska landsliðið kom heim frá EM í fótbolta og Allez Allez Allez söngurinn mun verða lag sumarsins. Umhver f isráðherra og Árni Stefán Árnason, lögmaður og rétt- argæslumaður húsdýra, reyna að hindra blysför Púllaranna með vísan í áform um flugeldabann en þá birtist Sigmundur Davíð á Upp- spuna frá Rótum og hrindir áhlaupi góðverkasnatanna. Fjölmiðlar í steik Enn syrtir í álinn á f jölmiðla- markaði á árinu og áframhaldandi hremmingar og þrengingar stuðla að enn frekari samruna. Skilning- inn sem slíkar neyðaraðgerðir hafa notið þrýtur þó á vordögum þegar Sigurður G. Guðjónsson stígur fram sem nýr eigandi heimasíð- unnar Viljinn.is sem hann keypti að sögn fyrir söluhagnaðinn af Menningar verðlaunum DV og handfylli af uppþornuðum sand- Samfylkingin hverfur þá með Viðreisn í þoku Brexit-þunglyndis- ins og vekur enga athygli á pólitíska sviðinu fyrr en Logi Einarsson for- maður segir skilið við röndóttu bolina sína og birtist í sjónvarps- fréttum í köflóttri skyrtu. Áhrifin verða slík að leita þarf að einhverju sambærilegu allt aftur til þess þegar Össur Skarphéðinsson lét þver- slaufuna róa fyrir bindi. Gunnar Smári Egilsson, hug- myndafræðingur Sósíalistaflokks- ins, bregst að vísu hinn versti við og skrifar fimm mjög langar Facebook- færslur á innan við sólarhring þar sem hann varar eindregið við að Samfylkingin ætli að blekkja verka- lýðinn og öreiga allra kjördæma til fylgilags við sig með því að draga sauðargæru hinna vinnandi stétta yfir eðlislæga auðvaldsþjónkun sína og eitraðan Blair-isma. Misráðning í Efstaleiti Það er helst að hrikti í styrkum þrí- fæti stjórnarsamstarfsins þegar Lilja Alfreðsdóttir, ráð- herra menningar og lestrarskekkjunnar frá Pisa, situr uppi með að stjórn RÚV gerir Svan- h i l d i K o n - ráðsdóttur að útvarpsstjóra en ekki Svan- h i l d i H ó l m Valsdóttur. Bjarni Bene- diktsson snögg- reiðist og gengur á dyr en kemur strax aftur til baka og sættir sig við orðinn hlut þegar hin Svanhild- urin selur Áramótaskaupið til þess að fjármagna hlut RÚV í Ófærð 3. Svanhildur Konráðsdóttir verður síðan óumdeildur útvarpsstjóri næstum allrar þjóðarinnar. Í það minnsta þeirra hægri sinnuðustu sem fagna ógurlega á málgagni sínu, Facebook-hópnum Stjórnmála- spjallið, þegar einhliða ákvörðun er tekin í Efstaleitinu um að senda Ólaf F. Magnússon, lækni og fyrr- verandi borgarstjóra, í Eurovision með grátbólgna ættjarðarballöðu sem hann f lytur sjálfur ásamt Gunnari Þórðarsyni og Páli Rós- inkranz. Þetta verður sannkölluð sigurför og þegar tríóið syngur sig upp í 2. sætið í keppninni þykir full hefnt fyrir Hatara-skandalinn og þá vinstri vitleysu alla. Tvær grímur renna síðan á Sig- urð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins, þegar Hulli upplýsir með torræðri spýtukalla- teikningu í Stundarfrygð að Mið- f lokkurinn hafi keypt Áramóta- skaupið 2020. Fyrst og fremst til þess drepa skets um að fjármála- ráðherra hafi tekist að yfirstíga pólitískan ómöguleika með því að standa við loforð, sem aldrei var gefið og átti að liggja gleymt og graf- ið í þriggja sólarhringa óminni, með því að gera Gunnar Braga Sveinsson að sendiherra Íslands í Kakastan. Katrín Jakobsdóttir vildi lítið gefa út á viðskipti Miðf lokksins með listrænt frelsi Mið-Íslendinga annað en að hún hafi hingað til ekki verið hlynnt þeirri afstöðu að smætta kerfislægan vanda í einstök siðferðileg álitamál. Hún mun síðan prísa sig sæla fyrir framan sjónvarpið eftir slétt ár þegar Sigmundur Davíð fer mikinn í fullum herklæðum á baki Uppspuna frá Rótum í áramóta- skaupinu sem Wintris framleiðir í samstarfi við RÚV ohf. Vituð þér enn eða hvað?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.