Skessuhorn


Skessuhorn - 20.02.2019, Qupperneq 6

Skessuhorn - 20.02.2019, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 20196 Brotist inn í bústað BORGARBYGGÐ: Til- kynnt var um innbrot í sum- arbústað í Þrætuási í Borg- arbyggð á föstudagskvöld. Farið var inn í húsið og það- an stolið heimabíókerfi og áfengi, að sögn lögreglu. Ekki er vitað hvernig þjóf- arnir komust inn í bústað- inn, því engin merki eru um að þeir hafi brotið upp hurð eða glugga. För sáust á vett- vangi og ummerki í snjónum um að einhver hafi lagt bíl við hlið skammt frá og geng- ið að bústaðnum. Málið er til skoðunar hjá Lögreglunni á Vesturlandi, sem hvetur fólk til að vera á varðbergi og hafa samband við lögreglu ef það verður vart við grunsamlegar mannaferðir. -kgk Tvær bílveltur á heiðinni HOLTAV.H: Umferðaró- happ varð á Holtavörðuheiði fyrir ofan Biskupsbeygju síð- astliðinn fimmtudag. Öku- maður missti stjórn á bíl sín- um í hálku með þeim afleið- ingum að bíllinn fór út af og valt. Maðurinn var einn í bílnum. Hann slapp ós- lasaður en bíllinn var óöku- fær. Sama dag varð minni- háttar árekstur á Kirkjubraut á Akranesi. Aðeins var um eignatjón að ræða en eng- in slys urðu á fólki. Síðdegis á sunnudag varð önnur bíl- velta á Holtavörðuheiðinni. Ökumaður og farþegi voru í bílnum. Sjúkrabíll var sendur á vettvang en bókað er í dag- bók lögreglu að þeir hafi ver- ið í ágætis standi. Hins veg- ar þurfti að kalla eftir krana- bíl til að fjarlæga bifreið- ina. Keyrt var aftan á bíl á Snæfellsnesvegi nálægt Eld- borg á sunnudag, 17. febrú- ar. Óhappið var minnihátt- ar, enginn slasaðist og báðar bifreiðarnar voru ökufærar eftir atvikið. -kgk Fastir ferðalangar Lögreglu var tilkynnt um ferðamenn sem sátu fastir í snjó á Snæfellsnesvegi eft- ir hádegi sl. miðvikudag. Að kvöldi sama dags var kall- að eftir aðstoð vegna ferða- manna sem höfðu fest sig á Uxahryggjavegi. Tilkynnt var um veðurteppta veg- farendur í Svínadal í Hval- fjarðarsveit seint á laugar- dagskvöld. Fólk var þar veð- urteppt í bíl ásamt tveimur hundum og annar bíll fastur þar nærri. Björgunarsveitar- menn fóru til móts við fólk- ið og komu því til aðstoðar. Þá barst lögreglu tilkynn- ing vegna ferðamanna á bíla- leigubíl sem voru fastir í snjó nálægt gatnamótum Vestur- landsvegar og Hvítárvalla- vegar í Borgarfirði á sunnu- dagsmorgun. -kgk Á tali við aksturinn VESTURLAND: Einn öku- maður var sektaður fyrir að tala í síma undir stýri í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Var hann gripinn á tali við almennt umferðareftir- lit. Lögregla fylgdist með akst- urshraða í umferðareftirlitinu. Í dagbók lögreglu kemur fram að sá sem hraðast ók hafi verið tek- inn á 115 km/klst hraða á Akra- nesvegi, en þar er hámarkshraði 90 km/klst. Við eftirlit í vikunni sem leið tók lögregla númer af bílum sem eigendur hafa van- rækt að færa til aðalskoðunar. Þá var tilkynnt um utanvega- akstur í landi Setbergs í vikunni. Lögregla hafði eftirlit við skóla- skemmtun í Grundarfirði í vik- unni sem leið. Fór skemmtunin vel fram, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. -kgk Ók á brott frá óhappi AKRANES: Ökumaður á ferð eftir Akrafjallsvegi lenti í því síðdegis á föstudaginn að hvítri bifreið sem ekið var úr gagn- stæðri átt var ekið inn á rang- an vegarhelming og í veg fyr- ir hann. Maðurinn sveigði frá til að forða árekstri með þeim afleiðingum að hann hafnaði á staur. Ökumaðurinn slapp óslas- aður en bíllinn tjónaðist. Öku- maður hvítu bifreiðarinnar hélt för sinni áfram og lögregla lýsti í kjölfarið eftir vitnum að atvik- inu. Kom í ljós að um erlend- an ferðamann á bílaleigubíl var að ræða. Haft var samband við bílaleiguna og þá kom á daginn að maðurinn hafði skilað bíln- um 16. febrúar og er væntan- lega farinn úr landi. Málið er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Vesturlandi. -kgk Framkvæmdasýsla ríkisins hef- ur kynnt opið útboð vegna jarð- vinnu og girðingarvinnu á verk- svæði þjóðgarðsmiðstöðvar á Hell- issandi. Eins og áður hefur ver- ið rakið í Skessuhorni á málið sér nokkuð langa sögu. Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var stofnaður 2001 og árið 2006 var efnt til hönnunar- samkeppni um þjóðgarðsmiðstöð- ina. Áform um miðstöðina voru sett á ís í kjölfar bankahrunsins 2008. Fyrsta skóflustungan að þjóðgarðs- miðstöðinni var síðan ekki tekin fyrr en árið 2016. „Það hefur því verið stefnt að opnun þjóðgarðs- miðstöðvar lengi og er vonast til að nú verði skrefið stigið til fulls. Það yrði lyftistöng fyrir ferðaþjón- ustu á svæðinu og gerði þjóðgarð- inn betur í stakk búinn að taka á móti ferðamönnum sem heimsækja svæðið allt árið um kring,“ segir í frétt á vef Snæfellsbæjar. Útboðið sem nú hefur verið kynnt nær sem fyrr segir til jarðvinnu og vinnu við að girða af verksvæði fyrir fyrirhugað hús þjóðgarðsmiðstöðv- arinnar. Um er að ræða gröft fyrir hús, bílaplani, lögnum og fyllingu undir sökkla, auk burðarlags undir bílastæði á lóð. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir geti hafist í byrj- un mars og að þeim verði lokið um miðjan maímánuð næstkomandi. kgk Jarðvinna við þjóðgarðsmiðstöð boðin út Það var Sigrún Magnúsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra (t.h.), sem tók fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi árið 2016. Naut hún liðsinnis Sædísar Heiðarsdóttur við moksturinn. Ljósm. úr safni/ af. Niðurstaða fékkst á hádegi á mánudaginn í atkvæðagreiðslu mjólkurframleiðenda um fram- tíð kvótakerfis í mjólkurfram- leiðslu. Atkvæðagreiðslan var raf- ræn og stóð yfir í eina viku. Hver mjólkurframleiðandi hafði eitt at- kvæði án tillits til fjölda aðstand- enda að búinu, aðildar að Bænda- samtökum Íslands eða Landssam- bandi kúabænda. Á kjörskrá voru 558 innleggjendur og alls greiddu 493 þeirra atkvæði eða 88,35%. Atkvæði féllu þannig að 10,14% sögu já við spurningunni: „Já, ég vil afnema kvótakerfi í mjólkur- framleiðslu.“ 441 eða 89,41% kusu hins vegar valmöguleikann: „Nei, ég vil ekki afnema kvóta- kerfi í mjólkurframleiðslu.“ Tveir tóku ekki afstöðu. „Niðurstaðan er stefnumark- andi fyrir fulltrúa bænda við end- urskoðun samnings um starfsskil- yrði nautgriparæktar sem fram fer síðar á þessu ári. Nú verða áherslur mótaðar í ljósi þessarar niðurstöðu og stefnumörkunar um aðra þætti samningsins sem koma þurfa til endurskoðunar,“ segir í tilkynn- ingu frá Bændasamtökum Íslands. mm Kúabændur kolfelldu afnám kvóta í mjólkurframleiðslu

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.