Skessuhorn - 20.02.2019, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 201910
því að Vegagerðin tók yfir rekstur
ganganna af Speli. Hann segir að
slys þetta undirstriki nauðsyn þess
að viðbragðáætlun verði öll leið-
rétt og lagfærð þannig að rétt verði
brugðist við í framtíðinni þegar slys
verða og almannahætta skapast í
göngunum. Þá segir hann að eftir að
hann kallaði eftir upplýsingum um
þetta tiltekna mál í liðinni viku hafi
komið í ljós að eftirlitsmyndavéla-
kerfið sem starfsmenn á vaktstöð
Vegagerðarinnar hafa til að fylgjast
með umferð um göngin, hafi ekki
náð yfir vettvang þessa slyss. Það
hafi orðið á „dauðu svæði,“ sem ekki
sjáist í upptökum myndavéla. Vís-
bendingar séu auk þess um að bíll-
inn hafi verið bilaður á þessum stað,
eða nokkru neðar í göngunum, í allt
að tuttugu mínútur áður en ekið var
á hann. „Þetta hlýtur einnig að vekja
upp spurningar um gæði vöktunar
með umferð um göngin og almenn
viðbrögð ef bílar bila eða verða kyrr-
stæðir af einhverjum ásæðum þarna
niðri,“ segir Þráinn.
13 mínútur liðu
Fyrrnefnt bílslys var í göngun-
um laust eftir klukkan 9 að morgni
þriðjudagsins 12. febrúar og hringdi
vegfarandi boð til Neyðarlínunn-
ar klukkan 9:09. Sjúkrabílar beggja
vegna Hvalfjarðarganga voru kall-
aðir á vettvang innan tveggja mín-
útna frá því Neyðarlínan fékk boð-
in sem og vettvangsliðar Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins á Kjalar-
nesi. Slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins var hins vegar ekki kallað út
fyrr en klukkan 9:21 og tækjabíll
Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarð-
arsveitar ekki fyrr en klukkan 9:22,
eða 13 mínútum eftir að Neyðarlín-
unni bárust boðin. Þess ber að geta
að það var metið svo hjá Neyðarlín-
unni að umfang slyssins þætti ekki
réttlæta virkjun hópslysaáætlunar á
hæsta viðbúnaðarstigi. „Það eitt út
af fyrir sig er alvarlegt, ekki síður
en að það er grafalvarlegt að ekki
var farið eftir gildandi viðbragðs-
áætlun og látnar líða 13 mínútur
frá því Neyðarlínan fær boð og þar
til við hjá Slökkviliði Akraness og
Hvalfjarðarsveitar erum kallaðir út
með tækjabíl og mannskap,“ segir
Þráinn. Í gildandi viðbragðsáætlun
vegna slysa og óhappa í Hvalfjarð-
argöngum segir að Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins og Slökkvilið
Akraness og Hvalfjarðarsveitar séu
með svæðamörkin í miðjum göng-
um og sýslumörk látin þar ráða.
Þá segir jafnframt: „Ákveðið hef-
ur verið að aðgerðastjórn höfuð-
borgarsvæðisins fari með aðgerða-
stjórn fyrir göngin í heild sinni f.h.
slökkviliðanna, í samræmi við lög-
regluumdæmin, en bæði slökkvilið-
in er kölluð út til jafns við atburði í
göngunum.“
Viðbragðsáætlun verður
að endurskoða
Í atvikaskráningu í dagbók Vega-
gerðarinnar í vaktstöð um umrætt
slys 12. febrúar síðastliðinn segir að
vísbendingar hafi borist nokkru fyr-
ir slysið um bíl sem ekið var of hægt
upp Hvalfjarðargöng. Samkvæmt
óstaðfestum upplýsingum vaktstöðv-
ar höfðu borist þær upplýsingar að
sami bíll, sem keyrt var á, hafi verið
kyrrstæður í 15-20 mínútur í göng-
unum, en verið ekið í „blindan blett“
í eftirlitsmyndakerfi stjórnstöðvar
Vegagerðarinnar og því hafi menn
þar ekki orðið varir við hann. Starfs-
menn í vaktstöð hafi því ekki vitað af
árekstri tveggja bíla í göngunum fyrr
en boð bárust frá Neyðarlínunni um
að þar hafi orðið slys. Í atvikaskrán-
ingu Vegagerðarinnar segir jafnframt
orðrétt: „Það má draga þann lærdóm
af þessu að það verði að senda eftir-
litsbíl til að skoða hvort þeir bílar sem
hafi stoppað séu örugglega komn-
ir upp úr göngunum, en ekki stopp
annars staðar í göngunum.“
Eins og lesendur Skessuhorns
þekkja var mannaðri vakt hætt um
nýliðin áramót í fyrrum gjaldskýli við
norðurenda Hvalfjarðarganga. Þess
ber að geta að meðan Spölur sá um
rekstur ganganna var ætíð farið á bíl
niður í göngin ef grunur lék á að bíll
væri þar stopp af einhverjum ástæð-
um og hann dreginn hið fyrsta út ef
hægt var að koma því við, eða öðr-
um ráðstöfunum beitt í öryggisskyni.
Þannig hafi oft verið hægt að koma í
veg fyrir óhöpp, eins og það sem varð
í göngunum 12. febrúar síðastliðinn.
Samkvæmt heimildum Skessuhorns
voru slík útköll starfsmanna Spalar
að jafnaði eitt á dag. Því má halda því
fram að afturför hafi orðið í þjónustu
og öryggi vegfarenda eftir að Vega-
gerðin tók við rekstrinum.
Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri
segist ætla að beita sér fyrir því að
eftirlit og viðbragðsáætlun vegna
slysa í Hvalfjarðargöngunum verði
tekin til gagngerrar endurskoðunar
hið fyrsta í ljósi þess að greinilegar
brotalamir sé að finna á framkvæmd
hennar. „Ég mun við fyrsta tækifæri
óska eftir fundi með forsvarmönnum
Neyðarlínunnar, ríkislögreglustjóra
og Vegagerðarinnar vegna þessa
máls. Það þolir enga bið að mínum
dómi,“ segir Þráinn.
mm
Skipulags- og umhverfisráð Akra-
neskaupstaðar samþykkti á síðasta
fundi sínum að vinna að útboðs-
gögnum vegna Flóasiglinga árið
2020. Samhliða skal vinna greinar-
gerð um reynslu af siglingum milli
Akraness og Reykjavíkur árið 2017.
Þar með er ljóst að ekkert verður
af Flóasiglingum á þessu ári. Bæj-
arstjórn fjallaði um málið á fundi
sínum á þriðjudag í síðustu viku.
Minnihluti bæjarstjórnar lýsti þar
vonbrigðum sínum með að ekkert
verði af siglingum á komandi sumri.
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins á Akranesi lýsa yfir vonbrigðum
með að núverandi meirihluti bæj-
arstjórnar Akraness hafi ekki lagt
þunga sinn í þá vinnu að klára út-
boðsgögn um rekstur á ferjusigling-
um milli Akraness og Reykjavíkur,
fyrir sumarið 2019, eins og vonir
okkar stóðu til í upphafi þessa kjör-
tímabils,“ segir í bókun minnihlut-
ans. „Ljóst er að ferðamönnum hef-
ur fjölgað talsvert hér á Akranesi á
síðustu misserum og þykir vinsælt
að koma í dagsferðir á Akranes, njóta
Langasands og Guðlaugar, sem og
umhverfisins á Breiðinni. Ferjusigl-
ingar hefðu verið kjörin viðbót við
ferðamannastrauminn ásamt þeim
fjölmörgu farþegum sem gætu nýtt
sér þennan umhverfisvæna ferða-
máta til og frá vinnu. Bæjarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins binda miklar
vonir til þess að unnið verði að kappi
við að klára undirbúning þessa verk-
efnis svo siglingar geti hafist eigi
síðar en vorið 2020,“ segir í bókun
minnihlutans.
kgk
Engar Flóasiglingar
í sumar
Ferjan Akranes sigldi milli Akraness og Reykjavíkur sumarið 2017.
Á þriðjudagsmorgni í síðustu viku
varð árekstur tveggja bíla í ofan-
verðum Hvalfjarðargöngum, um
500 metra frá gangamunnanum
að norðanverðu. Atvikalýsing var
þannig að lítill jepplingur á norð-
urleið var kyrrstæður í göngun-
um. Virðist sem ökumaðurinn hans
hafi verið í vandræðum með akstur-
inn í nokkurn tíma, ef marka má at-
burðaskráningu frá Vegagerðinni
sem Skessuhorn hefur undir hönd-
um. Bílnum var ekið út úr því sviði
sem Vegagerðin tekur upp í eftirlits-
myndavélakerfi sínu og starfsmenn
geta séð í vaktstöð. Ökumaður jepp-
lingsins virðist loks hafa farið út úr
bíl sínum og gengið framfyrir hann.
Bíl sem ekið var í sömu akstursstefnu
upp göngin var þá ekið aftan á kyrr-
stæða bílinn sem kastast á ökumann
hans. Báðir ökumenn voru fluttir
með sjúkrabíl til aðhlynningar. Þrá-
inn Ólafsson, slökkviliðsstjóri hjá
Slökkviliði Akraness og Hvalfjarð-
arsveitar, segir margt hafa brugðist í
eftirliti en ekki síst útkalli viðbragðs-
aðila í þessu óhappi og af því beri að
draga lærdóm. Hann mun beita sér
fyrir því að viðbragðsáætlun verði
bætt hið allra fyrsta og að eftirlit
með umferð um göngin verði auk-
ið til muna. Hann telur vísbending-
ar um að menn hafi sofnað á verðin-
um þegar kemur að viðbúnaði með
tilliti til eldhættu og þess að flótta-
leið er ekki úr jarðgöngunum ef þar
kemur upp eldur.
Mistök frá A til Ö
Talsverður viðbúnaður var vegna
slyssins, eins og alltaf á að vera þegar
slys verða í jarðgöngum. Við árekst-
urinn lak auk þess eldsneyti úr bíl-
unum. Margir telja, og þar á með-
al Þráinn slökkviliðsstjóri, að þegar
slys af þessu tagi verða í jarðgöngum
beri að virkja hæsta viðbúnaðarstig,
m.a. í ljósi eld- og sprengihættu. En
í þessu tilfelli var ákveðið í stjórn-
stöð Neyðarlínunnar að virkja næst-
mesta neyðarstig, eða „gulan“, jafn-
vel þótt eldsneyti hafi lekið úr bíl-
unum með tilheyrandi eldhættu. Á
næstmesta viðbúnaðarstigi er um-
ferð vissulega stöðvuð um göngin og
reynt eftir megni að tryggja aðstæð-
ur. En svo virðist sem viðbragðs-
áætlun hafi brugðist á fleiri en einn
hátt. Slökkvilið Akraness og Hval-
fjarðarsveitar, sem er næsta við-
bragðsteymi með tilliti til staðsetn-
ingar, var ekki kallað út með tækja-
bíl fyrr en töluvert á eftir sjúkra-
flutningamönnum, eða 13 mínútum
eftir að Neyðarlínan fékk fyrst boð
um slysið. „Útkallið var ekki sent út
samkvæmt viðbragðsáætlun og er
að mínu viti mistök frá A-Ö,“ segir
Þráinn ómyrkur í máli.
Gæði vöktunar og
„dauð“ svæði
Þráinn segist lengi hafa viljað bæta
gildandi viðbragðsáætlun, ekki hvað
síst til að fara yfir ýmis mál samhliða
Viðbragðsáætlun brást og eftirliti
ábótavant í Hvalfjarðargöngum
Hlutaðeigandi ábyrgðaraðilar verða kallaðir til fundar
Frá vettvangi slyssins sem varð að morgni 12. febrúar síðastliðins.
Þráinn Ólafsson lítur það alvarlegum augum að brotalöm sé í viðbragðsáætlun
vegna óhappa í Hvalfjarðargöngum.