Skessuhorn - 20.02.2019, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019 13
Fasteignasalan Miklaborg hefur
auglýst til sölu hið sögufræga hús
sem í daglegu tali nefnist Stapa-
húsið og er á Arnarstapa. Húsið
er sögufræg húseign, var uppruna
byggt árin 1774-1787 fyrir dönsku
konungsverslunina á Arnarstapa.
Það var síðan tekið niður og end-
urreist árið 1849 á Vogi á Mýr-
um þar sem það stóð allt til ársins
1983 að það var að nýju tekið nið-
ur til viðgerðar. Eftir viðgerð var
það reist að nýju á Arnarstapa árið
1985-1986. Stapahúsið er tvílyft á
hlöðnum undirstöðum. Í því eru
fjögur svefnherbergi og tvær stofur
auk vinnustofu með snyrtingu og
svefnlofti, hjallur, skemma og báta-
skýli. Óskað er tilboða í eignina.
mm
Í tilefn
i
af Rót
arý-
degin
um
23. feb
rúar Rótarýklúbbur
Borgarness
Opinn Rótarý fundur í Borgarnesi
Rótarýklúbbur Borgarness býður íbúum Borgarbyggðar og öðrum gestum til kynningar-
fundar á Rótarýhreyfingunni laugardaginn 23. febrúar kl. 14:00 á Hótel Borgarnesi.
Stutt kynning verður á Rótarýklúbbnum og starfsemi hans.
Aðalefni fundarins er fyrirlestur með fjölmiðlakonunni Sirrý, Sigríði Arnardóttur, sem nefnist:
Laðaðu til þín það
góða með Sirrý
sem byggir meðal annars á metsölubókinni:
Á þessum létta og hvetjandi fyrirlestri
er rætt um samskiptafærni.
Hvaða strauma sendum við frá okkur
og hvað löðum við til okkar?
Hvernig höldum við í orku og
jákvæðni líka þegar á móti blæs?
Kaffiveitingar, happdrættis-
glaðningar og umræður.
Ókeypis aðgangur.
Stjórnin
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Netfang: rafstodin@rafstodin.is • Sími: 431-1201
ÖLL ALMENN RAFLAGNAVINNA
Á VESTURLANDI Skjót og góð þjónusta
Í liðinni viku voru tvær vegleg-
ar gjafir afhentar í stjórnsýsluhús-
inu í Búðardal. Kvenfélögin Guð-
rún Ósvífursdóttir og Fjólan í
Dalabyggð tóku höndum saman og
færðu Ungmennafélaginu Ólafi Páa
hundrað þúsund króna peningagjöf
til kaupa á tæki í þreksal sem félagið
rekur í Búðardal. Að auki gaf Kven-
félagið Fjólan Skátafélaginu Stíg-
anda hundrað þúsund krónur sem
renna skal til ungra skáta sem fara
á skátamót í Tydal í Þýskalandi í
sumar. sm
Kvenfélög í Dölum færa gjafir
Gjöf Kvenfélagsins Guðrúnar Ósvífursdóttur afhent félögum í Umf. Ólafi Páa.
Skátunum afhent gjöfin frá Fjólunni.
Hestamannafélagið Borgfirðing-
ur hélt bingó fyrir yngstu kynslóð-
ina á föstudagskvöldið í liðinni viku
í félagsheimilinu í Borgarnesi. Við
sama tækifæri voru veitt hvatning-
arverðlaun Borgfirðings. Komu
þau í hlut Kolbrúnar Kötlu Hall-
dórsdóttur.
Vel var mætt á bingóið og mikið
af góðum vinningum frá fyrirtækj-
um og einstaklingum á svæðinu
sem styrktu æskulýðsstarf félagsins.
Þetta voru Nettó, Landnámssetrið,
FOK, Borgarsport, Framköllunar-
þjónustan, Lífland, Límtré Vírnet,
Svanur Guðmundsson, Svanhildur
Svansdóttir, Hraunsnef og Hótel
Hamar. Félagið færir þeim öllum
þakkir. iss
Kolbrún Katla hlaut hvatningar-
verðlaun Borgfirðings
Kolbrún Katla Halldórsdóttir.
Amtmannshúsið og síðar Stapahúsið til sölu