Skessuhorn - 23.01.2019, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 201910
Kvikmyndahátíðin Borgarnes Film
Freaks hefst í Borgarnesi á morgun,
fimmtudaginn 24. janúar og stend-
ur yfir í þrjá daga. Opnunarkvöld-
ið hefst kl. 18:00 á Sögulofti Land-
námsseturs Íslands. Á föstudag og
laugardag verður sýnt í Félagsmið-
stöðinni Óðali og þá hefjast sýning-
ar kl. 19:00. Allt í allt verða sýnd-
ar 29 myndir frá 16 löndum. „Þessa
þrjá daga gefst gestum tækifæri á
að sjá ferskar og áhugaverðar kvik-
myndir, heimildarmyndir og stutt-
myndir sem koma hvaðanæva að úr
heiminum. Fjölbreytt og skemmti-
leg dagskrá þar sem hvert sýning-
arkvöld hefur sitt þema. Leikstjórar
kvikmynda ræða um verkin sín og
gestir fá að spyrja þá um allt milli
himins og jarðar,“ segir í tilkynn-
ingu frá forsvarsmönnum hátíðar-
innar.
Vert er að vekja sérstaka athygli á
kvikmynd Gunnhildar Lind Hans-
dóttur, Dagur í lífi Palla Egils. „Ég
hvet alla Borgnesinga og þá sem
þekkja til Palla sérstaklega til að
kíkja á hana í Landnámssetrinu að
kvöldi fimmtudags,“ sagði Hall-
dór Óli Gunnarsson, einn af skipu-
leggjendum hátíðarinnar, í Skessu-
horni í síðustu viku.
Hátíðin nýtur styrks úr Upp-
byggingarsjóði Vesturlands og að-
gangur að öllum sýningum Borg-
arnes Film Freaks er ókeypis. Þó
er rétt að taka fram að börn 12 ára
og yngri þurfa að mæta í fylgd með
forráðamönnum á hryllingsmynda-
kvöldið á föstudaginn.
Nánari dagskrá má sjá á Facebo-
ok síðu Borgarnes Film Freaks og
vefsíðunni www.fluxusdesigntribe.
com. kgk
Borgarnes Film Freaks
hefst á morgun
Kvikmyndin Dagur í lífi Palla Egils verður sýnd á opnunarkvöldinu á morgun,
fimmtudag. Ljósm. glh.
Þórhildur Þorsteinsdóttir, sauð-
fjárbóndi á Brekku í Norðurár-
dal, hefur eftir nærri sex ár sem
framkvæmdastjóri hjá Framleiðni-
sjóði landbúnaðarins sagt starfi
sínu lausu. Þórhildur tók upphaf-
lega til starfa hjá Framleiðnisjóði
í september 2006 sem starfsmað-
ur á skrifstofu. Fimm árum síðar
var hún gerð að skrifstofustjóra
og að lokum framkvæmdastjóra.
„Ég mun ljúka störfum í vor eða
sumar, þegar búið verður að ráða í
minn stað og ég verð búin að koma
nýjum starfsmanni inn í starfið,“
sagði Þórhildur þegar Skessuhorn
sló á þráðinn til hennar. Starfið
var auglýst í síðasta Bændablaði.
Spurð hvað taki við segir Þór-
hildur það enn óráðið. „Ég er ekki
með neitt fast í hendi eins og er,
en ýmsar hugmyndir eru í gangi.
Mér fannst ég standa á ákveðnum
tímamótum núna og mér fannst
bara tími til kominn að breyta til,
gera eitthvað nýtt og víkka sjón-
deildarhringinn,“ svarar hún. Þór-
hildur ásamt Elvari Ólasyni eigin-
manni sínum er með rúmlega 500
fjár á fóðrum og segist hún því
ekki eiga eftir að sitja með hendur
í skauti þegar störfum hennar hjá
sjóðnum lýkur. „Ég tek líka virk-
an þátt í félagsmálum bænda og sit
m.a. í stjórn Landssambands sauð-
fjárbænda og þar hefur nóg verið
að gera síðustu ár,“ segir hún.
arg
Hættir hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins
Þórhildur Þorsteinsdóttir hefur sagt upp starfi sínu sem framkvæmdastjóri hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Ljósm. aðsend.
Nú er allt á fullu í nýrri verksmiðju G.Run hf. í Grundar-
firði. Sjá má iðnaðarmenn í hverjum krók og kima í verk-
smiðjunni en stefnt er á gangsetningu um næstu mánaða-
mót. „Það verður öryggisúttekt hjá okkur síðustu vikuna í
janúar og strax að henni lokinni hefst vinnsla,“ segir Unn-
steinn Guðmundsson, vélstjóri og einn eigenda Guðmund-
ar Runólfssonar hf. í samtali við Skessuhorn. „Það er byrjað
að keyra hluta búnaðarins og svo eru prufukeyrslur á hverju
tæki jafn harðan og búið er að tengja,“ bætir hann við. „Það
er viðbúið að einhverjir örðugleikar verði í byrjun þegar um
svona stórt verkefni er að ræða, en það verður tekið á því jafn-
óðum.“ tfk
Styttist í gang-
setningu hjá GRun
Flokkunar- og pökkunarvélar frá Marel. Hér er unnið við frágang á einni af nýju vélunum. Hér þarf allt að vera á hreinu.
Hér eru menn íbyggnir á svip að fara yfir gang mála. F.v. Óskar
Helgason frá Ístaki, Kristján Guðmundsson, Guðmundur Smári
Guðmundsson, Rósa Guðmundsdóttir og Unnsteinn Guðmundsson.
Hér er verið að múra í eldri hluta hússins. Eyþór Benediktsson málari er hér einbeittur á svip. Unnið í hverjum kima.