Skessuhorn - 23.01.2019, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019 15
um. „Það er hátt hlutfall af Land
Rover bílum enn á götunum úti
um allan heim. Þrátt fyrir að fyrsti
Land Roverinn hafi verið smíðað-
ur 1948 en talið að nú sjö áratug-
um síðar séu um tveir þriðju þeirra
enn gangfærir. Land Rover var allt
frá byrjun hannaður með einfald-
leika og notagildi í huga og hef-
ur fyrir löngu skapað sér orðspor
fyrir seiglu og hæfileika til að tak-
ast á við fjölbreytt verkefni. Þeir
eru náttúrlega að hluta til smíð-
aðir úr áli, eru sterkir og einfald-
ir. Það er lítið um óþarfa í þessum
bílum, en allt sem verður að vera.
Þessir bílar voru um margt sérstak-
ir, mikil „rarítet“ eins og sagt er.
Kannski engin trillitæki, en reynd-
ust vel í ófærð og einkum voru ís-
lensku bændurnir margir með þá í
sinni þjónustu í áratugi. Það hefur
ófá kindin fengið far afturí á svona
bílum í gegnum tíðina, eða fóður-
bætispokar verið fluttir úr Kaup-
félaginu. Þá voru Landróverar
mikið nýttir í heyskap og beitt fyr-
ir rakstrarvélar, snúningsvélar og
heyvagna. Nú í seinni tíð hafa þeir
hins vegar týnt tölunni hér á landi
og er það synd.“
Gísli segist hlakka til að koma
bílnum á götuna og kveðst ætla að
nota hann þegar tilefni gefst til,
en fá inni fyrir hann þess á milli
í Brákarey hjá Fornbílafjélagi
Borgarfjarðar. „Pabbi átti númer-
ið M-122 frá því ég man eftir mér.
Það númer mun sóma sér vel á
honum. Kannski verður bíllinn svo
sjáanlegur í einu og einu Landa-
innslagi, hver veit? Fyrsti opin-
beri rúnturinn verður hins vegar í
kirkjugarðinn á Akranesi, að leiði
föður míns, sem var mjög áhuga-
samur um bílinn,“ segir Gísli að
endingu.
mm
Kíkt undir húddið. Skúffan og ýmislegt smálegt í sprautuklefanum hjá Hjálmi á Skarði. Hvert sem litið er er bíllinn sem nýr.
Hér er verið að raða framhlutanum saman. Hér er að mestu búið að rífa. Uppbygging, viðgerðir og margar
vinnustundir framundan.
Land Rover er skráður fyrir sex, þar af tvo hjá ökumanni.
Rif bílsins hófst 5. mars á síðasta ári. Hér eru þeir Ingi Björn Ragnarsson og Kári
Gíslason að hefja verkið.