Skessuhorn


Skessuhorn - 23.01.2019, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 23.01.2019, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019 27 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Leikið var í átta liða úrslitum Geysi- sbikars kvenna í körfuknattleik á sunnudag. Snæfell tryggði sér far- seðilinn í undanúrslit með sigri á Haukum í hörkuleik í Stykkishólmi en Skallagrímur hefur lokið þátttöku sinni eftir stórt tap gegn Stjörnunni á útivelli. Fundu sig ekki í sókninni Fyrsti leikur dagsins var viðureign Skallagríms og Stjörnunnar. Borg- nesingar fundu aldrei almennilega taktinn í sókninni og töpuðu að lok- um stórt, 71-49. Skallagrímskonur byrjuðu betur en Stjarnan náði und- irtökunum snemma leiks og leiddi með sex stigum eftir fyrsta leikhluta, 20-14. Skallagrímskonur byrjuðu annan fjórðunginn illa og heima- liðið jók forskot sitt. Borgnesingar komu til baka og átta stigum mun- aði í hálfleik, 37-29. Skallagrímskonur mættu ákveðnar til síðari hálfleiks og fylgdu Stjörn- unni hvert fótmál. En um miðjan þriðja leikhluta tók Stjarnan góðan sprett sem skilaði þeim 17 stiga for- ystu fyrir lokafjórðunginn, 56-39. Þær héldu Skallagrími í skefjum og um það bil sama forskoti það sem eftir lifði leiks og sigruðu að lokum með 22 stigum, 71-49. Skallagrímur hefur þar með lokið þátttöku sinni í bikarkeppninni að þessu sinni. Brianna Banks skoraði 17 stig og tók sex fráköst fyrir Skallagrím og Shequila Joseph var með 16 stig og 13 fráköst en aðrar komust ekki í tveggja stafa tölu á stigatöflunni. Danielle Rodriguez var atkvæða- mest í liði Stjörnunnar með 20 stig, sex fráköst og níu stoðsendingar og Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði 17 stig. Hörkuleikur í Hólminum Annar leikur dagsins var viðureign Snæfells og Hauka í Stykkishólmi, jafn og spennandi leikur þar sem hart var barist frá fyrstu mínútu. Snæfellskonur voru sterkari undir lokin og tryggðu sér sigurinn með góðum kafla í upphafi fjórða leik- hluta, 72-68. Mikið jafnræði var með liðunum strax í upphafi leiks. Gestirnir höfðu heldur yfirhöndina í fyrsta leikhluta en undir lok hans náði Snæfell góð- um spretti og átta stiga forskoti, 26-18. Snæfellskonur voru áfram sterkari framan af öðrum, en þegar nær dró hálfleiknum tóku gestirnir við sér. Með góðum kafla minnkuðu Haukar muninn í þrjú stig áður en flautað var til hálfleiks, 40-37. Haukar gerðu tvisvar sinnum harða atlögu að forystunni í þriðja leikhluta. Snæfellskonur stóðu hana af sér í bæði skiptin og leiddu með tveimur stigum fyrir lokafjórðung- inn, 53-51. Snæfell náði síðan frá- bærum 12-0 kafla í fjórða leikhluta og breyttu stöðunni í 65-51. En fjörið var ekki búið því Haukar tóku mikinn. Haukar lögðu allt í sölurnar og tókst af mikilli baráttu að minnka muninn í fjögur stig undir lok leiks. En nær komust þær ekki og Snæfell fór með sigur af hólmi, 72-68. Kristen McCarthy var atkvæða- mest í liði Snæfells með 33 stig og níu fráköst og Gunnhildur Gunn- arsdóttir skoraði 19 stig og tók átta fráköst. Lele Hardy skoraði 16 stig og tók 18 fráköst í liði gestanna, Klaziena Guijt var með 13 stig og fimm stoð- sendingar og Þóra Kristín Jónsdótt- ir skoraði tíu stig og tók sjö fráköst. Með sigrinum tryggðu Snæ- fellskour sér farseðilinn í undanúr- slit bikarsins, ásamt Val, Breiðabliki og Stjörnunni. Undanúrslitaleikirn- ir fara báðir fram í Laugardalshöll- inni í Reykjavík miðvikudaginn 13. febrúar. kgk Snæfell áfram í bikarnum en Skallagrímur úr leik Gunnhildur Gunnarsdóttir átti góðan leik þegar Snæfell tryggði sér farseðilinn í undanúrslit bikarsins. Ljósm. sá. Skallagrímur krækti í mikilvæg stig í Domino‘s deild kvenna þegar lið- ið sigraði Breiðablik, 84-74, í Borg- arnesi á miðvikudagskvöld. Borgnesingar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 13-3 áður en upphafsfjórðungurinn var hálfnað- ur. Þá tóku Blikar við sér og minnk- uðu muninn, en Skallagrímskonur höfðu áfram yfirhöndina og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leik- hluta, 24-17. Þegar leið á annan leikhluta tóku Skallagrímskonur góðan sprett og náðu að auka for- skot sitt í 17 stig áður en flautað var til hálfleiks. Staðan í hléinu var 50-33. Skallagrímskonur voru mjög öfl- ugar í þriðja leikhluta og rúlluðu yfir gestina. Jafnt og þétt juku þær forystuna í 26 stig, leiddu 74-48 eft- ir þriðja leikhluta og úrslit leiksins ráðin. Skallagrímskonur náðu sér ekki á strik í lokafjórðungnum en það kom ekki að sök. Blikar náðu að minnka muninn í tíu stig seint í leiknum en gerðu aldrei neina al- vöru atlögu að forystu Skallagríms- kvenna. Lokatölur urðu 84-74, Skallagrími í vil. Ines Kerin var stigahæst í liði Skallagríms með 24 stig og gaf hún fimm stoðsendingar að auki. Bri- anna Banks var með 23 stig, sex frá- köst og átta stoðsendingar, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 13 stig og tíu fráköst og Shequila Joseph 13 stig og átta fráköst. Í liði gestanna var Ivory Craw- ford með 21 stig, sjö fráköst og fimm stolna bolta. Thelma Lind Ásgeirsdóttir skoraði 15 stig, Sanja Orazovic skoraði 13 stig, tók sex fráköst og gaf sjö stoðsendingar og Björk Gunnarsdóttir var með tíu stig og fimm stoðsendingar. Með sigrinum kræktu Skalla- grímskonur í tíunda stig sitt í vetur. Liðið er í áttunda sæti, tveimur stig- um fyrir ofan Hauka í sætinu fyr- ir neðan en átta stigum frá Stjörn- unni í sætinu fyrir ofan. Næst leika Skallagrímskonur í kvöld, miðviku- daginn 23. janúar, þegar þær mæta toppliði Keflavíkur suður með sjó. kgk Mikilvægur sigur Skallagrímskvenna Ines Kerin átti góðan leik í mikilvægum sigri Skallagríms. Ljósm. Skallagrímur. Skagamenn unnu góðan sigur á Stál-úlfi, 126-109, þegar liðin mættust í elleftu umferð í 2. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var á Akranesi á sunnudagskvöld. Gestirnir byrjuðu betur, höfðu heldur yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta en ÍA var aldrei langt und- an. Stál-úlfur leiddi með sex stigum eftir upphafsfjórðunginn, 27-33. Skagamenn þjörmuðu að gestunum í öðrum leikhluta og náðu að jafna í 52-52 seint í fyrri hálfleik. Þeir komust síðan yfir með góðum leik og leiddu með fimm stigum í hálf- leik, 64-59. Skagamenn voru áfram sterkari í síðari hálfleik. Þeir náðu góðum kafla um miðjan þriðja leikhluta og leiddu með 21 stigi fyrir lokafjórð- unginn, 103-82. Gestirnir voru ákveðnir í fjórða leikhluta og náðu að minnka muninn í átta stig þeg- ar rúmar tvær mínútur voru eftir. Skagamenn áttu hins vegar loka- orðið, skoruðu tíu stig gegn þremur síðustu tvær mínúturnar og sigruðu að lokum með 17 stigum, 126-109. Chaz Franklin átti stórleik fyrir ÍA, skoraði 37 stig og gaf níu stoð- sendingar, Hjalti Ásberg Þorleifs- son skoraði 27 stig og tók sjö frá- köst, Jerome Cheadle skoraði 22 stig og tók ellefu fráköst í sínum fyrsta leik fyrir Skagamenn, Ragn- ar Sigurjónsson var með 18 stig og Jón Frímannsson tólf stig og tíu fráköst. Skagamenn sitja í fjórða sæti deildarinnar með 12 stig, jafn mörg og B-lið KR í sætinu fyrir ofan og Valur B í sætinu fyrir neðan. ÍA leikur næst gegn Reyni S. föstu- daginn 25. janúar næstkomandi. Sá leikur fer fram í Sandgerði. kgk Góður sigur ÍA Sigurreifir Skagamenn eftir leikinn gegn Stál-úlfi á sunnudagskvöld. Ljósm. Körfuknattleiksfélag ÍA.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.