Skessuhorn


Skessuhorn - 23.01.2019, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 23.01.2019, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019 21 Vísnahorn Allir þessir blessuðu sam- skiptatjámiðlar sem við flest erum sítengd og gætum illa án verið hafa vissulega marga kosti en sumum verða þeir nokkuð tímafrekir og skoðanamyndandi. Allavega tel ég að það sé spurning að hve miklu leyti skoðanir okkar eru ómótaðar af þeim. Magnús Halldórsson lýsti því svo hvað gerðist ef okkur skyldi nú verða það á að hugsa einhvern tímann pínu- lítið sjálfstætt: Ef að hugsun fer nú fram og fjas í hausnum brýst um, æðum við á instagram eða bara tístum. Stöku sinnum hef ég birt hér vísnagátur þó ég hafi svosem enga digra sjóði í að ganga af þeirri vöru. Hér kemur ein og það ég best veit eftir Ísleif Gíslason: Holdið skilur seint við sál svo er nafn í felum —. Faðir minn heitir fremst á nál fæddur á tveimur pelum. Ef einhverjum skyldi detta í hug að senda mér rétta ráðningu gátunnar (frekar en gefa mér ráðningu) er aldrei að vita nema mér detti í hug að víkja einhverju að viðkomandi. En áfram með smjörið. Á búnaðarnámskeiði sem haldið var í Þjórsártúni skömmu áður en bannlögin tóku gildi fyrir rúmum hundr- að árum ræddu menn bæði þau og fjölmargt annað (fleira fagrara og betra eins og Sölvi Helgason hefði sagt). Einn ræðumanna átaldi ungu mennina fyrir það að þeir „væru eitt- hvað svo sauðslegir.“ Þá varð þessi vísa til en höfundar er ekki getið: Þó margir séu á mót’onum hér má honum sannmáls unna, en eignarfall af sjálfum sér samt hann ætti að kunna. Fjölmörg mál voru tekin og krufin til mergjar á þessum búnaðarnámskeiðum í Þjórsártúni á sinni tíð. Svo áfengisbannið sem önnur vandamál heimsins. Albert í Skógum orti löngu síðar um Landeyinga og vætu og samhengi þar á milli: Landeyingum leiðist væta líða böl og þrautir. Það má ekki þar við bæta þeir eru nógu blautir. Kristján Runólfsson var einhvern tímann slæmur í skrokknum og velti fyrir sér hvað helst mætti til huggunar og hagsbóta verða. Tautaði við sjálfan sig: Ertu nú í höm og hupp, hálsi og baki frá þér. Heyrðu! þú skalt hella upp, á hæðarboxið á þér. Snæbjörn Kristjánsson í Hergilsey var eitt sinn á yngri árum við fjárgeymslu í eyðieyju. Hafði þá ekki með sér ritföng en orti nokkrar vísur. Með þessari lýsir hann ástandinu: Hér er hvorki blek né blað, böl er til að vita, stökur gleymast, af því að ekki er hægt að rita. Það er vafalaust margt sem mönnum hefur flogið í hug við fjárgæslu. Sumt kannske gáfu- legt, annað síður. Ekki veit ég hvort Móruvís- ur Þórarins Baldurssonar frá Hólmavaði eru til orðnar við fjárgæslu en þær lýsa allavega góðri matarlyst: Móra hún var mögnuð ær, margt til lista kunni, hangið þótti hennar lær. hnoss í okkar munni. Gráni minn var gæðaklár, gekk um blómga haga. Þjónaði mér í átján ár endaði niðr´í maga. Skjöldu þótti grasið gott gaf oss mjólk í könnu. Hennar lét ég hupp í pott hitt fór allt á pönnu. Nú er kisa næstum dauð nú er önduð læða. Reykt sem álegg oná brauð er hún kostafæða. Hundinn minn ég hef misst hann var nefndur Lappi. Austurlenska eldhúslist æfi ég nú af kappi. Víst ég átti vinnumann var hann býsna langur. Upp á fjöll hann ætíð rann er ég gerðist svangur. Griðkonan mín Gudda hét gikt var henni að bana. Vordag einn hún lífið lét leiður át ég hana. Örlög bóndans eru ljót allt með sama sniði. Hráan át ég af mér fót upp að mjaðmaliði. Alltaf þurfum við að taka til okkar einhverja næringu með einhverjum hætti þó við verð- um nú kannske ekki eins matlystug og sá sem þennan brag setti saman. Flestir vilja heil- brigt fóður og vottað af þar til bærum stofn- unum sem gnægð er af í ESB og víðar. Fyrir einhverja tilviljun uppgötvaðist fyrir nokkr- um árum að þrátt fyrir þykkan vottorðab- unka reyndist nautakjöt sem Evrópubúum var selt vera af hrossum að verulegu leyti og varð Guðmundi Stefánssyni tilefni eftirfarandi hugleiðingar: Blesa var báglega reitt og Branda, hún mjólkað’ei neitt. Svo var þeim slagtað en slátrið ei vaktað. Í hakkinu urðu þau eitt. Glúmur Gylfason sá það hinsvegar fyrir sér að vegna hnattlægrar stöðu vorrar myndi óhægt að komast hjá ýmsu af því sem við telj- um nauðsynjar þó jafnvel sé talið lúxus með öðrum þjóðum: Úr því byggjum ekki Spán ættu menn að vita að vart er hægt að vera án vatns og ljóss og hita. Það sér nú hver maður að án ljóss og hita getur okkur orðið kalt á veturna og þá er ósköp notalegt að kúra sig hjá hlýjum rúm- félaga. Pétur Stefánsson taldi sig þó verða fyr- ir vonbrigðum: Grær og dafnar gremjustund, gengur fátt að vonum, eiginkonan á sér hund og er að strjúka honum. Páll Ásgeir Ásgeirsson orti um mágkonu sína Halldóru Jónsdóttur í Grímshúsum Að- aldal sem sat um hríð í stjórn KÞ auk þess að vera bæði stórbóndi, kennari og kirkjuþings- fulltrúi: Ber af öðrum fögrum frúm fremst í sveitaranni, stjórnar bæði kirkju og kúm kaupfélagi og manni. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is En eignarfall af sjálfum sér - samt hann ætti að kunna! Um níu af hverjum tíu nemend- um í grunnskólum líður vel og flestir bera mikið traust til kenn- ara. Þetta sýnir ný rannsókn sem Rannsóknastofa í tómstundafræð- um við Háskóla Íslands birti í síð- ustu viku um líðan grunnskóla- nemenda. Rannsóknin nefnist Heilsa og lífskjör skólanema og er unnin að tilstuðlan Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar. Niðurstöð- urnar byggja á svörum rúmlega 7.000 nemenda á landinu öllu sem þátt tóku í rannsókninni á síðasta ári. Rannsókni þessi er lögð fyrir á fjögurra ára fresti fyrir nemendur í 6., 8. og 10. bekk. Rannsóknin er ein viðamesta rannsókn samtím- ans á sviði heilsu og heilsutengdr- ar hegðunar ungs fólks en rúmlega 40 lönd tóku þátt í fyrirlögn henn- ar árið 2018. Tíunda hluta líður illa Meðal niðurstaðna er að líðan nem- enda er almennt góð samkvæmt rannsókninni og flestum nem- endum virðist líða vel eða þokka- lega í skólanum en smávægileg- ur breytileiki er á milli landshluta og aldurshópa. Þannig svara um 90% nemenda að þeim líði þokka- lega eða mjög vel í skólanum. Um 10% nemenda segjast ekki líða vel í skólanum en 2,7-4,2% nemenda líður mjög illa samkvæmt rann- sókninni. Flestir nemendur telja að kennurum sé annt um sig eða um 81% nemenda í 6. bekk og 65% í 10. bekk sem er jákvæð niðurstaða og rímar vel við almenna vellíðan nemenda í skólum landsins. Lang- flestir treysta kennara sínum vel og virðist það eiga við nemendur í öllum landshlutum.“ Dregur úr hreyfingu með hækkandi aldri Í rannsókninni var spurt um lík- amsrækt og hreyfingu. Ef litið er til landsins í heild þá kemur í ljós að flestir nemendur í öllum ald- urshópum hreyfa sig reglulega. Athygli vekur hve margir nem- endur hreyfa sig a.m.k. 60 mínút- ur fjóra daga í viku eða oftar í öll- um aldurshópum sem verður að teljast mjög jákvæð niðurstaða. Nokkuð dregur úr hreyfingu með hækkandi aldri og í 10. bekk svör- uðu 8,2% nemenda því til að þau hefðu ekki hreyft sig undanfarna sjö daga. Matarvenjur nemenda virðast einnig vera nokkuð góð- ar en ávaxta- og grænmetisneysla er mjög almenn meðal nemenda og mjög lítill hluti þeirra segist aldrei neyta slíkra vara. Samkvæmt skýrslunni virðist vera aukning á neyslu orkudrykkja með hækkandi aldri á milli kannana. Álag og líðan Námsálag eykst á milli 6. og 10. bekkjar en 9,5% nemenda í 6. bekk telja álag í námi vera mikið en rétt tæpur fjórðungur nemenda í 10. bekk telja námsálag vera mik- ið. Einnig er spurt um heilsu nem- enda en talsverð aukning er á milli fyrirlagna á tíðni höfuðverkja með- al nemenda og fer tíðni verkja vax- andi frá 6. bekk. Lítill sem enginn munur er á milli landssvæða. Um 70% nemenda í öllum ár- göngum telja sig finna sjaldan eða aldrei fyrir depurð. Hins vegar ber að skoða þessar niðurstöður vel því marktæk hækkun er milli fyrirlagna í 6. og 10. bekk þar sem 10-15% nemenda í 6. bekk segjast upplifa depurð einu sinni eða oftar í viku en um 20% nemenda í 10. bekk grunnskóla. Þetta er aukning frá árinu 2006 þegar 5,8% nemenda í 10. bekk kváðust upplifa depurð daglega en árið 2018 er það hlut- fall komið í 7,6%. Séu niðurstöður skoðaðar eftir kyni nemenda kem- ur í ljós að stelpur eru mun líklegri til að finna fyrir depurð á hverjum degi og ástandið versnar eftir því sem unglingar eldast. Örlítið virðist draga úr svefnörð- ugleikum með hækkandi aldri þátt- takenda en engu að síður segjast um 10% allra nemenda í 10. bekk eiga erfitt með svefn á nærri því hverri nóttu. Í raun má segja að að- eins rétt rúmlega helmingur ung- linganna eigi sjaldan í vandræðum með svefn, þ.e. mánaðarlega eða sjaldnar. Einelti og áfengis- og vímuefnaneysla Nokkur breytileiki er milli lands- hluta á tíðni þolenda eineltis sem al- mennt er frekar lítið en tíðni dregst saman eftir því sem ungmenni eld- ast. Því má segja að vel hafi tekist til í eineltisforvörnum í íslenskum skólum. Áfengis- og vímuefnaneysla ung- menna á Íslandi er almennt lítil og um 70% nemenda hafa aldrei smakkað áfengi. Hins vegar reykja 5% nemenda í 10. bekk að staðaldri og 25% nemenda í 10. bekk hafa prófað rafrettur og er það hlutfall nokkuð misjafnt milli landshluta. Niðurstöður kannana Rannsókna og greiningar hafa einnig sýnt fram á góðan árangur í forvörnum á undanförnum áratugum. Eigi að síður þarf að viðhalda þeim árangri með áframhaldandi forvarnarstarfi þar sem nýjar áskoranir verða ávallt til staðar. mm Könnuðu ýmsa þætti sem hafa áhrif á líðan grunnskólabarna

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.