Skessuhorn - 23.01.2019, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019 11
BÓNDADAGURINN
ÚTSALAN
í fullum gangi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Í tilefni bóndadagsins bjóðum við
15% afslátt af herra ilm- og snyrtivörum
Gildir fimmtudag, föstudag og laugardag
WEST ICELAND
Travel
Ferðast um Vesturland 2019-2020
Fr
ee
Co
pyPublished by Skessuhorn - www.skessuhorn.is
Travel W
EST ICELA
N
D
- Ferðast um
Vesturland 2019-2020 - Your guide to W
est Iceland
West Iceland
Vesturland
Kynning á ferðablaðinu
Travel West Iceland 2019-2020
Útgáfuþjónusta Skessuhorns, í samstarfi við
Markaðsstofu Vesturlands, mun í apríl 2019 gefa
út ferðablaðið Travel West Iceland 2019-2020.
Blaðið verður á ensku og íslensku. Allir sem starfa
við ferðaþjónustu á Vesturlandi og vilja koma sér á
framfæri við ferðafólk eru hvattir til að vera með í
blaðinu og gera sig sýnilega fyrir gesti. Þau fyrir-
tæki sem eru skráðir samstarfsaðilar Markaðsstofu
Vesturlands fá sem hluta af félagsaðild 1/8 aug-
lýsingu í blaðinu. Auk þess eru stærri auglýsingar
boðnar til sölu. Blaðið verður litprentað í A5 broti,
96-112 blaðsíður og gefið út í 60 þúsund eintökum.
Efnistök í blaðinu verða með svipuðu sniði og
undanfarin ár. Þar verður almennur kafla um Vestur-
land, héraðslýsingar fyrir Akranes og Hvalfjörð,
Borgarfjörð, Snæfellsnes auk Dala og Reykhóla á
ensku og íslensku sem og ábendingar um mark-
verða viðkomustaði og náttúruundur. Kort verða á
sínum stað auk viðburðaskrár og fjallað um Vestur-
land að vetri.
Helstu dreifingarstaðir nú verða á höfuðborgar-
svæðinu, upplýsingamiðstöðvum um land allt,
aðkomuleiðum ferðamanna á Vesturland og síðast
en ekki síst á öllum helstu áningar- og ferðamanna-
stöðum á Vesturlandi sjálfu. Lager af blaðinu
verður ætíð til dreifingar hjá Markaðsstofu Vestur-
lands í Borgarnesi. Einnig verður blaðið aðgengi-
legt á www.skessuhorn.is og á www.west.is,
þaðan sem ferðaþjónustuaðilar geta hvenær sem
er hlaðið því niður og sent viðskiptavinum sínum á
rafrænu formi.
Lögð er áhersla á að auglýsendur noti alþjóðleg
ferðaþjónustumerki í auglýsingum sínum.
Auglýsingasala
Panta þarf auglýsingapláss tímanlega eða í síðasta
lagi fyrir 15. febrúar 2019. Boðið er upp á heil-
síðuauglýsingar, hálfsíðuauglýsingar, 1/4 auglýs-
ingar og 1/8 auglýsingar. Auglýsingaverð hefur
verið lækkað frá því í fyrra.
Um sölu auglýsinga sér Ingunn Valdís Baldurs-
dóttir í síma 433-5500 eða á netfangið
ferdablad@skessuhorn.is.
Athygli er vakin á því að Markaðsstofa Vesturlands
mun á þessu ári ekki gefa út bæklinginn West
Iceland - The Official Tourist Guide.
Við hlökkum sem fyrr til góðs samstarfs við ferða-
þjónustufyrirtæki og aðra samstarfsaðila á Vestur-
landi.
Útgáfuþjónusta Skessuhorns
Sími 433-5500 og ferdablad@skessuhorn.is.
1/1
1/2 1/4
1/8
Lestrarstundin Allir lesa var hald-
in í Brekkubæjarskóla á Akranesi
þriðjudaginn 8. janúar síðastliðinn,
í tengslum við hina árlegu Bóka-
messu Brekkubæjarskóla. Á lestrar-
stund taka allir nemendur og starfs-
fólk skólans sér bók í hönd á sama
tíma og lesa sér til yndisauka í tutt-
ugu mínútur. Eins og gengur og
gerist eru nemendur í mismunandi
kennslustundum þegar Lestrar-
stundin er haldin og einhverjir lesa
því við óhefðbundnar aðstæður.
Krakkarnir í 2. bekk voru til dæm-
is í íþróttatíma. Þeir tóku sér ekki
aðeins bók í hönd, heldur vasaljós
líka, því ljósin voru slökkt í íþrótta-
salnum og lesið við birtu frá vasa-
ljósunum.
Að sögn Guðrúnar Guðbjarna-
dóttur kennara er tvisvar sinnum
efnt til lestrarstundar sem þessarar
á hverju skólaári. Fyrst á haustin í
kringum 8. september, sem er al-
þjóðadagur læsis og síðan eftir ára-
mót þegar hin árlega Bókamessa
Brekkubæjarskóla er haldin í janú-
ar. „Bókamessan er jafnan tengd við
bækur sem nemendur hafa fengið í
jólagjöf. Það verkefni felur í sér að
krakkarnir velja bók og kynna fyr-
ir bekkjarfélögum sínum og gera
bókmenntaverkefni þar sem unn-
ið er með ýmis bókmenntahug-
tök. Markmiðið er að vekja áhuga
á bóklestri og bókmenntum al-
mennt og hvetja til aukins lestrar,“
segir hún í samtali við Skessuhorn.
„Þegar lestrarstundir eru haldnar
þá bjóðum við foreldrum að koma
og taka þátt og þeir hafa verið mjög
virkir að heimsækja okkur og lesa
með krökkunum,“ segir Guðrún
Guðbjarnadóttir kennari.
kgk
Vasaljósalestur á lestrarstund
í Brekkubæjarskóla
Nemendur 2. bekkjar Brekkubæjarskóla tóku sér bók og vasaljós í hönd á lestrarstundinni. Ljósm. Brekkubæjarskóli.