Skessuhorn - 23.01.2019, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 201918
Mannamót Markaðsstofa lands-
hlutanna var haldið í Kórnum í
Kópavogi síðastliðinn fimmtu-
dag. Viðburðurinn er haldinn
af markaðsstofunum í samvinnu
við flugfélagið Erni og Isavia.
Markmiðið er að skapa vettvang
fyrir ferðaþjónustuaðila til að
koma og kynna sér þá fjölbreyttu
ferðaþjónustu sem stunduð er á
landsbyggðinni, en einnig fyr-
ir ferðaþjónustuaðila að mynda
tengsl sín á milli.
Að þessu sinni tóku 44 ferða-
þjónustufyrirtæki á Vesturlandi
þátt, sem er 16% fjölgun frá síð-
asta ári og hafa þau aldrei ver-
ið fleiri. Skessuhorn tók nokkra
ferðaþjóna úr landshlutanum
tali. Flestir eru þeir sammála
um að heilt yfir hafi gengið vel
í greininni á liðnu ári eru bæði
bjartsýnir og fullir eftirvænting-
ar fyrir komandi tíð.
Vel bókað á Nýp
Þóra Sigurðardóttir á og rekur
gistiheimili að Nýp á Skarðsströnd
ásamt Sumarliða Ísleifssyni eigin-
manni sínum. Undanfarin ár hef-
ur gisting verið í tveimur herbergj-
um í gamla íbúðarhúsinu á Nýp,
en á síðasta ári var tveimur her-
bergjum bætt við. „Gistingin hef-
ur verið í tveimur litlum herbergj-
um í gamla húsinu með sameigin-
legu baði. Það hefur gengið alveg
ljómandi vel en í fyrra var bætt við
tveimur herbergjum í gamla fjós-
inu. Í þeim hluta hússins erum við
líka með sýningarrými þar sem við
komum til með að sýna bæði hönn-
un og myndlist og handverk hugs-
anlega líka. Það er mjög gaman að
geta tengt þennan sýningarhluta
inn í gestastarfsemina,“ segir Þóra
í samtali við Skessuhorn. Hún seg-
ir þessari viðbót hafa verið vel tekið
og almennt ganga vel. „Það hefur
gengið ótrúlega vel. Við erum með
opið yfir sumarið og fórum ekki af
stað með að kynna þessa viðbót fyrr
en allt var tilbúið í júlí. En viðtök-
urnar hafa verið góðar og við erum
ánægð með það,“ segir hún og
kveðst bjartsýn á komandi sumar.
„Það er vel bókað hjá okkur og allt-
af að bætast við bókanir. Við erum
erum bara kát með þetta og bjart-
sýn á sumarið,“ segir Þóra Sigurð-
ardóttir á Nýp.
Hestaferðir gengið
ótrúlega vel
Hjá Áshestum á Stóra-Ási í Borgar-
firði býðst ferðamönnum að fara í 90
mínútna hestaferðir með bökkum
Hvítár. „Farið er fram að Hraun-
fossum með leiðsögn. Ef fleiri en
fimm eru í hóp fara tveir leiðsögu-
menn með, einn fyrir framan og
einn fyrir aftan. Við pössum upp á
að fólki líði rosalega vel á baki. Það
fær kennslu áður en farið er af stað,
við kennum því hvernig á að stjórna
hestinum, öll öryggisatriði, hvern-
ig á að hegða sér á baki og láta vita
ef eitthvað er að. Við viljum hafa
öryggið í fyrirrúmi,“ segir Hösk-
uldur Kolbeinsson hjá Áshestum í
samtali við Skessuhorn. Hann segir
hestaferðirnar hafa gengið afar vel.
„Eiginlega alveg ótrúlega vel,“ seg-
ir hann. „Við byrjuðum fyrir bráð-
um tveimur árum síðan, 2017 og
vorum alveg splunkuný og eng-
inn vissi af okkur. Við höfðum ekki
mikið á milli handanna en byrjuð-
um bara með það sem við höfðum.
Síðan hefur þetta vaxið alveg ótrú-
lega hratt og seinasta sumar gekk
vonum framar,“ segir Höskuldur.
„Við erum með opið yfir sumarið,
þannig að það er kannski erfiðara
fyrir ferðaskrifstofur að stóla á okk-
ur, því við byrjum bara þegar við
getum og hættum þegar við getum
ekki haft opið lengur. Þannig að við
gerum fyrst og fremst út á lausatraf-
fíkina, meira en 90 prósent af okkar
kúnnum eru þeir sem sjá skiltið við
veginn og stoppa við. En við erum
það nálægt veginum og auðvelt fyr-
ir rútur að stoppa hjá okkur að það
hefur færst mjög í vöxt að við fáum
rútur til okkar. Það verður kannski
í framtíðinni að við förum að taka
á móti hópum, kynna starfsemina,
búið og fleira. Þótt fólk sé þá ekki
endilega að koma í hestaferðir þá
gætum við kynnt fyrir þeim hvern-
ig hestamennska á Íslandi er svona
í grófum dráttum,“ segir hann. Að-
spurður kveðst hann eiga von á að
gestum fjölgi á komandi sumri.
„Það sem við væntum er að fjölgi
enn frekar viðskiptavinum og þeim
sem bóka í gegnum bókunarkerf-
ið á heimasíðunni okkar. Það auð-
veldar okkur mikið hvað undir-
búning varðar. Þá getum við ver-
ið tilbúin með hrossin sem þýð-
ir minni bið fyrir viðskiptavinina.
Eftir því sem bókanirnar færast
meira þangað verður þetta alltaf
þægilegra,“ segir hann og kveðst
hafa lært mikið á þessum tveimur
árum. „Við byrjuðum náttúrulega
sem algerir nýgræðingar og þetta
er rosalegur skóli,“ segir Höskuld-
ur Kolbeinsson að endingu.
Snæfellsnes Excursions
bætir við ferðum
Hjalti Allan Sverrisson er eigandi
Rútuferða í Grundarfirði, sem aka
ferðamönnum undir nafninu Snæ-
fellsnes Excursions. Ferðir upp á
Snæfellsjökul hafa verið fastur lið-
ur í starfsemi fyrirtækisins undan-
farin ár, en á komandi sumri verð-
ur ný ferð í boði. Ber hún heitið
Shark and Lava Safari. „Þá er ekið
frá Grundarfirði um Berserkja-
hraun, Kerlingaskarð og Kolg-
rafafjörð. Það er svæði sem er al-
veg ónýtt til þessa, þannig séð.
Við ákváðum að prufa það. Top
of the Diamond, jöklaferðin okk-
ar, hefur verið mjög vinsæl og bók-
anir í nýju ferðina gefa líka góð
fyrirheit og við erum bjartsýn á
hana fyrir þetta fyrsta sumar sem
hún er í boði,“ segir Hjalti. „Við
erum með skemmtiferðaskipin
sem koma í Grundarfjörð og flest
þeirra eru með jöklaferðina okk-
ar en við erum að reyna að fá fólk
af götunni líka. Núna erum við að
reyna að koma okkur upp aðstöðu
í Grundarfirði þar sem við erum
með verkstæðið okkar. Þar ætlum
við að búa til karnivalstemningu,
þar sem verður rúta, pylsuvagn og
fólk getur farið á salerni og við ætl-
um að byggja yfir þetta allt sam-
an. Þetta verður agalega kósý og
þægilegt,“ segir Hjalti. „Þetta er
búið að ganga alveg ótrúlega vel.
Við vorum á Arnarstapa, keyrðum
alltaf upp þar, en ákváðum að gera
þessa aðstöðu hjá okkur í Grund-
arfirði. Listó er beint á móti okk-
ur og kajakaferðirnar hinum meg-
in við okkur. Þetta er að verða aðal
ferðamannagatan í Grundarfirði,“
segir hann og brosir. Aðspurður
kveðst hann bjartsýnn á komandi
sumar. „Ég er mjög bjartsýnn. Það
er aukning í skipakomum og svo
erum við að reyna að komast bet-
ur inn á lausatraffíkina til að dekka
veturinn meira,“ segir Hjalti Allan
Sverrisson.
Hvalfirðingar taka
höndum saman
Hjónin Brynjar Sigurðarson og
Hekla Gunnarsdóttir eru eigendur
Hótels Laxárbakka í Hvalfirði. Þau
hafa rekið hótelið undanfarin tvö og
hálft ár eða svo. Brynjar segir í sam-
tali við Skessuhorn að síðasta ár hafa
verið gott hjá Hótel Laxárbakka.
„Það er búið að ganga vel. Haustið
var svakalega fínt og nánast fullt hjá
okkur yfir hátíðirnar, bæði um jól og
áramót. Þó síðasta sumar hafi far-
ið rólega af stað og júní verið svo-
lítið sérstakur, með bæði rigningu
Mannamót markaðsstofanna var haldið á fimmtudaginn
Aldrei fleiri þátttakendur frá Vesturlandi
Mannamót í ferðaþjónustu
Þóra Sigurðardóttir rekur gistiheimilið að Nýp á Skarðsströnd ásamt Sumarliða
Ísleifssyni, eiginmanni sínum. Ljósm. kgk.
Ragnhildur Anna Ragnarsdóttir og Höskuldur Kolbeinsson frá Áshestum í Borgar-
firði. Ljósm. mm.
Hekla Gunnarsdóttir og Brynjar Sigurðarson, eigendur Hótels Laxárbakka í Hval-
fjarðarsveit. Ljósm. kgk.
Hjalti Allan Sverrisson, eigandi Rútuferða í Grundarfirði, segir gesti Mannamóts
frá nýrri ferð Snæfellsnes Excursions. Ljósm. mm.
Mæðginin Martha Eiríksdóttir og Davíð Andrésson kynna starfsemi Brúaráss fyrir gesti Mannamóts. Ljósm. kgk.