Skessuhorn - 23.01.2019, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019 23
út í lífið,“ segir Sindri og hlær. „Ég
hef fengið að heyra það frá mörgum
foreldrum, og starfsfólkinu mínu, að
það sé mikill skóli að koma hingað
að vinna. Þetta er mikil vinna og get-
ur verið hörku púl,“ bætir hann við.
Af tilefni 30 ára afmælis fyrirtæk-
isins hefur Sindri ákveðið að halda
veislu á næsta ári og bjóða öllum sem
hafa á einhverjum tímapunkti unnið
hjá Sigur-görðum. „Ég bjó til hóp á
Facebook þar sem ég bætti við öll-
um þeim sem hafa unnið hjá mér og
er kominn með 63 manns. Það eru
þó nokkrir til viðbótar sem ekki eru
á Facebook. Yfir 30 ára tímabil er
ég ánægður með þessa tölu. Það eru
margir sem koma ár eftir ár, í svona
fimm til sjö ár. Því er talan svona
lág og það þykir mér jákvætt,“ seg-
ir hann.
Stelpur í meirihluta
Árið 2003 réði Sindri fyrstu stelpuna
til starfa og segir hann það hafa opn-
að augu hans fyrir því hversu góð-
ur starfskraftur stelpur gætu ver-
ið. „Ég réði mágkonu mína sem var
hörkudugleg og þá sá ég að stelpur
gætu vel unnið svona vinnu. Tveim-
ur árum síðar voru stelpur í meiri-
hluta starfsmanna hjá mér og svo-
leiðis hefur það verið síðan,“ seg-
ir Sindri. Flestir sem koma að vinna
hjá Sigur-görðum eru að stíga fyrstu
skrefin á vinnumarkaði. Aðspurður
hvort hann hafi ekki lent í því að fá
starfsmann sem kann ekki að vinna
segir hann það vissulega koma fyrir.
„Sumir kunna að vinna og hafa aug-
ljóslega fengið að aðstoða heima hjá
sér. Aðrir hafa örugglega ekki feng-
ið að gera mikið og kunna því ekki
mikið. En margir þeirra sem kunnu
ekkert að vinna fyrst eru meðal bestu
starfskrafta sem ég hef haft,“ segir
Sindri.
Byggir skemmu
Framundan er mikil uppbygging hjá
Sigur-görðum en á síðasta ári hófst
Sindri handa við byggingu á skemmu
undir starfsemina. Skemman verð-
ur 663 fermetrar að stærð með 4,8
metra háum veggjum og 7,7 metra
upp í mæni á húsinu. „Ég hef ver-
ið að stækka fyrirtækið hægt og ró-
lega síðustu ár og nú er bara kominn
tími til að byggja yfir vélar og tæki
og gera almennilega vinnuaðstöðu
fyrir starfsfólk,“ segir Sindri bratt-
ur og bætir því við að nú vanti hann
bara fleira starfsfólk í vinnu allt árið.
Hann er með einn skrúðgarðyrkju-
fræðing í vinnu en myndi vilja ráða
annan. „En skortur á húsnæði hér í
sveitinni er ein ástæða þess að það er
erfitt að fá fólk til vinnu,“ segir hann
og bætir því við að nú sé hann að
íhuga að byggja húsnæði fyrir starfs-
fólk. „Ég sé í raun ekki annað í stöð-
unni en að útvega sjálfur húsnæði
svo ég geti fengið starfsfólk.“
arg
Framkvæmdir hafa staðið yfir í vetur framan við húsnæði Sýslumannsins á Vestur-
landi.
Lagfært við bílastæðin við Hraunfossa.
Hellulagt í vetur við nýbygginguna við Digranesgötu í Borgarnesi.
Stígagerð í Fossatúni í Borgarfirði.
Hér er verið að leggja lokahönd á nýja innkeyrslu við einbýlishús.