Skessuhorn - 18.09.2019, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 18. SEpTEMBER 201924
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Laugardaginn 28. september kl. 13
verður opnuð ný myndlistarsýning
í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgar-
fjarðar. Nefnist hún „Litabækur og
litir“ og er fyrsta einkasýning Önnu
Bjarkar Bjarnadóttur sem ann-
ars starfar sem framkvæmdastjóri
hjá Advania en er einnig íþrótta-
fræðingur fyrir utan að sækja nám
í myndlist. Anna Björk er fædd og
uppalin í Borgarnesi.
Anna Björk segir sjálf svo um
verkefnið: „Meginuppistaðan á
sýningunni verður myndir úr Borg-
arnesi, en líka einhverjar úr öðrum
bæjum og svo landslagsmyndir.
Heiti sýningarinnar er lýsandi fyrir
ferðalagið sem ég er á þessi misser-
in, að heimsækja aftur Önnu Björk
7 ára eða þar um bil, sem var alltaf
að teikna og lita. Það má segja að
ég sé í heimsókn hjá æskunni, bæði
í vali á myndefni úr Borgarnesi og
Borgarfirðinum, en einnig í vatns-
litunum, sem voru fyrstu litirnir
sem ég prófaði til að mála með sem
krakki, því þeir voru svo einfaldir
og aðgengilegir. Svo hef ég gripið í
myndlistina öðru hverju á æviskeið-
inu, var komin inn í myndlistahá-
skóla í Búdapest á sínum tíma, en
guggnaði og fór í íþróttafræðina í
staðinn og snerti varla pensil né
blýant í mörg herrans ár.“
Anna Björk segir að svo þegar
hún flutti aftur í Borgarnes 1994 á
fullorðins aldri, hafi hún verið dreg-
in inn í nýstofnað Handverksfélag-
ið Hnokka, hvar hún fór á málara-
námskeið og tók þátt í samsýningu
meðal annars í Reykholti. „Þessar
tilraunir þá urðu til þess að ég fór að
keyra vikulega í Myndlistaskólann í
Reykjavík, þar sem ég sótti öll nám-
skeið sem í boði voru næstu árin í
teikningu, módelteikningu og síðar
olíumálun. Ég var með vinnustofu
í nokkur ár með öðrum listamönn-
um, fyrst í Auðbrekku í Kópavogi
og síðar í gömlu prentsmiðjunni í
Suðurgötu í Hafnarfirði þar sem ég
málaði olíumálverk. Þegar örverpið
fæddist svo 2011 varð ég að hætta
því vegna tímaleysis og vegna þess
hve erfitt er að vera með olíulitina
upp um allt í íbúð með ungabarni.
Þá fór ég aftur að prófa vatnslitina,
sem hægt er að grípa í hvenær sem
er og án mikils umstangs og komst
að því sem auðvitað er raunin; þeir
eru ekki eins einfaldir og þeir virð-
ast í fyrstu. Þú veist aldrei alveg
hvernig útkoman verður og færð
ekki margar tilraunir, því erfitt er
að leiðrétta mistök. Hins vegar eru
þeir svo gefandi einmitt vegna þessa
og vegna þeirrar einstöku birtu og
flæði lita sem hægt er að skapa með
þeim. Mér finnst ég vera aftur orð-
in sjö ára þegar ég fer að leika mér
með liti og vatn og ég endurupplifi
og ferðast um æskuslóðir og minn-
ingar með því að mála þær.“
Íbúar og gestir Borgarfjarðar
hafa gegnum tíðina verið duglegir
að sækja listsýningar í Safnahúsinu
og margir listamenn í héraðinu hafa
sýnt þar. Hallsteinssalur er kenndur
við listvininn Hallstein Sveinsson
sem gaf Borgnesingum stórmerkt
listaverkasafn sitt á sínum tíma.
Sýning Önnu Bjarkar verður
opin kl. 13.00-16.00 á opnunar-
daginn 28. september og eftir það
kl. 13.00-18.00 alla virka daga fram
að 29. október eða á öðrum tímum
fyrir hópa eftir samkomulagi.
mm/gj
Um langt árabil hafa Snorrastofa,
Landnámssetur Íslands og Símennt-
unarmiðstöðin á Vesturlandi stað-
ið fyrir námskeiði um fornsögur,
sem farið hefur fram yfir vetrarmán-
uðina til skiptis í Landnámssetri og
Snorrastofu. Námskeið vetrarins
2019-2020 verður um Sturlu Þórð-
arson og hans þátt í Sturlungu og
það þótti því vel við hæfi að leita
til nýstofnaðs Sturlufélags í Dölum
um samstarf. Þannig breikkar enn
grundvöllur þessa ánægjulega og
frjóa mennta- og menningarstarfs á
Vesturlandi og aðstandendur nám-
skeiðsins horfa bjartsýnir til vetrar-
ins.
Námskeiðið verður haldið sex
sinnum í vetur eins og venjulega og
leiðbeinendur þess koma úr ýmsum
áttum, allir þekktir sérfræðingar hver
á sínu sviði. Þeir eru Einar Kárason
rithöfundur, Guðrún Ása Gríms-
dóttir fyrrv. rannsóknarprófessor við
Árnastofnun, Guðrún Nordal for-
stöðumaður Árnastofnunar, Sverr-
ir Jakobsson sagnfræðingur, Úlfar
Bragason fyrrv. rannsóknarprófessor
við Árnastofnun og Þórdís Edda Jó-
hannesdóttir íslenskufræðingur. Síð-
asta kvöld vetrarins verður haldið í
Vínlandssetri í Búðardal, sem þar er
í burðarliðnum.
Allir eru boðnir velkomnir að
sækja námskeiðið, það kostar 21
þúsund krónur og skráning fer
fram hjá Símenntunarmiðstöð
Vesturlands. Allar nánari upp-
lýsingar verða ennfremur veitt-
ar í Viðburðaskrá Snorrastofu
2019-2020 og á heimasíðu stofn-
unarinnar.
-fréttatilkynning
Vatnslitamynd úr Borgarnesi.
Anna Björk opnar myndlistar-
sýningu í Safnahúsinu
Anna Björk Bjarnadóttir.
Teikningu af Sturlu Þórðarsyni gerði
Ingólfur Örn Björgvinsson.
Námskeið um Sturlu
Þórðarson og Sturlungu
Fimmtudaginn 19. september
klukkan 20, mun tónlistarhópurinn
Umbra heimsækja Akranes. Umbra
mun flytja blandaða efnisskrá af
trúarlegri og veraldlegri miðalda-
tónlist frá Evrópu í bland við ís-
lensk þjóðlög. Tónlistarhópurinn
Umbra var stofnaður árið 2014 og
er skipaður þeim Alexöndru Kjeld
sem spilar á kontrabassa, Arngerði
Maríu Árnadóttur sem leikur á org-
el og keltneska hörpu, Guðbjörgu
Hlín Guðmundsdóttur fiðluleikara
og Lilju Dögg Gunnarsdóttur sem
spilar á flautu og sér um slagverk-
ið. Hún er einnig aðalsöngkona
Umbru en þess má geta að allar eru
þær góðar söngkonur og fá áheyr-
endur að njóta þess.
Umbra hlaut Íslensku tónlistar-
verðlaunin árið 2018 fyrir plötuna
Sólhvörf en hún var valin þjóð-
lagaplata ársins. Þar tekur sveit-
in Umbra hlustandann í heillandi
ferðalag þar sem tónlist tengd
dimmum vetrardögum er í for-
grunni. Virkilega vönduð plata þar
sem lögin eiga það sameiginlegt að
vera framúrskarandi útsett og flutt.
Tónlistarkonunrar hafa allar
brennandi áhuga á fornri tónlist
jafnt þeirri nýju. Ólíkar víddir þess-
arar tónlistar eru kannaðar í eigin
útsetningum hópsins og í spuna, og
hefur hópurinn skapað sinn eigin
hljóðheim sem hefur fornan blæ.
Aðgangseyrir er kr. 2.500 en Kal-
mansvinir greiða kr. 2.000. Miða-
sala er við innganginn.
-fréttatilkynning
Umbra með tónleika í Vinaminni