Skessuhorn - 18.09.2019, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 18. SEpTEMBER 2019 13
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Við viljum gjarnan heyra í listamönnum og frá vinnustöðum sem vilja standa
að listviðburðum t.d. með því að bjóða ungu tónlistarfólki að stíga á stokk
eða glæða staverkum svo eitthvað sé nefnt.
Sendið okkur línu á Facebook:
Vökudagar á
Akranesi eða með tölvupósti á mannlif@akranes.is.
Minnum á að tekið er við tilnefningum fyrir Menningarverðlaun
Akraneskaupstaðar 2019 á www.akranes.is.
Menningarhátíðin Vökudagar mun fara fram
á Akranesi dagana 24. október – 3. nóvember
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar
samþykkti á fundi sínum á þriðju-
dag í liðinni viku ósk Gerðar Jó-
hönnu Jóhannsdóttur, bæjarfull-
trúa Samfylkingarinnar, um sex
vikna tímabundið leyfi frá störf-
um við bæjarstjórn af persónuleg-
um ástæðum. Leyfið er veitt fyr-
ir tímabilið 9. september til 22.
október. Nýtt kjörbréf hefur ver-
ið gefið út til handa varabæjar-
fulltrúanum Kristni Halli Sveins-
syni 1. varabæjarfulltrúa Samfylk-
ingarinnar. Kristinn Hallur tekur
auk sætis í bæjarstjórn við nefndar-
formennsku í velferðar- og mann-
réttindaráði og tekur sæti í skipu-
lags- og umhverfisráði. Valgarður
Lyngdal Jónsson tekur tímabund-
ið við sæti í bæjarráði.
Harma þung orð
sem féllu
Fulltrúar Samfylkingar og Fram-
sóknar og frjálsra í meirihluta
bæjarráðs lögðu fram eftirfar-
andi bókun: „Á fundi bæjarstjórn-
ar þann 27. ágúst síðastliðinn féllu
orð úr ræðustóli sem betur hefðu
aldrei verið sögð. Bæjarfulltrúar
Samfylkingar og Framsóknar og
frjálsra harma þetta og taka ekki
undir þau orð sem þar féllu í garð
bæjarfulltrúa Rakelar Óskarsdótt-
ur. Það kom á óvart að umræð-
ur á fundinum skyldu þróast í þá
átt sem þær gerðu, enda eru bæj-
arfulltrúar í bæjarstjórn Akraness,
hvort sem þeir eru í meirihluta eða
minnihluta, vanir því að vinna vel
saman og vera málefnalegir í um-
ræðum. Bæjarfulltrúar Samfylk-
ingar og Framsóknar og frjálsra
vilja taka fram að þeir bera fullt
traust til bæjarfulltrúa Rakelar
Óskarsdóttur og vona að þetta mál
varpi ekki skugga á áframhaldandi
samstarf meirihluta og minnihluta
í bæjarstjórn. Við erum öll mann-
leg og getur orðið á, en allir eiga
skilið að fá annað tækifæri. Gerður
Jóhanna hefur sinnt störfum sín-
um sem bæjarfulltrúi og formaður
velferðar- og mannréttindaráðs af
mikilli alúð og staðið sig með prýði
og berum við fullt traust til henn-
ar ákveði hún að koma til starfa að
nýju að loknu leyfi.“
Kallar á endurskoðun
siðareglna
Sömuleiðis lagði minnihlutinn
fram bókun: „Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins harma mjög þá
hegðun og þau orð sem bæjar-
fulltrúi Gerður Jóhanna Jóhanns-
dóttir viðhafði og lét falla í ræðu-
stól á bæjarstjórnarfundi þann 27.
ágúst sl. í garð annars bæjarfull-
trúa. Ummælin voru ekki í þeim
anda samstarfs sem bæjarfulltrú-
ar á Akranesi hafa jafnan við-
haft og rýra án efa traust almenn-
ings á kjörnum fulltrúum. Það er
þó hvers bæjarfulltrúa fyrir sig að
ákveða með hvaða hætti hann axl-
ar ábyrgð á gjörðum sínum. Upp-
hlaup sem þetta kallar hins vegar,
að mati undirritaðra, á endurskoð-
un á siðareglum kjörinna fulltrúa.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
fagna traustsyfirlýsingu bæjarfull-
trúa meirihlutans til handa bæjar-
fulltrúa Rakel Óskarsdóttur sem er
skref í átt að endurheimt trausts og
áframhaldandi góðu samstarfi allra
bæjarfulltrúa í bæjarstjórn Akra-
ness.“ mm
Bæjarfulltrúi í sex
vikna leyfi
Skjámynd af myndupptöku frá bæjarstjórnarfundi 27. ágúst.
Hljómsveitin Meginstreymi sendi
á laugardaginn frá sér sína aðra
smáskífu, en hún nefnist Í huga
þér. Lagið er komið á Spotify, You-
tube og allar helstu streymisveit-
ur. Fyrsta smáskífa Meginstreymis
kom út í fyrra og ber nafnið Það
sem enginn vita má. Það lag kom
út í tveimur útgáfum, annars vegar
með hljómsveit og einnig acapella.
Þess má geta að gítarleikarinn góð-
kunni Gunnar „Gúi“ Ringsted,
sem lék forðum daga með Hljóm-
sveit Ingimars Eydal, kom í stúdíó-
ið og lék á gítar í því lagi. Það sem
enginn vita má er einnig hægt að
finna á Youtube, Spotify o.s.fv., en
það lag kom einnig út í takmörk-
uðu tölusettu upplagi á 7” vinyl þar
sem það hentaði þema lagsins vel.
Fengu mun færri eintak en vildu en
nú er eingöngu um stafræna netút-
gáfu að ræða.
Á nýjustu smáskífu sína fékk
Meginstreymi til liðs við sig hóp
aðstoðarmanna; gítarleikarann
Reyni Hauksson, sem áður starfaði
með meginþorra meðlima Megin-
streymis í hljómsveitinni Eldberg
og söngvarann Jacób De Carmen,
en þeir félagar voru ásamt fleirum
spænskum hljóðfæraleikurum á
ferð um landið í byrjun sumars að
kynna undraheima flamencotón-
listarinnar. Eftir eina tónleikana
var Jacóbi dröslað dauðþreyttum
inn í hljóðver um miðja nótt til að
syngja inn á lagið. Einnig koma
við sögu í laginu Í huga þér þeir
Róbert Aron Björnsson saxafón-
leikari, Matthías Hemstock, einn
helsti jazz- trommari og slagverks-
leikari landsins, og pétur Hjalte-
sted alt mulig mand sem er aðdá-
endum Meginstreymis góðkunnur
sem afleysingar- hjómborðaleikari
sveitarinnar.
Lagið ,,Í huga þér” hefur feng-
ið góðar viðtökur og sér í lagi hjá
yngstu kynslóðinni, en Megin-
streymi hafa borist myndbönd af
krökkum að dansa við lagið í gegn-
um Snapchat reikning sinn.
Aukinheldur er gaman að geta
þess að hljómsveitin Meginstreymi
festi nýverið kaup á sérútbúinni
Toyota- hljómsveitarbifreið og oft
má sjá krakkaskara myndast til að
taka á móti hljómsveitinni við út-
jaðar þess bæjarfélags eða sveitar-
félags sem hljómsveitin heimsækir.
„Það er oft mikil eftirvænting hjá
krökkunum þegar við mætum að
spila,“ segir Jakob Grétar Sigurðs-
son, trymbyll sveitarinnar.
Meginstreymi hefur síðustu ár
leikið á dansleikjum um allt land,
allt frá almennum dansleikjum,
árshátíðum, brúðkaupum og þorra-
blótum yfir í grunnskólaböll og
meira að segja á dansleikjum fyrir
allra yngstu kynslóðirnar. Sveitin
er einnig orðin þekkt fyrir sérsnið-
in skemmtiatriði sín en oft er leyni-
gestur í för með sveitinni á ferðum
hennar um landið.
Það er margt framundan hjá
Meginstreymi, dansleikir víðsveg-
ar um landið og fleiri lög væntan-
leg. Hægt er að fylgjast með Meg-
instreymi á Instagram, Snapchat
og Facebook og hafa samband við
sveitina í gegnum Facebook-síðu
hennar eða á meginstreymi@gma-
il.com.
-fréttatilkynning
Meginstreymi sendir
frá sér nýtt lag
Fyllt á fyrsta tankinn á nýja hljóm-
sveitarbílnum eftir að bifreiðin var
keypt fyrir utan bensínsölu N1 á
Selfossi í mars 2019. F.v. Ásmundur
Svavar Sigurðsson, Kristján Ingi
Arnarsson og Heiðmar Eyjólfsson sem
dælir. Ljósm. Jakob Grétar Sigurðsson.
Plötuumslag smáskífunnar Í huga þér, sem er önnur smáskífa Meginstreymis. Ljósm. Kristján Gauti Karlsson.
Meginstreymi á norðurleið. F.v. Heiðmar Eyjólfsson, Jakob Grétar Sigurðsson,
Ásmundur Svavar Sigurðsson og Kristján Ingi Arnarsson. Ljósm. Meginstreymi.