Skessuhorn - 18.09.2019, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 18. SEpTEMBER 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Föstudagurinn
þrettándi - alla daga
Hjúkrunarfræðingurinn Elín Tryggvadóttir starfar á bráðamóttöku Land-
spítalans í Fossvogi. Hún er ein af þessum hvunndagshetjum sem þar starf-
ar við aðstæður sem eru hreint út sagt ótrúlegar og alls ekki mönnum bjóð-
andi. Þar er sífellt yfirálag á starfsfólki, þröngur og úrsérgenginn húsakost-
ur og ástandið raunar líkara vígvelli en heilbrigðisstofnun. Ofan á veikindi
bætast slys og raunar nánast öruggt að flesta daga eru sjúklingar fleiri en
aðstæður leyfa. Svo þegar dagurinn er föstudagurinn þrettándi batnar það
ekki. Elín skrifaði pistil þar sem hún sagði m.a.: „Föstudagurinn þrettándi
september var erfiður dagur í sögu Landspítala. Starfsfólk bráðamóttöku
veit að þjóðsögur um föstudaginn þrettánda eru sannar og þegar dagurinn
ber upp á fullu tungli er voðinn vís á vaktinni.“ Bætti hún við að; „nýtt og
ömurlegt“ met hafa verið slegið á deildinni þegar 41 sjúklingur var lagður
inn, en á móttökunni eru 36 rúm. „Það þýðir að deild sem veltir um 100
skjólstæðingum á sólarhring var yfirfull af sjúklingum sem hefðu átt að
liggja á legudeildum og ekkert svigrúm var fyrir starfsfólk að taka á móti
nýjum sem samt streymdu á spítalann bæði í einkabílum sem sjúkrabílum,“
skrifaði Elín og benti á að þetta þýði einfaldlega að eina bráðamóttaka suð-
vesturhornsins hafi verið óstarfhæf þennan dag.
Sjálfur hef ég farið nokkrar ferðir á bráða- og slysadeildina á liðnum
vikum, sem aðstandandi. Konan mín varð fyrir því óláni fyrir um mánuði
að fótbrotna illa. Þurfti hún að fara í aðgerð til að hægt væri að láta beinin
gróa rétt saman. En þegar þetta henti kom í ljós að það voru 22 einstak-
lingar í bið til að komast í bráðaaðgerð á spítalanum. Kvöldið sem óhappið
varð fékk hún gifs en ekki innlögn. Það var allt fullt. Ekki var um annað
að ræða en að hún færi við illan leik upp í einkabílinn og heim. Svo aftur
suður næsta dag til sneiðmyndatöku – og aftur send heim! Tæpum þremur
dögum síðar var hún heppin, komst í aðgerð.
Þegar fólk þríbrýtur á sér fót finnur það eðli málsins mikið til. Þessu
fylgja verkir sem þeir einir vita sem reynt hafa. En íslenska heilbrigðiskerf-
ið er bara ekki betur statt en svo að það ræður ekki við ástandið og því þykir
sjálfsagt mál að vísa slösuðu fólki út aftur og segja við það; „röðin kemur að
þér... einhvern tímann!“ Kerfið er undirmannað, húsakostur er fyrir löngu
orðinn úr takti við álagið og þessu fylgir upplausnarástand, líkt og Elín
Tryggvadóttir lýsir um föstudaginn þrettánda. En það þarf ekki föstudag-
inn þrettánda til. Ástandið er viðvarandi og því allskostar óviðunandi.
Í pistli sínum tekur Elín Tryggvadóttir dæmi um aðra ríkisstofnun.
Þennan sama föstudag þrettánda var fólk á þeirri stofnun í skemmtiferð,
allan daginn, á kostnað okkar skattborgaranna. „Fólk sem vinnur með tölur
verður að fá að hvílast og lyfta sér upp. Hlaða batteríin og tengjast vinnufé-
lögum. Þessi sama stofnun hefur ítrekað skilað verulegum rekstrarafgangi
síðustu ár. Á þessari stofnun er starfsemin alltaf eins, engar óvæntar breyt-
ur, enginn óvæntur kostnaður,“ skrifar Elín sem engan veginn er skemmt
yfir þessari hrópandi mismunun í boði launagreiðandans.
Á fallegum dögum tala stjórnmálamenn um að forgangsraða verði í ríkis-
rekstri. Ég held að það sé ekki verið að því. Bara innantóm orð. Ég veit um
fullt af stofnunum sem hafa lítið og svo útþynnt hlutverk að rekstur þeirra
á engan veginn rétt á sér. Samt halda þær stofnanir áfram að vera til, fjárlög
eftir fjárlög. Enginn stjórnmálaflokkur talar lengur um „báknið burt.“ Það
er ekki í tísku. Af því leiðir að það er orðin brýn nauðsyn að stofna emb-
ætti umboðsmanns almennings, sem fengi fullt vald til þess að leggja niður
slatta af stofnunum, til að heilbrigðiskerfið fái þá peninga sem það þarf. Ef
við ekki þorum að hagræða í opinberum rekstri, rétt eins og í rekstri heim-
ila eða fyrirtækja, verða allir daga eins og föstudagurinn þrettándi á bráða-
og slysadeild Landspítalans. Viljum við það?
Magnús Magnússon
Nú standa yfir framkvæmdir á hús-
næði Brekkubæjarskóla á Akranesi.
Unnið er að endurnýjun starfs-
mannaaðstöðu og bókasafni skól-
ans. Stefnt er að því að starfs-
mannaaðstaðan verði tilbúin í
næsta mánuði og bókasafnið í upp-
hafi næsta árs, að því er fram kemur
á vef Akraneskaupstaðar.
Framkvæmdirnar á starfsmanna-
aðstöðu snúa að því að gera hana
betri, með betri lýsingu og hljóð-
vist. Skipt verður um gler í þeim
gluggum sem tilheyra þeim rým-
um sem framkvæmdir ná til. Lagn-
ir verða sömuleiðis endurnýjaðar.
Á næsta ári verður því sem áður
var bókasafn skólans og tölvustofa
breytt í kennslustofur í austurhluta
hússins. kgk
Um 40 kíló af kartöflum hurfu úr
kartöflugörðum við Kalmansvík á
Akranesi í síðustu viku. Auður Lín-
dal, starfsmaður Grundaskóla á
Akranesi, vakti máls á þessu á íbúas-
íðu Akurnesinga á Facebook. Kart-
öfluræktunin var hluti af styrktar-
verkefni barna í Grundaskóla til
styrktar börnum í Malaví. Þær voru
settar niður í vor en þegar átti að
taka upp það sem eftir var úr görð-
um nr. 7 og 8 síðastliðinn miðviku-
dag var gripið í tómt. Auður segist í
færslunni vonast til að um misskil-
ing sé að ræða sem hægt sé að finna
út úr og biður þá sem vita eitthvað
um málið að hafa samband.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Framkvæmdir eru hafnar við bygg-
ingu nýrrar kjötvinnslu á Gríms-
stöðum í Reykholtsdal. Bændurnir
Hörður Guðmundsson og Jóhanna
Sjöfn Guðmundsdóttir standa fyrir
framkvædum og hafa stofnað fyrir-
tækið Grímsstaðakjet ehf. Þau ætla
að opna kjötvinnslu í húsinu þeg-
ar framkvæmdum lýkur og öll til-
skilin leyfi verða komin í hús. „Við
ætlum að einblína á vinnslu á kjöti
sem við framleiðum sjálf á búinu;
lambakjöt og folaldakjöt, en auk
þess verður hægt að vinna kjöt hér
frá öðrum búum. Þá stefnum við að
opna hér löggilt matvinnslueldhús
sem við getum þá leigt út til ým-
issar vinnslu, svo sem sultugerð-
ar, kremframleiðslu eða annarrar
vinnslu. Nú setjum við stefnuna á
að ljúka framkvæmdum eins fljótt
og hægt er. Varðandi nánari tíma-
ramma er best að segja sem minnst
enda byggist það á vottun og leyf-
um. Við höfum hins vegar kynnt
teikningar og annað fyrir vænt-
anlegum umsagnar- og leyfisveit-
endum til að standa sem réttast að
þessu. Vonandi getum við svo byrj-
að að vinna folaldakjöti í haust eða
vetur, en stefnum á að húsið verði í
það minnsta komin með öll tilskilin
leyfi til matvælavinnslu eigi síðar en
næsta haust,“ segir Jóhanna Sjöfn í
samtali við Skessuhorn.
Húsið er byggt með þeim hætti að
þremur fjörutíu feta gámum er rað-
að upp hlið við hlið og þak reist yfir.
Húsið er því um 85 fermetrar að
grunnfleti. Jóhanna Sjöfn segir þetta
hagkvæman byggingarmáta. Í húsinu
verður kælir og frystir, eldhús og að-
staða til móttöku á vörum til vinnslu.
mm/ Ljósm. Josefina Morell.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hef-
ur samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir
jörðina Iðunnarstaði í Lundarreykj-
ardal. Þar er gert ráð fyrir að byggja
hótel með viðeigandi veitingaað-
stöðu auk tjaldsvæðis. Stefnt er að
því að byggja hótelið úr forsteypt-
um einingum, gert ráð fyrir þrem-
ur nýjum samtengdum byggingum,
tveimur gistiálmum og byggingu
sem hýsir veitingaaðstöðu. Bygg-
ingar verða tengdar saman. Há-
marksstærð samanlagðra gólfflata
bygginga verður að hámarki 1350
fermetrar. Þá gerir skipulagsáætlun
ráð fyrir 2,6 ha tjaldsvæði. Engar
athugasemdir bárust sveitarfélaginu
á auglýsinga- og athugasemdatíma-
bili vegna deiliskipulagsins og stað-
festi sveitarstjórn það formlega sí-
ðatliðinn fimmtudag.
mm
Lýst eftir horfnum kartöflum
Reisa hús fyrir nýja kjötvinnslu
Horft til norðurs. Iðunnarstaðir í Lundarreykjadal fremst á mynd en fjær er m.a.
Brenna. Ljósm. úr safni: Mats Wibe Lund.
Stefnt að hótelbyggingu á Iðunnarstöðum
Frá framkvæmdum í skólanum.
Ljósm. Akraneskaupstaður.
Framkvæmdir í Brekkubæjarskóla