Skessuhorn - 18.09.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 18. SEpTEMBER 201912
Inga Sæland formaður Flokks fólks-
ins hefur boðað þingsályktunartil-
lögu um að fela félags- og barna-
málaráðherra að leggja fyrir árs-
lok 2020 fram frumvarp til laga um
embætti hagsmunafulltrúa aldraðra.
Þetta er í annað sinn sem þingmað-
urinn boðar þessa tillögu, en hún
hlaut ekki afgreiðslu á síðasta þingi
og er nú lögð fram óbreytt. „Þjón-
usta við aldraða dreifist á ríki, sveit-
arfélög, félagasamtök og einkaað-
ila. Lög og reglur um málaflokk
aldraðra eru flókin, ekki síst á sviði
skatta, almannatrygginga og heil-
brigðismála. Aldraðir eru stór og
fjölbreyttur hópur og misjafnlega
færir um að gæta eigin réttar og
hagsmuna. Að mati flutningsmanna
er því rík þörf á málsvara sem gæt-
ir réttinda og hagsmuna aldraðra
og leiðbeinir þeim um rétt þeirra,“
segir í tilkynningu frá Flokki fólks-
ins.
Hagsmunafulltrúa aldraðra er
samkvæmt tillögunni ætlað að vek-
ja athygli á réttinda- og hagsmu-
namálum aldraðra almennt, jaf-
nt á opinberum vettvangi sem hjá
einkaaðilum, leiðbeina öldruðum
um réttindi sín og bregðast við
telji hann að brotið sé á þeim.
„Hagsmunafulltrúa aldraðra ber
að hafa frumkvæðiseftirlit með
persónulegum högum allra eldri
borgara, sérstaklega með tilliti til
að koma í veg fyrir félagslega ein-
angrun, næringarskort og almennt
bágan aðbúnað þeirra. Jafnframt
skal hann gera tillögur um úrbætur
á réttarreglum er varða aldraða og
hafa frumkvæði að stefnumarkandi
umræðu í samfélaginu um málefni
aldraðra.
mm
Utanríkisráðherrar Norðurlanda
og Eystrasaltsríkja funduðu á Hótel
Hamri í Borgarnesi á miðvikudag
og fimmtudag. Það var Guðlaugur
Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
Íslands, sem boðaði til fundanna í
sínum gamla heimabæ, en Ísland
gegnir nú formennsku í utanríkja-
málasamstarfi ríkjanna. Á fundun-
um voru til umræðu öryggis- og
varnarmál, þar með talin netörygg-
ismál, norðurslóðir, málefni hafsins
og loftslagsbreytingar. Alþjóða- og
öryggismál voru rædd með áherslu
á nýjar ógnir, en Eystrasaltsríkin
hafa á undanförnum árum aflað sér
mikillar þekkingar á því sviði. Auk
þess var sérstök umræða um mik-
ilvægi alþjóðalaga og alþjóðastofn-
ana og rætt hvernig styrkja mætti
stöðu réttarríkisins, lýðræðis og
mannréttinda.
Sameiginleg gildi
Í hádeginu á fimmtudag var síðan
boðað til blaðamannafundar þar
sem Guðlaugur Þór sat fyrir svör-
um ásamt Jeppe Kofod, utanríkis-
ráðherra Danmerkur og Ann Linde,
nýskipuðum utanríkisráðherra Sví-
þjóðar. Guðlaugur Þór sagði fyrst
frá fundi norrænu ráðherranna
frá því deginum áður. Sagði hann
Norðurlandaþjóðirnar standa fyr-
ir sameiginleg gildi, styddu fjöl-
þjóðasamvinnu og alþjóðalög en
að sú heimsmynd ætti í auknum
mæli undir högg að sækja. Sagði
hann mikilvægt að hafa rætt þau
mál einnig með ráðherrum Eystra-
saltsríkjanna um kvöldið. Norður-
landaþjóðirnar og Eystrasaltsríkin
sammældust um að vinna saman að
áskorunum í umhverfismálunum
með sjálfbærni að leiðarljósi, bæði á
norðurslóðum sem og annars stað-
ar. „Þá munu þjóðirnar vinna sam-
an á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna og öðrum alþjóðavettvangi að
því að standa vörð um norræn gildi
og styrkja stöðu réttarríkisins, lýð-
ræðis og mannréttinda. Þetta kann
að hljóma mjög metnaðarfullt en
við þurfum að vera metnaðarfull
og vinna saman til að takast á við
þær áskoranir sem framundan eru,“
sagði Guðlaugur Þór.
Sameiginleg yfirlýsing
um loftslagsaðgerðir
Jeppe Kofod, utanríkisráðherra
Danmerkur, tók undir með Guð-
laugi og setti baráttuna gegn lofts-
lagsvánni aukinheldur á oddinn í
upphafserindi sínu. „Við búum í
þeim hluta heimsins þar sem nátt-
úran er viðkvæm, sjórinn og um-
hverfið allt. Við munum upp-
lifa skelfilegar afleiðingar ef við
bregðumst ekki tímanlega við. Þess
vegna er ég ánægður með að við
höfum kallað sérstaklega eftir því
að ríki standi við skuldbindingar
sínar samkvæmt parísarsamkomu-
laginu. Framundan 23. september
er loftslagsráðstefna Sameinuðu
þjóðanna í New York. Þar verðum
við að senda sterk skilaboð frá okk-
ar heimshluta um að við ætlum að
vera í framvarðasveitinni og rækja
þær skyldur sem við tókum á okkur
í parís,“ sagði Jeppe.
Ann Linde, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, tók undir með Jeppe
og kvaðst ánægð með að Norður-
landaþjóðirnar og Eystrasaltsríki
hafi sent frá sér sameiginlega yfir-
lýsingu um loftslagsaðgerðir í að-
draganda loftslagsráðstefnunn-
ar. Þá lýsti hún jafnframt ánægju
sinni með samstarf Norðurlanda-
þjóðanna, sagði það órjúfanlegan
þátt af stefnu Svía á sviði utanrík-
is- og öryggismála. „Við höfum átt
opnar samræður um þær áskoranir
sem lýðræði og alþjóðalög standa
frammi fyrir, bæði á heimsvísu og
innan Evrópu. Þessi málefni munu
hafa áhrif á Norðurlandaþjóðirnar
og Eystrasaltsríkin,“ sagði Ann.
Deila á upplýsingum
Að framsögum loknum var Jeppe
spurður sérstaklega út í netörygg-
ismál og hvernig hann sæi Norð-
urlöndin vinna saman á þeim vett-
vangi. Sagði hann netógnir eitt-
hvað sem allir ættu að taka mjög al-
varlega og nefndi að í Danmörku
hafi um nokkurt skeið verið starf-
rækt miðstöð netöryggismála. „Það
er stórt þjóðaröryggismál að gæta
þess að við séum varin fyrir netárás-
um, því þær eru árásir á mikilvæga
innviði,“ sagði Jeppe. „Á þessu sviði
þurfa Norðurlanda- og Eystrasalts-
þjóðirnar að skiptast á upplýsing-
um. Við öfum orðið fyrir árásum og
þurfum að finna leiðir til að verj-
ast þeim, koma í veg fyrir þær og
læra hvert af öðru í þeim efnum til
að geta varið okkur sjálf. Ég held
að við séum öll sammála um að við
þurfum að efla netöryggi okkar.
Við erum minni ríki sem stöndum
frammi fyrir sambærilegum ógnum
og getum lært mikið hvert af öðr-
um.“ Spurður hvaðan ógnin kæmi
vildi Jeppe ekki nefna nein sér-
stök ríki. Hann sagði hins vegar að
þær alþjóðareglur sem gilda í raun-
heimum giltu í rauninni ekki í net-
heimum, í það minnsta ekki ennþá.
„Þess vegna verðum við að vernda
okkur og vonandi í framtíðinni get-
um við útbúið reglur sem vernda
okkur í netheimum, þannig að við
njótum öll verndar samkvæmt al-
þjóðalögum þar líka,“ sagði Jeppe.
Utanríkisráðherrarnir voru jafn-
framt spurðir út í aukinn áhuga og
umsvif Kínverja á Norðurslóðum.
Sagði Ann aukinn áhuga á norður-
heimskautinu hafa verið eitt af aðal
umræðuefnum fundanna. „Að okk-
ar mati verður að vera skýr norð-
urslóðastefna á grunni alþjóða-
laga,“ sagði Ann og Guðlaugur
Þór lagði áherslu á að norðurslóðir
yrðu áfram lágspennusvæði og að
sjálfbærni yrði höfð að leiðarljósi
í málefnum norðurslóða, ekki að-
eins umhverfisleg sjálfbærni heldur
efnahagsleg og samfélagsleg. kgk
Leggja til að stofnað verði embætti hagsmunafulltrúa aldraðra
Inga Sæland formaður Flokks fólksins.
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkja.
Ljósm. Stjórnarráðið/ Sigurjón Ragnar.
Utanríkisráðherrar funduðu í Borgarnesi
F.v. Ann Linde, utanríkisráðherra Svíþjóðar, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands og Jeppe Kofod, utanríkis-
ráðherra Danmerkur.
Guðlaugur Þór svarar spurningum á
blaðamannafundinum. Ann Linde slær á létta strengi.
Guðlaugur Þór og Jeppe Kofod.