Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2019, Síða 4

Læknablaðið - jan. 2019, Síða 4
11 Unnur Sverrisdóttir, Freyja Jónsdóttir, Anna Ingibjörg Gunnarsdóttir, Hildur Harðardóttir, Ragnheiður Ingibjörg Bjarnadóttir Notkun lyfja, fæðubótarefna og náttúruvara á meðgöngu Lyfjanotkun á meðgöngu er talin algeng og oft nauðsynleg, þrátt fyrir að skortur sé á rannsóknum og gagnreyndum upplýsingum um notkun lyfja á meðgöngu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að algengt er að konur taki lyf og fæðubótarefni á meðgöngu. Notk- un flestra lyfjanna telst örugg á meðgöngu. Meirihluti barnshafandi kvenna tekur fólínsýru. Barnshafandi konur hafa rökrétt og alla jafna jákvætt viðhorf til lyfjanotkunar á meðgöngu. 19 Atli Steinn Valgarðsson, Tómas Guðbjartsson Loftbrjóst beggja vegna eftir nálastungumeðferð á meðgöngu – sjúkratilfelli Þetta er sjaldgæfur en lífshættulegur fylgikvilla eftir nálastungumeðferð á brjóstholi. Sjúk- lingurinn leitaði snemma á sjúkrahús þar sem skjót greining og meðferð tryggðu að móður og barni farnaðist vel. Tilfellið er áminning um þá fylgikvilla sem hlotist geta af nálastung- um og mikilvægi þess að upplýsa sjúklingina um þá. 4 LÆKNAblaðið 2019/105 F R Æ Ð I G R E I N A R 1. tölublað ● 105. árgangur ● 2019 7 Laufey Tryggvadóttir Krabbamein, áfengi og samfélagsleg ábyrgð Mörgum brá við niðurstöður rannsóknar í Lancet í sum- ar. Þar sagði að þótt hófleg neysla (undir einu glasi á dag) geti lækkað áhættu á blóð- þurrð í hjarta fylgi neyslunni aukin áhætta á krabbamein- um. Áfengi getur verið hættu- legt og goðsögnin um að hóf- lega drukkið vín bæti heilsuna riðar til falls. 9 Hjalti Már Björnsson Þráhyggjusál í lösk- uðum líkama? Undanfarna áratugi hef ég haft það á tilfinningunni að öfgar í íþróttaiðkun hafi vax- ið. Þeim fjölgar sem hreyfa sig ekkert og kljást við alvar- legt heilsutjón vegna þess en að sama skapi fjölgar þeim sem stunda of mikla hreyf- ingu sér til tjóns. L E I Ð A R A R Skemmtiferð með öllu tilheyrandi í Ósafirði innst við Patreksfjörð, undir Kleifaheiði í Vestfjarðakjördæmi, skammt frá þar sem nú er verið að klára Dýrafjarðargöng. Róman- tísk og óspillt náttúrustemmning sem vitnar um gósentíma og fullveldi Íslands innan seilingar. Klettabelti, kjarr og óvirkjaður foss í frjálsu falli en á þessum tíma hafa senni- lega ekki búið neinar konur fyrir vestan. Talið f.v.: Páll Nikulásson, Kristján Ó. Skagfjörð, Jón Á. Ólafsson, Edvald bakari, Hallgrímur Jónasson, Sigurður Magnús- son læknir og óþekktur maður. Sigurður (1866-1940) sat á Patreksfirði 1899-1923. Sjálfsævisaga hans kom út 1985 og heitir einfaldlega Æviminningar læknis, þar er rakin mjög mögnuð saga af heilsufari, mannameinum, launakröfum og tíðaranda um aldamótin þarsíðustu. Ljósmyndari: Pétur A. Ólafsson (1870- 1949) athafnamaður á Vatneyri við Patreks- fjörð tók þessa mynd árið 1910. Myndin er varðveitt í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem er eitt albesta safn í heimi og birt með leyfi þess. Kápumyndin á janúarblaðinu

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.