Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2019, Síða 14

Læknablaðið - jan. 2019, Síða 14
14 LÆKNAblaðið 2019/105 kvæði kvennanna sjálfra (79% lyfjanna). Í 18% tilvika var lyfja- notkun hætt í samráði við lækni og í 3% tilvika var notkun hætt í samráði við lyfjafræðing eða ljósmóður. Notkun fæðubótarefna; vítamína, steinefna og fitusýra Af 213 þátttakendum notuðu 207 konur (97%) vítamín, fitusýrur eða steinefni í rannsókninni. Algengast var notkun fólínsýru, D-vítamíns, omega 3 og fjölvítamíns. Mikill meirihluti (90%) þátt- takenda notaði fólínsýru og á mynd 3 má sjá hvort hún var notuð á fyrsta þriðjungi meðgöngu eða síðar. Marktækur munur var á notkun fólínsýru eftir aldri (p=0,019). Í yngsta aldurshópnum (<21 árs) var hærra hlutfall kvenna sem ekki notuðu fólínsýru (60%) í samanburði við aðra aldurshópa (4-33%). Einnig var marktækur munur (p=0,03) á hópunum eftir búsetu en hlutfallslega bjuggu fleiri þeirra sem ekki notuðu fólínsýru á landsbyggðinni (24%) samanborið við höfuðborgarsvæðið (8%). Ekki fannst marktækur munur á notkun fólínsýru með tilliti til annarra bakgrunnsþátta (p>0,05). Notkun náttúruvara Af 213 þátttakendum notuðu 30 konur (14%) náttúruvöru einhvern tíma á fyrstu 20 vikum meðgöngu. Algengustu vörurnar voru asídófílus (acidophilus) og engiferhylki. Enginn marktækur mun- ur var á þeim sem notuðu náttúruvöru samanborið við þær sem gerðu það ekki með tilliti til bakgrunnsþátta (p>0,05). Upplýsingar og viðhorf þungaðra kvenna til notkunar lyfja og náttúruvara á meðgöngu Í töflu III má sjá hlutfall svara við fullyrðingum sem notaðar voru til að kanna upplýsingar og viðhorf þungaðra kvenna til lyfjanotk- unar á meðgöngu. Bakgrunnsþættir þátttakenda höfðu einungis marktæk áhrif á svör við tveimur fullyrðingum. Konur með há- skólapróf voru marktækt oftar sammála því að hafa hærri þrösk- uld fyrir notkun náttúruvara samanborið við konur með iðn- menntun (p=0,011) eða grunnskólapróf (p=0,011). Konur sem starfa í heilbrigðisþjónustu eða hafa slíka menntun voru einnig mark- tækt oftar ósammála því að ófrískar konur ættu frekar að nota náttúruvörur en hefðbundin lyf samanborið við konur sem ekki hafa slíka menntun eða starfsvettvang (p=0,0002). Bakgrunnsupp- lýsingar höfðu ekki marktæk áhrif á svör þátttakenda við öðrum fullyrðingum. Þegar konurnar voru spurðar hvert þær myndu helst leita til að fá upplýsingar um lyfjanotkun á meðgöngu, gátu þær valið fleiri en einn svarmöguleika. Algengast var að leita á netið (51%), til ljósmóður (44%) og til læknis (19%). Umræða Notkun lyfja, vítamína, steinefna og náttúruvara meðal barnshaf- andi kvenna hefur lítið verið rannsökuð hér á landi og eftir því sem best er vitað er þetta fyrsta rannsóknin sem einnig kannar upplýsingaöflun og viðhorf til notkunarinnar. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að lyfjanotkun á meðgöngu á Íslandi sé algeng en um 90% þátttakenda tóku lyf ein- hvern tíma á fyrstu 20 vikum meðgöngunnar, sem er í samræmi við aðrar sambærilegar rannsóknir.2,5,23 Þrátt fyrir að flest lyfjanna sem notuð voru séu talin örugg á meðgöngu voru nokkur lyf þar á meðal sem ekki er mælt með að nota á meðgöngu. Meðal þeirra voru til dæmis doxýcýklín, naproxen, íbúprófen og acetýlsalisýl- R A N N S Ó K N Mynd 3. Notkun fólínsýru meðal þátttakenda fyrstu 20 vikur meðgöngu. Tafla III. Svör við fullyrðingum til að kanna viðhorf og upplýsingar í tengslum við notkun lyfja og náttúruvara á meðgöngu, hlutfall %. Fullyrðing Sa m m ál a H lu tla us Ó sa m m ál a Á ek ki v ið Þegar læknir ávísar fyrir mig lyfi á meðgöngu veitir hann mér fullnægjandi upplýsingar um lyfið. 81 4 15 - Ég tel mig hafa aðgengi að fullnægjandi upplýsingum um lyfjanotkun á meðgöngu. 94 2 4 - Ég hef stundum áhyggjur af áhrifum lyfjanotkunar minnar á fóstrið. 42 6 41 11 Ég hef almennt hærri þröskuld fyrir notkun lyfja þegar ég ófrísk. 83 6 10 1 Ég hef almennt hærri þröskuld fyrir notkun náttúruvara þegar ég er ófrísk. 53 11 12 24 Þrátt fyrir að ég sé veik og gæti tekið lyf til að bæta líðan er betra fyrir fóstrið að ég sleppi þeim. 60 21 19 - Það er almennt betra fyrir fóstrið að ég noti lyf og að mér batni heldur en að hafa ómeðhöndlaðan sjúkdóm á meðgöngu. 74 24 2 - Ófrískar konur ættu frekar að nota náttúruvörur en hefðbundin lyf. 24 30 46 - Ófrískar konur ættu ekki að nota náttúruvörur án þess að ráðfæra sig við fagaðila fyrst. 87 7 6 - 0 5 10 15 20 25 0 10 20 30 40 50 60 70 80 0 5 10 15 20 25 0 10 20 30 40 50 60 70 800 5 10 15 20 25 0 10 20 30 40 50 60 70 80 0 5 10 15 20 25 0 10 20 30 40 50 60 70 80 Já fyrstu 12 vikur eða lengur Já eftir 12 vikur Nei 4% 10% 86%

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.