Læknablaðið - jan 2019, Qupperneq 20
20 LÆKNAblaðið 2019/105
S J Ú K R A T I L F E L L I
var reynd nálastungumeðferð sem framkvæmd var utan spítala.
Að sögn sjúklingsins var fíngerðum nálum stungið neðan við
herðablöð beggja vegna, aftan við axlir, en einnig í framanverðan
brjóstkassa og neðri útlimi. Strax eftir stungurnar fann hún fyr-
ir mæði og takverk sem ágerðust á næstu klukkustundum. Ein-
kennin héldu áfram að versna og því leitaði hún á bráðamóttöku
um 7 klukkustundum eftir nálastungumeðferðina. Við lungna-
hlustun heyrðust minnkuð öndunarhljóð yfir lungnatoppum
beggja vegna. Öndunartíðni var 26/mín í hvíld (viðmið 12-20/mín),
súrefnismettun 100% án súrefnis, púls mældist 99/mín og blóð-
þrýstingur 112/73 mmHg. Á röntgenmynd af lungum sást nánast
algjört samfall á báðum lungum með ívið stærra loftbrjósti hægra
megin (mynd 1). Blóðrannsóknir voru eðlilegar nema hvít blóð-
korn sem voru hækkuð (15,9 x109/L) og kalíum sem var lækkað (3,0
mmól/L). Skömmu eftir komu var brjóstholskerum komið fyrir í
bæði fleiðruhol sem tengdir voru við sog og þöndust bæði lungu
út við það (mynd 2).
Degi síðar var enginn loftleki í kerunum og því var lokað fyrir
þá og sá vinstri fjarlægður. Hægri kerinn var fjarlægður degi síðar.
Fylgst var áfram með sjúklingnum á hjarta- og lungnaskurðdeild
og hún útskrifuð heim við góða líðan þremur dögum frá komu.
Við eftirlit viku síðar lét hún vel af sér og þess má geta að með-
gangan gekk vel eftir þetta.
Umræða
Hér er lýst sjaldgæfum en lífshættulegum fylgikvilla eftir nála-
stungumeðferð á brjóstholi. Svipuðum tilfellum hefur verið lýst
áður þar sem bæði lungu hafa fallið saman og eru dæmi um að af
því hafi hlotist dauðsföll.4,6,7 Svo fór þó ekki í þessu tilfelli, enda
súrefnismettun í hvíld eðlileg þrátt fyrir mikið samfall á báðum
lungum. Einungis hefur einu öðru tilfelli verið lýst þar sem
þunguð kona fékk loftbrjóst beggja vegna eftir nálastungur, en
þeirri meðferð var beitt vegna astma.7
Nálastungumeðferð nýtur sífellt meiri vinsælda á Vestur-
löndum. Árið 2002 fóru um 1% allra fullorðinna Bandaríkjamanna í
nálastungumeðferð en árið 2012 var hlutfallið um 1,5% fullorðinna
Bandaríkjamanna, eða um 3,5 milljónir manna.8,9 Slíkar tölur eru
ekki til hér á landi, enda nálastungur sem inngrip ekki eftirlits-
skylt. Þó er ljóst að nálastungumeðferð er víða beitt hérlendis við
meðgönguógleði og heilbrigðisstofnanir bjóða til að mynda upp á
slíka meðferð.10 Nálastungur sem meðferð við ógleði er umdeild,
enda hafa niðurstöður verið misvísandi um ágæti hennar borið
saman við hefðbundna lyfjameðferð.11,12 Þannig hafa tvær slembi-
rannsóknir borið saman nálastungumeðferð og svokallaða gervi-
nálastungur og reyndist árangurinn svipaður.12-14
Algengustu fylgikvillar nálastungumeðferðar eru verkir á
stungustað, minniháttar blæðingar og yfirborðssýkingar.15-17
Alvarlegri fylgikvillar nálastungumeðferðar eru mun fátíðari
og hafa stærri rannsóknir sýnt að tíðni loftbrjósts er á bilinu frá
1/50.000 til 125.000 meðferðir.15-18 Tíðni samfalls beggja lungna eft-
ir nálastungumeðferð er hins vegar ekki þekkt en ljóst er að hún
er mun lægri. Sýnt hefur verið fram á að þjálfun þess sem veitir
meðferðina hefur áhrif á tíðni fylgikvilla15,16 en til að bæta öryggi
mætti til dæmis nota nálar með bremsu svo þeim sé ekki stungið
of djúpt.
Lokaorð
Þetta tilfelli er ágætis áminning um þá fylgikvilla sem hlotist geta
af nálastungum og mikilvægi þess að upplýsa sjúklinga um þá
fyrirfram. Hafa verður loftbrjóst í huga sem mismunagreiningu
við bráðum brjóstverk og mæði hjá sjúklingi sem farið hefur í
nálastungumeðferð.
Mynd 2. Röntgenmynd af brjóstholi sem sýnir fullþanin lungu fljótlega eftir ísetningu
brjóstholskera beggja vegna.