Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - jan. 2019, Side 25

Læknablaðið - jan. 2019, Side 25
LÆKNAblaðið 2019/105 25 María Heimisdóttir er afar ánægð með nýja starfsstöð sína hjá Sjúkratryggingum Íslands. Í fyrsta sinn vinnur hún í opnu rými, sem hún segir veita tækifæri til að setja sig hratt inn í málin. Mynd/gag Vill taka þátt í ákvörðunum „Ég heillaðist af því hvernig við tökum ákvarðanir um heilbrigðisþjónustu: Af hverju eru hlutirnir svona en ekki hinseg- in? Hvernig var það nú ákveðið? Þegar ég var komin langleiðina með MBA-námið hugsaði ég: Mig langar í lýðheilsuvísindi. Mig langar að horfa á skipulag, stjórnun og stefnumótun og taka þátt í að skipu- leggja heilbrigðiskerfið. Það gerði ég.“ Eftir MBA-námið frá University of Connecticut árið 1997 með áherslu á stjórnun í heil- brigðisþjónustu, lauk hún doktorsnámi í lýðheilsufræðum (PhD), samhliða vinnu við kennslu og rannsóknir, frá University of Massachusetts árið 2002. Spurð hvort þurfi að hafa læknis- menntunina til að taka þátt í skipulagn- ingu og stjórnun heilbrigðismála segir hún það klárlega styrkleika. „Auðvitað hafa margir stjórnendur í heilbrigðiskerfinu verið farsælir án þess að hafa læknis- menntun. Sumir hafa haft aðra heilbrigð- ismenntun en aðrir hafa hagfræði eða eitt- hvað slíkt. Við þekkjum mörg dæmi um farsæla stjórnendur, en það er allt annað að hafa læknismenntun að baki.“ Læknismenntunin hafi góð áhrif María hefur víðtæka reynslu. Hún var framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspít- alans frá árinu 2010 og hafði áður veitt forstöðu upplýsinga- og hagdeild spítalans árin 2006-2010. Samhliða þessu var hún klínískur lektor við læknadeild Háskóla Íslands. Þar á undan starfaði hún hjá Ís- lenskri erfðagreiningu, meðal annars við undirbúning að miðlægum gagnagrunni á heilbrigðissviði. „Áreiðanlega hefði einhver viðskipta- maður getað leitt fjármál spítalans vel. Ég gerði þetta öðruvísi af því að ég er læknir. Peningarnir eru ekki aðalatriðið í sjálfu sér, sjúklingurinn er aðalatriðið en það þarf að huga að peningnum til þess að geta aðstoðað fleiri sjúklinga. Ég segi stundum að ég hafi ekki áhuga á pening- um nema sem tæki til þess að þjóna sjúk- lingum. Þeir eru einn lykilþátta í að veita heilbrigðisþjónustu,“ segir María. En hvernig finnast henni þá ákvarðanir í heilbrigðiskerfinu? „Ég tel að heilbrigð- iskerfið okkar sé í grundvallaratriðum gott, en við getum gert töluvert mikið betur. Til þess þurfum við að vanda okk- ur við að hafa heildarsýn í stað þess að bregðast við uppákomum hvers dags. Við þurfum öll að vinna að sama marki. Ef sýnina skortir eru allir að gera sitt besta,

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.