Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Jan 2019, Page 29

Læknablaðið - Jan 2019, Page 29
LÆKNAblaðið 2019/105 29 Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands, og fjölskylda hans eru ein af undantekningunum sem sanna regluna. Hjónin eru bæði heilbrigðismenntuð og alin upp á höf- uðborgarsvæðinu en ákváðu að flytja út á land og freista gæf- unnar. Þau mæla heilshugar með því skrefi. „Okkur líkar mjög vel. Ótrúlega mörg tækifæri fylgja því að flytja. Maður fæst við fjölbreyttari verkefni en á heilbrigðisstofn- unum á höfuðborgarsvæðinu. Það er grundvallarmunur á heil- brigðisþjónustunni, sem er hér öll á einum stað. Konan mín vinn- ur til að mynda við blóðskilun en er einnig með stuðningsviðtöl við geðræðum vanda. Menn verða sérfræðingar í breiddinni,“ segir Guðjón sem tók við stöðu forstjóra um áramótin 2016 eftir að hafa starfað sem deildarstjóri við stofnunina frá árinu 2013. Hjónin eiga fjögur börn. „Við vorum að borga himinháa leigu í Reykjavík og vildum prófa, safna peningum og einfalda lífið. Flutningarnir hafa fært okkur gæfu,“ segir Guðjón. Eins og fram kom við ráðningu Guðjóns í forstjórastólinn lauk hann BS-gráðu í hjúkrun frá Háskóla Íslands árið 2006, meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2009 og út- skrifaðist með meistaragráðu frá Boston University School of Public Health á sviði rannsókna tengdum heilbrigðisþjónustu tveimur árum síðar. Flutti með fjölskylduna austur Guðjón Hauksson mælir með landsbyggðinni tryggja að þeir sem eru úti á landi hafi aðgengi að læknanámi,“ segir hann. „Í komandi kjarasamningagerð fyndist mér að Læknafélagið ætti að taka mið af þessari stöðu og gera kjörin betri fyrir þá sem vinna á landsbyggðinni. Eins og stað- an er núna vantar þennan hagræna hvata sem áður var.“ Jón Steinar segir að það þekkist í dreif- býlum löndum að nemar af landsbyggð fái vissan forgang inn í læknisnám. „Það er flókin umræða og margar lagalegar, siðfræðilegar og fleiri hliðar á því. Engu að síður þekkjum við að þeir sem fara til starfa langtímum saman úti á landi eiga mjög oft einhverjar rætur þar.“ Guðjón segir að breytt áhersla myndi auka heilbrigði þjóðarinnar. „Ég held að við náum betri árangri með því að efla heilsugæsluna verulega í staðinn fyrir að einblína svona mikið á sérgreinar. Við erum komin tiltölulega langt þar en það eru svo mikil sóknarfæri í heilsugæslunni til að hafa áhrif á heilsufar þjóðarinnar.“ Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigð- isstofnunar Austurlands, segir auð- veldara að fá þær fagstéttir til starfa á landsbyggðinni sem séu menntaðar þar. Mynd/aðsend

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.