Læknablaðið - jan. 2019, Síða 30
30 LÆKNAblaðið 2019/105
„Læknanemar síðustu ára eru enn betri
námsmenn en áður var. Það sést meðal
annars á því að frammistaða þeirra á
bandaríska Comprehensive Clinical Science
Examination, sem tekið er í lok læknanáms-
ins, hefur batnað og er orðin betri að með-
altali en hjá bandarískum læknanemum.
Meðaleinkunn íslenskra nema er 82 á móti
75 hjá samanburðarhópnum. Þetta er staða
sem ekki má skaða,“ segir Kristján Er-
lendsson, læknir, dósent og kennslustjóri
læknadeildar Háskóla Íslands, spurður um
litla áherslu á landsbyggð og heilsugæslu í
læknanámi hér á landi. Hann er ánægður
með námið hér á landi og segir að nú-
verandi fyrirkomulag hafi verið við lýði í
rúmlega 10 ár. Unnið sé að fjórðu áherslu-
breytingunni á 30 ára ferli hans hjá lækna-
deildinni, allt til að halda í við strauma og
stefnur og framþróun námsins.
„Alheimssamtök um læknanema-
kennslu, World federation for medical
education, stefnir að alþjóðavottun lækna-
náms árið 2023 og við ætlum að standast
þær kröfur,“ segir Kristján. Hætta sé á að
sérreglur fyrir nemendur af landsbyggð-
inni flæki málið og skili ekki þeim árangri
sem vænst sé.
„Að geta skipt um lögheimili til að
komast inn í læknadeild er auðvitað ekki
til umræðu,” segir Kristján og einnig:
„Hvernig á að framfylgja því að nemandi
sem hefur rétta lögheimilisskráningu
standi við sinn hlut og flytji heim eftir 6
ára læknanám, kandídatsár og 6 ára sér-
nám?”
Kristján segir að ein ástæða þess að 5
vikur fari í heilsugæslu og landsbyggð
á sjötta ári hafi verið skortur á vinnuafli
innan heilsugæslunnar. „Þetta fyrirkomu-
lag sem nú er við lýði er byggt á samráði
við þáverandi prófessor í greininni sem
fann meinbugi á því að hafa vikurnar 7
í stað 5 vegna skorts á kennurum. Þá var
skiptingin milli höfuðborgar og lands-
byggðar ákveðin af forsvarsmönnum
heilsugæslunnar,“ segir Kristján.
Við breytingarnar nú sé unnið með þá
nálgun, sem víða sé að vinna sér sess, að
kjarni verði minnkaður og val nemenda
aukið. „Það gefur þeim tækifæri til að
Nokkuð ánægður
með námið eins og það er
Kristján Erlendsson í
Læknagarði þar sem
var líf og fjör þegar
Læknablaðið kíkti við
í desember. Mynd/gag
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
– segir Kristján Erlendsson sem ræðst í fjórðu breytinguna
á 30 ára ferli hjá læknadeildinni