Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - jan. 2019, Side 33

Læknablaðið - jan. 2019, Side 33
LÆKNAblaðið 2019/105 33 skoða þær. Læknirinn er því alltaf að túlka frásagnir og reyna að átta sig á því hvað skiptir máli.“ Hún segir skrifmeðferðir orðnar al- gengar. „Bæði að sjúklingar skrifi um reynslu sína en einnig að læknar skrifi um það sem þeir heyra – til þess að fá útrás. Auðvitað er erfitt að heyra endalausar raunasögur. Það tekur á lækninn og hann getur þá hreinsað hugann.“ Guðrún segir marga lækna skáld- hneigða. Í rithöfundastétt leynist læknar sem skrifi um samskipti við sjúklinga, eins og Ari Jóhannesson og Hlynur Gríms- son sem hafa báðir skrifað læknaskáldsög- ur. „Þessar bækur höfum við kennt, því læknanemar hafa gott af að lesa þær og áhugavert og mikilvægt er að fá sjónarmið lækna fram.“ Fáar kvarta til yfirvalda Guðrún segir að netið hafi fært fólki aukna þekkingu. Það deili frásögnum sín- um og lesi sögur annarra. „Það fær þannig styrk og stuðning,“ segir hún og nefnir til að mynda að fólk með skjaldkirtils- vanda sé með öflugt net sín á milli og deili reynslu sinni. Saga Snædísar Gunnlaugs- dóttur, vandi hennar í samskiptum við lækna og andlát, hafi náð athygli margra. En þótt fjölda sagna um ferðir kvenna til lækna megi finna á netinu, hafi kvart- anir lítt borist til yfirvalda. „Kannski hefur konum hingað til fundist að oft sé framkoma sem þessi ekki nægilega stór- vægilegt mál, en hún hefur mikil áhrif á þær,“ segir hún. Áhugavert sé að sjá nú, þegar kvenlæknum hafi fjölgað, hvort breytingar verði á. „Það eru uppi hugmyndir um að konur séu betri í mannlegum samskiptum en karlar. Þær gefi sér betri tíma með sjúk- lingum, spyrji betur úti í líf og aðstæður og samsami sig frekar sjúklingnum. Þetta viðmót geta bæði karlkyns læknar og strákar í læknanámi tileinkað sér enda er verið að kenna þetta í samskiptafræðinni í læknadeildinni,“ segir hún. Varaliturinn af í viðtali við lækna Guðrún Steinþórsdóttir segir merka rannsókn hafa verið gerða í Noregi þar sem tekin hafi verið djúpviðtöl við 10 konur sem þjást af krónískum vöðvaverkjum. „Þær lýstu neikvæðu viðhorfi og sögðu að ef þær voru vel til hafðar hefði það haft áhrif á mat lækna. Viðkvæðið hafi þá verið: Þú lítur svo vel út, þú getur ekki verið veik. Ef þær voru ungar þóttu þær of ungar til að vera veikar. Væru þær að nálgast miðjan aldur hafi þeim verið bent á að einkennin væru vegna breytingaskeiðsins,“ segir Guðrún og lýsir afleiðingum þessa viðhorfs. „Svo konurnar pössuðu að hafa sig ekki til áður en þær fóru til læknis, voru búnar að skrifa mjög nákvæm- lega niður allt sem þær vildu að kæmi fram í læknaviðtalinu og voru jafnvel búnar að senda lýsingar til læknisins áður“. Guðrún greindi frá þessu í fyrirlestraröð RIKK (Rannsóknastofn- un í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands) í byrjun nóvember undir yfir- skriftinni Kona fer til læknis. Eftir fyr- irlesturinn hafi komið til hennar kona með langvarandi veikindi sem hafi þá dregið upp varalitinn sinn og sagt að hún notaði hann til að styrkja sig á degi hverjum en setti hann aldrei á sig fyrir læknaheimsóknir: „Það er ótrúlegt að þurfa að hugsa til þessa þegar farið er til læknis.“Guðrún Steinþórsdóttir hélt fyrirlesturinn Kona fer til læknis og sameinaði þar samskiptafræði, læknisfræði og bók- menntir. Hér er hún á Kaffitári í Þjóðminjasafninu þar sem hún sagði Læknablaðinu frá. Mynd/gag

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.