Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2019, Síða 35

Læknablaðið - jan. 2019, Síða 35
LÆKNAblaðið 2019/105 35 lýðheilsuskóla Harvard 2010-2011 með sér- staka áherslu á heilsuhegðun. Grunnur forvarnarverkefnisins sigr- aðusykurinn.is er að fólk svari sjö spurn- ingum sem meta hvort einstaklingurinn sé í aukinni áhættu. Sé svo geti hann kynnt sér úrræði í kjölfarið og þar á meðal þessa nýju meðferð til að breyta lífsstílnum. Gagnasöfnun skilar árangri Tryggvi og Sæmundur Oddsson stofnuðu frumkvöðlafyrirtækið SidekickHealth fyrir 5 árum og nú hafa 25.000 einstak- lingar hérlendis og ytra notað lausnir fyrirtækisins. Milljónir heilsutengdra upplýsinga hafa safnast. Segja má að rétt eins og deCODE aflar gagna og rannsakar erfðirnar og sjúkdóma tengdum þeim, nýti Sidekick gögn til að rannsaka lífsstílinn og afleiðingar hans. Félagið er nýbúið að semja við lyfjarisann Pfizer og erlend tryggingafélög hafa sýnt fyrirtækinu áhuga. Með átakinu fá fleiri landsmenn tækifæri til þess að prófa þetta áhugaverða íslenska hugvit. „Við sjáum fólk ná góðum árangri með lausninni. Að meðaltali gerir fólk 8 heilsueflandi æfingar í dag; dag eftir dag í marga mánuði. Að meðaltali eru 80% enn virkir notendur appsins á fjórða mánuði, sem er gott í okkar bransa,“ segir Tryggvi en lausninni er ætlað að taka á offitu, sykursýki og háþrýstingi með því að hvetja til lífsstílsbreytinga. „Með þessu nýja samstarfi við lyfjafyrirtæki færum okkur einnig yfir í aðra sjúkdómaflokka – út fyrir hjarta- og æðasjúkdómasviðið,“ segir Tryggvi. Hann segir að fólk sé allt að þrisvar sinnum líklegra til að ná markmiðum sínum um þyngdartap með því að nota SidekickHealth. „Við sjáum mikil áhrif og höfum unnið með mismunandi sjúk- lingahópum erlendis. Allt frá börnum til aldraðra.“ Tryggvi segir stafræna heilbrigðismeð- ferð sem þessa framtíðarlausn þegar ná þurfi til stórra hópa. „Miðað við að 100.000 manns hér á landi hafi hag af svona með- ferð verðum við að nýta tæknina til að ná utan um hópinn. Við getum ekki sent alla á heilsugæsluna í svona meðferð sem tek- ur marga mánuði,“ segir Tryggvi og vonar að í framtíðinni muni læknar geta ávísað aðgang að lausninni í stað lyfja. Vilja ávísa appi í stað lyfja „Ég ímynda mér að það taki nokkur ár í viðbót þar til kerfið er tilbúið í slíkar breytingar en við sjáum hreyfiseðilinn sem mikilvægt skref í þessa átt, þar sem læknir getur ávísað annarri meðferð en lyfjum. En það sem er öðruvísi hjá okkur er að við tæklum vandann heildstætt og tökum á hreyfingu, næringu og streitu,“ segir Tryggvi. Lausn SidekickHealth heyrir til staf- rænnar heilbrigðismeðferðar (digital ther- apeutics) sem hann segir glænýtt svið sem er skýrt aðgreint frá almennum heilsuöpp- um eins og Fitbit. „Við erum í gagnreyndri meðferð til þess að grípa inn í sjúkdómsferli með sér- stakri áherslu á lífsstílssjúkdóma. Í þeim geira eru nokkur fyrirtæki. Þar höfum við náð að skera okkur úr með nálgun okkar og góðum árangri. Þess vegna erum við núna hratt að ná eyrum stórra lyfjafyrir- tækja og tryggingafélaga erlendis,“ segir hann. „Tæknin gefur okkur ótalmarga snertifleti við fólk. Hún gefur möguleik- ann á að hafa varanleg áhrif. Fólk er með símann á sér öllum stundum,“ segir hann. „Ég sé fyrir mér að við náum að hafa já- kvæð áhrif á fleiri með þessum hætti en við náum inni á spítölunum. Skalinn á þessum langvinnu lífsstílstengdu sjúk- dómum er orðinn svo umfangsmikill að það þarf tækni til að ráðast á vandann.“ Tryggvi Þorgeirsson hefur ásamt Sæmundi Oddssyni unnið að heilsusmáforritinu SidekickHealth frá árinu 2013. Þróunin hefur skilað þeim fjölda samninga, þar á meðal við lyfj- arisann Pfizer. Mynd/aðsend

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.