Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Jan 2019, Page 36

Læknablaðið - Jan 2019, Page 36
36 LÆKNAblaðið 2019/105 Inngangur Læknar (og læknanemar) nota samfélagsmiðla með sama hætti og aðrir, til að deila upplýsingum, hugmyndum, til upplýsinga og til gamans. Hugtakið samfélagsmiðlar er notað yfir netsamskipti. Algengustu netmiðlarnir eru fésbókin (Facebook), Twitter, Lin- kedin og YouTube. Læknafélag Íslands er virkt á fésbókinni. Læknar (og læknanemar) sem bundnir eru ríkri trúnaðar- og þagnarskyldu, þurfa að gæta sín vel á samfélagsmiðlum þar sem þeir hafa tilhneigingu til að gera óljósari mörkin milli vinnu og einkalífs. Siðfræðileg álitamál geta risið upp. Óskynsamleg notk- un samfélagsmiðla getur skapað áhættu sem má forðast með því að beita almennri skynsemi og fylgja þeim leiðbeiningum sem hér eru kynntar. Einnig er skynsamlegt að athuga hvort vinnustaðurinn hafi sett starfsmönnum leiðbeiningar um notkun samfélagsmiðla. Því má aldrei gleyma að færslur á samfélagsmiðlum geta haft afleiðingar fyrir lækna jafnt og aðra, bæði jákvæðar og neikvæð- ar. Vel undirbúin og fagleg þátttaka í samfélagsmiðlum getur ver- ið árangursrík aðferð til að tengjast kollegum og upplýsa sjúklinga. Slíkar færslur geta aukið traust almennings á lækna- stéttinni. Með sama hætti þurfa læknar að vera meðvitaðir um það að framkoma þeirra á samfélagsmiðlum getur einnig haft neikvæð áhrif bæði á þá persónulega og á traust almennings til lækna. Það sem læknir setur á samfélagsmiðla getur haft áhrif á orðspor viðkomandi, bæði meðal sjúklinga og kollega. Hér á eftir eru settar fram nokkrar leiðbeiningarreglur til fé- lagsmanna Læknafélags Íslands um notkun samfélagsmiðla. Þær eru samdar með hliðsjón af sambærilegum reglum fjölmargra annarra læknafélaga. L Ö G F R Æ Ð I 3 0 . P I S T I L L Læknar eru hvattir til að koma ábendingum um efni á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund. Dögg Pálsdóttir lögfræðingur Læknafélags Íslands Dogg@lis.is Samfélagsmiðlar og drög að leiðbeiningum Læknafélags Íslands um notkun þeirra Á þessum vettvangi skrifaði pistlahöfundur um samfélagsmiðla í 3. tbl. 103. árgangs, sjá: laeknabladid.is/tolublod/2016/03/nr/5800. Þar kom fram að á vettvangi LÍ væri verið að vinna að leiðbeiningum um samfélagsmiðla. Á aðalfundi LÍ 8. og 9. nóvember 2018 var lögð fram tillaga stjórnar um Leiðbeiningar Læknafélags Íslands um notkun samfélags- miðla. Í greinargerð með tillögunni segir: Fjölmörg læknafélög hafa samþykkt leiðbeiningar til félagsmanna sinna um notkun samfélagsmiðla. Stjórn LÍ ákvað að gera drög að slíkum leiðbeiningum og leggur hér fram til samþykktar á aðalfundi 2018. Við gerð draganna var horft til leiðbeininga annarra félaga og hliðsjón höfð af þeim. Tillagan var rædd í vinnuhópi sem ákvað að vísa henni til stjórnar til frekari umfjöllunar og vinnu. Hér á eftir er tillagan birt og kynnt félagsmönnum. Allar ábendingar eru vel þegnar og þess óskað að þeim sé komið á framfæri við skrifstofu félagsins.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.