Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Jan 2019, Page 39

Læknablaðið - Jan 2019, Page 39
LÆKNAblaðið 2019/105 39 Inga Sif Ólafsdóttir lyf- og lungnalæknir, kennslustjóri kandídata á Landspítala og formaður nefndar um skipulag námsblokka læknakandídata ingasif@landspitali.is Ég vil leiðrétta ummæli sem fram komu í viðtali við fjóra læknanema í síðasta tölu- blaði Læknablaðsins. Þar er talað um íslenska læknanema sem læra við læknaháskóla í Evrópu og staðhæft að enginn hafi hugað að innkomu þeirra inn í íslenskt heilbrigðiskerfi. Við í nefndinni um skipulag námsblokka á kandídatsárinu höfum lagt á okkur töluverða vinnu við að kynna kandídatsárið á Íslandi fyrir íslenskum læknanemum sem nema við háskóla í Evrópu. Farnar hafa verið tvær ferðir á vegum nefndarinnar, ein árið 2016 til Debrecen í Ungverjalandi sem fjallað var um í Læknablaðinu1 og önnur vorið 2018 þar sem farið var bæði til Martin í Slóvakíu og Debrecen í Ungverjalandi. Árlega eru haldnir nokkrir kynningarfundir fyrir læknanema er- lendis frá sem eru hér í verknámi og þessum kynningum fjarvarpað. Bæði læknaháskólinn í Debrecen (Uni- versity of Debrecen, Faculty of Medicine) og læknaháskólinn í Martin (Jessenius Faculty of Medicine in Martin) eru alþjóðlega viður- kenndir háskólar innan Evrópusambandsins og því er nám þar viðurkennt að fullu sam- kvæmt EES/EU samningum. Nemar frá þess- um skólum þurfa ekki að taka kandídatsár á Íslandi en við teljum að kandídatsárið sé frábær viðbót við þeirra nám. Kandídatsárið eða sambærileg reynsla er nauðsynleg til að geta sótt um þau sérnámsprógrömm sem eru í boði á Íslandi. Nefndarmenn hafa fylgst grannt með þeim fjölda íslenskra læknanema sem nema ytra og gert ráðstafanir til að mæta þeirri fjölgun sem orðið getur á kandídatsárinu. Við höfum áætlað að hægt sé að taka við þeim fjölda án vandkvæða. Í töflunni sést áætluð þróun á næstu árum miðað við þann fjölda sem nú nemur við þessa tvo háskóla (gögn fengin frá formönnum félaga íslenskra læknanema erlendis). Kandídatsárið er starfsnám og því vel til þess fallið að styrkja verðandi lækna fyrir framtíðarstarf. Marklýsingin fyrir kandídatsárið á Íslandi hefur fagmennsku og góða starfshætti lækna í öndvegi. Megin- áherslan er á öryggi sjúklinga og eigin fram- þróun læknakandídatsins, það er hvernig hann getur bætt eigin frammistöðu bæði hvað varðar læknisfræðilega þekkingu, klíníska færni og hæfni til að starfa með öðrum. Við sem stýrum kandídatsárinu hérlendis höfum góða reynslu af þeim kandídötum sem hafa komið hingað heim að loknu námi við erlenda háskóla og viljum óska þess að við- talið í Læknablaðinu rýri ekki þau góðu tengsl sem eru við íslensku læknanemana sem nema utan Íslands því þar er mikill mannauður sem ég tel okkur skylt að hlúa að og styðja. Ég hef kynnt ofangreind atriði fyrir kennsluráði við læknadeild HÍ. Þar sitja fulltrúar læknanema og þar hef ég bent á mikilvægi þess að Félag læknanema við HÍ myndi tengsl milli íslenskra læknanema hér á Fróni og þeirra sem nema í öðrum lönd- um með reglulegum samkomum og öðrum viðburðum. Ég skora á núverandi formann Félags læknanema að láta sitt ekki eftir liggja í þeim málum. Því framtíðin er ykkar allra. Heimild . 1 Ólafsdóttir IS. Kynningarfundur um kandídatsár á Íslandi fyrir læknanema í Debrecen. Læknablaðið 2016; 102: 309. Útskriftarár Læknadeild HÍ Læknahásk. í Debrecen Læknahásk. í Martin Frá öðrum læknahásk. Erlendir ríkisborgarar 2019 46 19 26 12 9 umsóknir 2020 53 12 22 9 ? 2021 50 7 10 9 ? 2022 44 7 26 5 ? 2023+ 50 5 áætlað 25 áætlað Fer fjölgandi ? Athugasemd við viðtal sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins Skömmtun ópíóíða (ATC N02A) Meira en 58.000 einstaklingar fengu ávísað ópíóíðum það sem af er árinu 2018. Í sérlyfjaskrá segir um eitt algengasta verkjalyfið í N02A, Parkódín forte, að ,,tak- marka skal lengd meðferðar við 3 daga og ef virk verkjastilling næst ekki skal ráðleggja sjúklingum að leita álits læknis“. Algengt er að læknar sem sinna öldrunarþjónustu hafi marga einstaklinga í skömmtun á ávana- bindandi lyfjum og er skömmtun algengari meðal eldri einstaklinga, sjá mynd 1. Í Sérlyfjaskrá eru skýrar leið- beiningar um tímalengd notkunar ávanabindandi lyfja. Nýverið skilaði nefnd á vegum velferð- arráðuneytisins af sér skýrslu2 þar sem segir: „Ávanabindandi lyfjum verði almennt ekki ávísað eftir símaviðtal og þau ekki sett í vélskömmtun“. Ennfremur: „Vél- skömmtun bensódíazepína er í flestum tilfellum ósamrýmanleg kröfunni um eins stuttan með- ferðartíma og mögulegt er og ætti því að öllu jöfnu ekki að eiga sér stað nema um sé að ræða meðferð við flogaveiki eða að skömmtunin sé skipulögð til að draga úr eða hætta notkun lyfs.“ Lyfjateymi Embættis landlæknis hvetur lækna til þess að tileinka sér þessar ábendingar velferðarráðu- neytisins. Heimildir 1. Velferðarráðuneytið. Drög að reglugerð um skömmtun lyfja. samradsgatt.island.is/oll- -mal/$Cases/Details/?id=104 - desember 2018. 2. Velferðarráðuneytið. Aðgerðir til að sporna við misnotkun lyfja sem geta valdið ávana og fíkn. stjornarradid.is/lisalib/getfile.aspx?item- id=3d1a8517-5f66-11e8-942c- 005056bc530c - desember 2018. 3. Lyfjagagnagrunnur Embættis landlæknis.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.