Læknablaðið - Jan 2019, Page 46
46 LÆKNAblaðið 2019/105
Xarelto 2,5 mg filmuhúðaðar töflur
Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Tilkynna skal
Lyfjastofnun um allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu. Virkt efni: Rivaroxaban. Ábendingar: • Xarelto,
gefið ásamt asetýlsalisýlsýru einni sér eða asetýlsalisýlsýru auk clopidogrels eða ticlopidíns, er ætlað til fyrirbyggjandi
meðferðar gegn blóðsega af völdum æðakölkunar (atherothrombotic events) hjá fullorðnum sjúklingum eftir brátt
kransæðaheilkenni (acute coronary syndrome) með hækkuðum lífmerkjum (biomarkers) fyrir hjartakvilla. • Xarelto, gefið
ásamt asetýlsalisýlsýru, er ætlað til fyrirbyggjandi meðferðar gegn blóðsega af völdum æðakölkunar (atherothrombotic
events) hjá fullorðnum sjúklingum með kransæðasjúkdóm (coronary artery disease) eða útslagæðakvilla með einkennum
(symptomatic peripheral artery disease) í mikilli hættu á blóðþurrð. Frábendingar: • Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju
hjálparefnanna. • Virk blæðing sem hefur klíníska þýðingu. • Áverki eða ástand þar sem talið er að hætta geti verið á mikilli
blæðingu. Um getur verið að ræða sár sem er eða hefur nýlega verið í meltingarvegi, illkynja æxli þar sem mikil hætta
er á blæðingu, nýlegan áverka á heila eða mænu, nýlega aðgerð á heila, mænu eða auga, nýlega innankúpublæðingu,
þekkta æðahnúta í vélinda eða grun um slíkt, missmíði slag- og bláæðatenginga, æðagúlp, eða mjög afbrigðilegar æðar
í mænu eða heila. • Samhliða meðferð með öðrum segavarnarlyfjum, t.d. ósundurgreindu (unfractionated) heparíni, léttu
(low molecular weight) heparíni (enoxaparin, dalteparin o.s.frv.), heparín afleiðum (t.d. fondaparinux), segavarnarlyfjum
til inntöku (warfarín, dabigatran etexilat, apixaban o.s.frv.), nema við þær sérstöku aðstæður að verið sé að skipta um
blóðþynningarmeðferð eða ef ósundurgreint heparín er gefið í skömmtum sem duga til að viðhalda opnum æðalegg í
miðlægri bláæð eða slagæð. • Meðferð samhliða blóðflöguhemjandi lyfjum við bráðu kransæðaheilkenni hjá sjúklingum
sem áður hafa fengið heilaslag eða skammvinna blóðþurrð í heila (TIA). • Samhliða meðferð við kransæðasjúkdómi eða
útslagæðakvilla með asetýlsalisýlsýru hjá sjúklingum með sögu um heilaslag með blæðingu eða ördrepi (lacunar stroke)
eða einhverja tegund heilaslags innan síðasta mánaðar. • Lifrarsjúkdómur með blóðstorkutruflunum og blæðingarhættu
sem hefur klíníska þýðingu þar með talið hjá sjúklingum með skorpulifur af flokki Child Pugh B og C. • Meðganga og
brjóstagjöf. Heimild: Unnið í nóvember 2018 úr Samantekt á eiginleikum lyfs (ágúst 2018).
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá –
www.serlyfjaskra.is. Vinsamlegast kynnið ykkur fræðsluefni ætlað læknum og sjúklingum áður en meðferð
lyfsins hefst. Afhenda skal öllum sjúklingum öryggiskort áður en meðferð er hafin. Markaðsleyfishafi: Bayer AG.
Umboðsaðili á Íslandi: Icepharma hf. Vinsamlegast hafið samband í síma 5408046 ef óskað er eftir fræðsluefni eða
frekari upplýsingum um lyfið. Afgreiðslumáti og greiðsluþátttaka: R, G. Hámarkssmásöluverð (nóvember 2018):
12.353 kr. (56 stk.), 20.909 kr. (100 stk.), 32.793 kr. (168 stk.).
BAY181101
einhvern lærdóm sem nýtist við verkefni
dagsins? Fyrir utan feginleikann af því
að búa ekki við slíka sjúkdóma og svo
frumstæðar lækningar sá ég að minnsta
kosti tvennt í gögnunum. Annars vegar
bréf sjúklinga sem lýstu krankleika sínum
með eigin orðum og hins vegar sá ég það
sem nú heita árangursvísar og reynt er að
innleiða. Þeir voru skráðir í ársuppgjöri
sjúkrahússins. Í þeim kemur fram grein-
ing og meðferð sem gat verið medisínsk
eða kírúrgísk. Þá kemur síðasti dálkurinn
sem heitir ýmist resultat eða úrslit. Þau
gátu orðið ein af 5 mögulegum og lýsa í
raun örlögum sjúkra allra tíma: Sanatus,
melior, status quo, deterior eða mortuus. –
Heilbrigður, skárri, óbreytt ástand, verri
eða dauður.
Í þessu grúski vakna hugleiðingar um
hversu mikið samfélagið og starf lækn-
isins hefur breyst á rúmri öld. Þá leituðu
sjúklingar ekki læknis nema þeir væru
með einkenni og voru þá oftar en ekki
langt leiddir. Margir voru þegar búnir að
leita skottulækna áður. Hvað úrslit varð-
ar var það sennilega bitamunur en ekki
fjár til hvors var leitað. Fólkið forðaðist
sjúkrahús ekki bara vegna peningaleysis
heldur einnig vegna smithættu og úrræða-
leysis. Að auki áttu margir aldrei aftur-
kvæmt eftir innlagnir á slíkar stofnanir.
Nútímaupplýsingar
Nú á tímum eru til frábærar lausnir á bæði
medisínskum og kírúrgískum vandamál-
um sjúklinga jafnhliða því sem bætt atlæti
og fyrirbyggjandi aðgerðir hafa lagt sitt
af mörkum við upprætingu sjúkdóma.
Samhliða þessum árangri leitar nú stór
hópur einkennalausra til læknis og er þar
í meðferð og áratuga eftirliti vegna hinna
ýmsu vandamála. Þá er hreyfingarleysi og
greitt aðgengi í gnægtarhornið að koma
bæði læknum og sjúklingum í koll. Hvað
illkynja mein varðar er mikils vænst af
blóð- eða erfðavísum svo greina megi
og meðhöndla alvarleg mein tímanlega
en jafnframt láta þau meinlausu í friði.
Krabbameinsgreining kallar ekki endi-
lega á meðhöndlun. Hvað á þá að gera
ef einstaklingur býr við erfðafræðilega
áhættu en hefur ekki staðfest krabba-
mein? Margir gera þó lítinn greinarmun á
áhættunni af því að fá sjúkdóm eða hafa
sjúkdóm. Vitneskja um slíka áhættu getur
sett einstakling og fjölskyldur í ævilangt
umsátur og einhverjir hefðu kosið að hafa
ekki spurt þess sem þeir vildu ekki vita.
Í hvoru tveggja tilvikinu tekur við flókið