Læknablaðið - Jan 2019, Page 50
50 LÆKNAblaðið 2019/105
240 læknar hafa biðlað til heilbrigðisráð-
herra að beita sér fyrir breyttu vinnu-
lagi við ráðningarferla sérfræðilækna á
Landspítala. Læknarnir segja óásættanlegt
að sérfræðilæknar geti ekki vænst þess
að umsóknir þeirra fái faglega umfjöllun
óháðra aðila við ráðningar að Landspítala
háskólasjúkrahúsi.
„Við krefjumst úrbóta nú þegar,“ segir í
yfirlýsingu læknanna. Landspítalinn hefur
gripið til þess ráðs að ráða lækninn sem
kærði. Páll Matthíasson, forstjóri Landspít-
alans, segir á mbl.is að á svo stórum
vinnustað fari einstaka sinum eitthvað úr-
skeiðis og í þessu tilfelli hafi réttu verklagi
ekki verið fylgt. Mannauðsmál séu í hæsta
forgangi í starfseminni.
Undirskriftum læknanna var safnað í
hópi þeirra á Facebook í kjölfar úrskurðar
Kærunefndar jafnréttismála þann 19. sept-
ember 2018. Nefndin tekur að jafnréttislög
hafi verið brotin þegar ráðið var í stöðu
sérfræðings í meltingarlækningum í febrú-
ar á þessu ári.
Tvær umsóknir bárust sem báðar
fengu umfjöllun stöðunefndar læknaráðs
Landspítala og taldi Kærunefndin gengið
framhjá konunni sem sótti um. Hún hafi
staðið mun framar þeim er ráðinn var
hvað varðar alla þá þætti er áskildir voru í
auglýsingu. Landspítalinn taldi hins vegar
að karlinn hefði staðið sig betur í starfsvið-
tali. Kærunefndin telur að nefndin hafi
ekki farið eftir reglum sem um hana gildi.
Læknarnir telja að úrskurður
Kærunefndarinnar hafi „verulega skaðleg
áhrif á ímynd Landspítala
sem háskólasjúkrahúss.“
Hann muni hafa áhrif á
áhuga lækna til að sækja um
störf hér á landi.
Ólöf Sara Árnadóttir,
handa- og skurðlæknir,
afhenti undirskriftirnar
skrifstofustjóra í heilbrigð-
isráðuneytinu sem lofaði að
koma skilaboðunum áleiðis til
forstjóra Landspítala. Hún segir þetta mál
ekki það fyrsta þar sem litið sé framhjá
menntun við ráðningu á spítalann. Þau
mál hafi hins vegar ekki komið til kasta
kærunefndarinnar.
„Sögulega séð virðist heldur halla
á konur. En þetta er ekki kynjabarátta
heldur er Landspítali eini vinnustaðurinn
og því gengur ekki að menntun sé ekki
forsenda starfs,“ segir hún.
„Það er óskiljanlegt hvernig hægt er
að ganga framhjá miklu hæfari umsækj-
enda. Við erum að benda á þetta mál svo
skerpt verði á reglunum og meira gagnsæi
viðhaft,“ segir hún og að hæfni verði að
ráða för við ráðningar.
„Alvarlegast finnst okkur að menntun
virðist ekki metin til starfs,“ segir hún. „Ef
Háskólasjúkrahúsið getur gengið framhjá
hæfari umsækjanda menntunarlega séð
hvar erum við þá stödd?“
Afrit af undirskriftalistanum voru jafn-
framt send forstjóra Landspítala, lækna-
ráði Landspítala og stjórn Læknafélags
Íslands.
Kalla eftir fagmennsku
við ráðningar á
Landspítala
240 læknar kalla eftir úrbótum í ráðningum við
Landspítala. Ólöf Sara Árnadóttir læknir var ein þeirra sem
stóð fyrir undirskriftunum: „Ef Háskólasjúkrahúsið getur
gengið framhjá hæfari umsækjanda menntunarlega séð
hvar erum við þá stödd?“
Sara Ólöf Árnadóttir með
undirskriftalistann í hönd.
Mynd/aðsend
„Sögulega séð virðist
heldur halla á kon-
ur. En þetta er ekki
kynjabarátta heldur
er Landspítalinn eini
vinnustaðurinn og
því gengur ekki að
menntun sé ekki
forsenda starfs.“
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir