Læknablaðið - sep. 2019, Side 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1850
Prentun, bókband
og pökkun á Íslandi
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
16.900,- m. vsk.
Lausasala
1690,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo
sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í
eftirtalda gagnagrunna: Medline (National
Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og
Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSe-
arch), Journal Citation Reports/Science
Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2019/105 363
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
„Af þeim sjúklingum sem við tókum á móti í
sumar hefði um þriðjungur þurft að gista inni
á spítalanum ef ekki væri fyrir hótelið,“ segir
Sólrún Rúnarsdóttir, hótelstjóri Sjúkrahótels
Landspítala. Hótelið lék eitt lykilhlutverka í
sumar þegar ástandið á spítalanum var sem verst
og loka þurfti legurýmum og deildum vegna
sumarfría starfsfólks. Rúmlega 400 sjúklingar auk
aðstandenda hafa gist á sjúkrahótelinu frá því að
það var opnað 6. maí. Hótelið létti ekki aðeins á
flæði innan spítalans heldur dró einnig úr kostn-
aði.
„Það er ódýrara að vera í þessu úrræði en á
legudeild. Ef við getum tekið við fólki af legu-
deildum og komið í veg fyrir að sjúklingar tepp-
ist á bráðamóttöku eða gjörgæslu geta sparast
töluverðir fjármunir, jafnvel hundruð þúsunda í
hverju tilfelli,“ bendir Sólrún á.
„Rannsóknir sýna að ef sjúklingar eru á röngu
þjónustustigi og meðferð þeirra er lokið þar, eins
og til dæmis á bráðamóttöku þar sem ég vann
lengi, eykur það líkur á að eitthvað fari úrskeiðis
í meðferðinni. Ég tel því klárlega að nýja hótelið
komi til með að hjálpa heilbrigðiskerfinu. Það
fækki atvikum og spari fé.“
Stefnt er á að hótelið verði komið í fullan
rekstur í árslok. „Við höfum unnið í skrefum
bæði til að læra og meðan við erum að manna
það,“ segir Sólrún. „Þá hafa ýmsir þættir komið
upp í þessari nýju byggingu og krefjandi að fá
úrbætur á þeim þegar flestir eru í sumarfríi.
Vonandi kemst skriður á það nú að sumarleyfum
loknum.“
Hún nefnir leka á einum stað, rangan vatns-
halla í nokkrum herbergjum, truflanir á rafmagni
og vatni. „Þetta er nýtt hús og ýmislegt sem sást
ekki við fyrstu sýn og þarf að laga eins og gengur
og gerist í nýju húsnæði.“
Bæði hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar vinna
á sjúkrahótelinu. Verkefnin eru margskonar. Þar
eru gefin lyf og settir upp æðaleggir og vökvi í
æð, fylgst með almennu ástandi fólks, skipt um
umbúðir á sárum og fleira. „Fólk þarf að vera
sjálfbjarga með daglega athafnir, geta klætt sig,
farið á salerni og komið sér fram í matsalinn.
Reglugerðin setur okkur skorður þar,“ segir hún
en starfsmenn aðstoði þó eftir þörfum.
Sólrún var meðal annars verkefnastjóri fyrir
Landspítala við uppbyggingu sjúkrahótelsins
þegar hún tók við stjórnartaumunum. „Ef ein-
hver hefði sagt mér fyrir 20 árum að ég ætti
eftir að verða hótelstjóri hefði ég talið að sá hinn
sami væri galinn,” segir Sólrún og hlær þar sem
við sitjum á fjórðu hæð hótelsins í glersal með
glæsilegu útsýni yfir Þingholtin. Hún á nú 20 ára
útskriftarafmæli úr hjúkrunarfræði.
„Ég vann lengi á bráðamóttökunni í Fossvogi
en fór í meistaranám milli barneigna og hef starf-
aði síðastliðin 5 ár sem gæðastjóri á flæðisviðinu
sem bráðamóttakan tilheyrir. Flæðisviðið er stórt
svið. Öldrunarþjónusta og endurhæfing tilheyra
því og lengi vel gerði sjúkrahúsapótekið það
einnig en það er nú komið yfir á aðgerðarsvið,“
segir hún en sló til þegar tækifærið gafst. „Af
hverju ekki? Ég sé ekki eftir því, er með frábært
starfsfólk með mér enda geri ég þetta ekki ein.
Sækja þarf um dvöl á hótelinu rafrænt í heilsugátt
með beiðni í sögu eða með því að hringja í okkur
á sjúkrahótelinu.“
Stefna á fullan rekstur
sjúkrahótelsins um áramót
Jafnvel hundruð þúsunda geta sparast við að útskrifa einstaklinga af Landspítala á
nýja sjúkrahótelið við Hringbraut. Um þriðjungur gesta þess í sumar hefðu annars teppt
spítalann enn frekar. „Þessir fyrstu mánuðir hafa gengið betur en ég þorði að vona,“
segir hótelstjórinn Sólrún Rúnarsdóttir.
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Sólrún Rúnarsdóttir hótelstjóri á Sjúkrahóteli Landspítala við Hr-
ingbraut sem opnaði í maí. Mynd/gag