Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2019, Síða 14

Læknablaðið - sep. 2019, Síða 14
374 LÆKNAblaðið 2019/105 R A N N S Ó K N náð að sýna fram á þessa auknu áhættu þar sem enginn af okk- ar sjúklingum var greindur með ristilkrabbamein. Þar sem við erum ekki með gögn úr ristilspeglunum sjúklinga er óvíst hversu margir sjúklingar hafa verið með ristilsepa sem hafa verið fjar- lægðir og þar með komið í veg fyrir ristilkrabbamein síðar meir. Allt að 20% af PSC-sjúklingum erlendis sem þurfa lifrarígræðslu eru vegna krabbameins í lifur og/eða gallgöngum.22 Í okkar rann- sókn greindust 10% með krabbamein í gallgöngum (milli 5-20% í öðrum rannsóknum)19,23,24 en enginn þeirra gekkst undir lifrar- ígræðslu. Lifun og lifrarígræðsla Lýðgrundaðar rannsóknir hafa sýnt fram á að um 12% PSC-sjúk- linga þurfi lifrarígræðslu.19 Einungis 7% af okkar sjúklingum fengu lifrarígræðslu innan rannsóknartímabilsins en taka þarf tillit til þess að einn þeirra þurfti ígræðslu í tvígang. Einnig er tími frá greiningu að lifrarígræðslu lengri hér en erlendis (67 mánuður hjá okkur á móti 24 mánuðum erlendis).19 Óvíst er hvers vegna færri fá lifrarígræðslu á Íslandi og tími að aðgerð er lengri en hugsanlega er aðgangur að lifrarígræðslu hér erfiðari (lifrar- ígræðslur eru ekki framkvæmdar á Íslandi). Ekki var sérstaklega skráð hversu margir sjúklingar höfðu fengið lifrarbilun og jafnað sig án lifrarígræðslu en enginn var með lifrarbilun í lok tímabils- ins. Þegar lifun er skoðuð í erlendum rannsóknum eru niðurstöð- ur okkar svipaðar. Sænsk lýðgrunduð rannsókn á PSC-sjúklingum sýndi fram á að 13% sjúklingar dóu 48 mánuðum frá greiningu (12% og 51 mánuður í okkar rannsókn).19 Styrkleikar og veikleikar Helstu veikleikar þessarar rannsóknar eru, eins og annarra rann- sókna sem gerðar hafi verið á PSC, að ekki eru til sértækur ICD- kóði fyrir sjúkdóminn. Ekki er hægt að treysta á að sjúklingar sem greinast með PSC hafa fengið greininguna K83.0, „gallrásar- bólga“. Þetta eykur hættu á að missa af sjúklingum með grein- ingu sem getur haft talsverð áhrif á nýgengistölur fyrir svona lítið þýði. Til að vega á móti þessu var gerð ítarleg leit með fleiri en einni aðferð, sem verður að teljast styrkleiki fyrir þessa rannsókn. Einnig geta sjúklingar hafa fengið greiningu utan Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri. Þar sem við skoðuðum öll vefjasýni með Bólgusjúkdómar í meltingarvegi Niðurstöður fyrri rannsókna hafa sýnt að mikill meirihluti sjúk- linga hefur sáraristilbólgu eða Crohns-sjúkdóm þegar þeir grein- ast með PSC.6-10 Hátt hlutfall sjúklinga okkar með PSC var með bólgusjúkdóm í meltingarvegi og er það með því hæsta sem lýst hefur verið og þá sérstaklega varðandi sáraristilbólgu. Erfitt er að túlka hvers vegna, en hugsanlega endurspeglar það gott eftirlit með sjúklingum með sáraristilbólgu eða Crohns-sjúkdóm. Hjá þessum sjúklingahópi er reglulega fylgst með lifrarprófum bæði vegna lyfja meðferðar og vegna hættu á að þróa með sér PSC. Í okkar sjúklingahópi var það yfirleitt hækkun ALP í blóði sem vakti grun um sjúkdóminn og sjúklingur þá sendur í frekari rann- sóknir. Áður en segulómun af gallvegum kom til var yfirleitt gert ERCP til greiningar, en nú á síðari árum byggir greiningin á MRCP og stundum á vefjasýnum úr lifur ef myndgreining nægir ekki.14 Þannig geta sjúklingar greinst með smásæja bólgu (small-duct PSC) sem þarfnast lifrarsýnis til greiningar. Okkar niðurstöður leiddu í ljós að 10% sjúklinga voru með smásæja bólgu, sem er svipað og í öðrum rannsóknum.15 Þær niðurstöður benda til að okkar sjúklingar hafi verið rannsakaðir ítarlega eða að minnsta kosti jafn vel og sjúklingar í öðrum vestrænum löndum. Hins vegar má einnig koma með þá kenningu að einstaklingar sem eru með PSC án bólgusjúkdóms í meltingarvegi séu vangreindir þar sem ekki er reglulega fylgst með lifrarprófum hjá þeim sjúklingahópi fyrir greiningu. Einnig er mögulegt að sá sjúklingahópur sé líklegri til að fá ranga greiningu, til dæmis PBC í stað PSC, þar sem tenging lækna milli PSC og bólgusjúkdóma í meltingarvegi er sterk. Lyfjameðferð Lyfjameðferð með UDCA var mikið rannsökuð sem meðferð við PSC til að bæta horfur sjúklinganna í lok síðustu aldar og fyrsta áratug þessarar og reyndist lækka lifrarpróf.16 Stór rannsókn sýndi hins vegar fram á að PSC-sjúklingar á UDCA-meðferð í háum skömmtum hefðu verri horfur en þeir sem fengu lyfleysu og því hefur dregið mjög úr meðferð með þessu lyfi og henni verið hætt í flestum tilfellum.17 Þessi breytta stefna í lyfjameðferð endurspegl- ast vel í okkar sjúklingahópi þar sem einungis 8 af þeim 19 sjúk- lingum sem fengu UDCA-meðferð voru ennþá á lyfinu árið 2010. Auk þess var einn þeirra með skörunarheilkenni og því einnig með PBC þar sem UDCA er kjörmeðferð.18 Krabbameinsáhætta Aukin hætta á krabbameini, sérstaklega í gallvegum, er vel þekkt hjá PSC-sjúklingum. Helst er um að ræða gallgangakrabbamein en lifrarkrabbamein er einnig þekkt. Líkt og í okkar rannsókn þá hafa fyrri rannsóknir sýnt að sjúklingar með PSC eru allt að 161- 177 sinnum líklegri (162 sinnum líklegri í þessari rannsókn) en al- mennt þýði til að greinast með krabbamein í lifur og/eða gallgöng- um.3,19 Mikilvægt er því að skima reglulega fyrir krabbameini í þessum sjúklingum með árlegum myndrannsóknum.20 Sjúklingar með sáraristilbólgu eru með aukna áhættu fyrir ristilkrabbameini og eldri rannsóknir hafa sýnt fram á að greining PSC-sjúkdóms auki talsvert á þá áhættu.3,21 Nýlegri rannsóknir hafa þó ekki allar náð að sýna fram á þessa auknu áhættu.19 Við höfum ekki heldur Mynd 1. Fjöldi sjúklinga greindir á hverju ári 1992-2012. 9 8 7 6 5 4 3 2 1 0 Greining PSC 19 92 19 93 19 94 19 95 19 96 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.