Læknablaðið - Sep 2019, Page 21
LÆKNAblaðið 2019/105 381
R A N N S Ó K N
Bakgrunnsspurningar: Spurt var um aldur, kyn, tímalengd frá
sjúkdómsgreiningu (≤5 ár, eða >5 ár) og hvort viðkomandi hefði
tekið steralyf undanfarnar fjórar vikur.
Framkvæmd, gagnasöfnun
Samið var við Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri um að
setja kvarðana upp í rafrænt form og útbúa vefslóð fyrir rann-
sóknina. Starfsfólk MS-félags Íslands beindi þeim sem vildu taka
þátt og féllu að skilyrðum úrtaks á vefslóðina þar sem könnunin
var staðsett. Fyrsta spurningin var hvort viðkomandi hefði verið
greindur með MS af lækni, ef svarið við þeirri spurningu var nei
var könnuninni þar með lokið. Næst var spurt hvort þátttakandi
væri orðinn 18 ára, ef svarið við þeirri spurningu var nei var lokað
fyrir frekari þátttöku. Þeir sem uppfylltu fyrrgreind skilyrði gátu
haldið áfram að svara rannsóknarspurningum. Með spurningun-
um var einnig send kynning á rannsókninni þar sem hægt var að
fá nánari upplýsingar um hana og koma ábendingum á framfæri.
Könnunin var fyrst send út 29. október 2018, þann 9. nóvember var
send vinsamleg ítrekun og 15. nóvember lauk könnuninni þegar
vefslóð var lokað.
Greining gagna
Lýsandi og greinandi tölfræði var notuð til að greina gögnin með
SPSS-forritinu, útgáfu 25. Munur á svefngæðum hópa var skoðað-
ur með t-prófum. Eftirfarandi breytur voru skoðaðar: aldurshóp-
ar (≤50 og >50 ára), kyn (karl og kona), tímalengd frá sjúkdóms-
greiningu (≤5 og >5 ár), líkamsþyngdarstuðull (≤35 og >35 kg/m2),
greindir með háþrýsting eða ekki, nota steralyf eða ekki og hvort
viðkomandi hefði tekið inn svefnlyf eða ekki síðastliðinn mánuð.
Þegar tengsl milli svefngæða og annarra þátta voru prófuð var
gerð línuleg aðhvarfsgreining. Stuðst var við BioVenn-forritið
við gerð hlutfallslegra Venn-mynda (proportional Venn-diagrams).24
Marktektarmörk við alla útreikninga voru sett við p-gildi ≤0,05.
Vísindasiðanefnd gaf leyfi fyrir rannsókninni: VSN-18-120.
Niðurstöður
Þátttakendur
Alls tóku 234 einstaklingar þátt í rannsókninni, eða 39,4% MS-
greindra á Íslandi, að teknu tilliti til algengis sjúkdómsins og
íbúafjölda.14,15
Meirihluti þátttakenda voru konur (77%) undir fimmtugu
(meðalaldur 47±13 ár, aldursbil 20 til 92 ára), sem voru í ofþyngd
en ekki með offitu (meðal líkamsþyngdarstuðull 27,7±6,8 kg/m2) og
flestir (72%) voru greindir með MS fyrir meira en 5 árum. Tæpur
þriðjungur (29%) tók svefnlyf þrisvar í viku eða oftar, um fimmt-
ungur var með of háan blóðþrýsting eða á meðferð við of háum
blóðþrýstingi (22%) en fáir þátttakendur (4%) höfðu þurft að taka
steralyf undanfarinn mánuð þegar könnunin fór fram.
Svefngæði
Gild svör við PSQI-kvarðanum fengust frá 213 þátttakendum, með-
alskor var 7,79±4,08. Algengi skertra svefngæða, PSQI>5 reyndist
vera 68%, þar af voru 31% með mjög skert svefngæði eða PSQI>10.
Einkenni svefnleysis, kæfisvefns og fótaóeirðar
Í töflu I má sjá algengi einkenna ofangreindra svefnsjúkdóma borið
saman við algengi greiningar af lækni. Miðað við algengi einkenna
virðast svefnsjúkdómarnir kæfisvefn og svefnleysi vera verulega
vangreindir en miðað við 5 greiningarskilmerki fóta óeirðar virðist
vera samræmi milli algengis einkenna og greiningar af lækni. Af
þeim 22 einstaklingum sem sögðust vera greindir með fótaóeirð
af lækni uppfylltu einungis 6 öll 5 greiningarskilmerki fótaóeirðar
og 7 uppfylltu fjögur greiningarskilmerki.
Á mynd 1 sést að 53% þátttakenda (n=188) höfðu einkenni eins
eða fleiri af svefnsjúkdómunum svefnleysi, fótaóeirð (RLS5) og
kæfisvefn. Þar af höfðu 41% einkenni eins af þessum svefnsjúk-
dómum, 9% höfðu einkenni tveggja og 3% höfðu einkenni allra
þessara sjúkdóma.
Algengi svefntruflana vegna salernisferða, verkja, hita og kulda
Í töflu II má sjá að algengast var að verða fyrir svefntruflun vegna
salernisferða (39%) og verkja (37%). Hlutfall þátttakenda (n=217)
sem reyndist hafa eina eða fleiri af ofangreindum svefntruflunum
var 65%. Þar af höfðu 31% eina af þessum svefntruflunum, 24%
Mynd 2. Hlutföll og skörun svefntruflana vegna verkja, salernisferða og svefnleysis-
einkenna. Samtals trufluðu þessir þættir svefn hjá 63,4% þátttakenda (n=216) og hjá
11,6% trufluðu allir þrír þættirnir svefn.
Tafla II. Algengi svefntruflana vegna salernisferða, verkja, hita og kulda.
Svefntruflun: Algengi % (fjöldi/fjöldi svara)
Salernisferðir 38,6 (88/228)
Verkir 36,7 (83/226)
Hiti 19,9 (44/221)
Kuldi 18,2 (40/220)
A 26 12,0%
B 37 17,1%
C 11 5,1%
AB 8 3,7%
AC 22 10,2%
BC 8 3,7%
ABC 25 11,6%
alls 216
Salernisferðir trufla
svefn þrisvar í viku eða
oftar = 37,5%
Verkir trufla svefn
þrisvar í viku eða
oftar = 36,1%
Skor á Svefnleysis-
kvarðann (ISI) ≥15 = 30,6%
11,6%
n=216 svöruðu spurningum um verki og salernisferðir og öllum
spurningum á Svefnleysiskvarðanum (ISI)
3,7%
5,1%
10,2%
12,0%
17,1%
3,7%