Læknablaðið - sep. 2019, Side 26
386 LÆKNAblaðið 2019/105
Y F I R L I T S G R E I N
brot kollagens hraðara vegna aukinnar virkni
próteasa, ekki ósvipað og sést í lungnaþembu.21
Kviðslit eru mjög algeng hjá sjúklingum með
ættgenga bandvefssjúkdóma eins og í heilkenn-
um Marfans (allt að 32%) og Ehlers-Danlos (allt
að 25%).17 Nánustu ættingar sjúklinga sem greinst
hafa með kviðslit eru einnig í aukinni áhættu á
að fá kviðslit, sem bendir til að erfðagalli sé að
hluta til orsakavaldur. Nýleg rannsókn sýndi að
stökkbreytingar í fjórum genum, sem hafa með
kollagensamsetningu og -niðurbrot að gera, voru
algengari í sýnum frá sjúklingum með nára-
kviðslit.22 Loks er talið að aukið álag eins og hjá
íþróttamönnum og þeim sem vinna erfiðisvinnu
auki líkur á nárakviðsliti.23
Klínísk birtingarmynd
Fyrsta einkenni nárahauls er oftast verkjalaus
fyrirferð á nárasvæði. Skyndilegur stingandi
verkur á nárasvæðinu getur þó einnig komið
fyrir og er þá oftast vegna líkamlegrar áreynslu
eða rembings. Seyðingsverkur er þó algengari
og leiðir oft niður í pung eða skapabarma. Oftast
hverfur fyrirferðin þegar sjúklingurinn leggst á
bakið þar sem innihaldið í haulnum rennur aftur
Helstu kennileiti nárans eru sýnd á mynd 1. Á fósturskeiði myndast
náragangurinn (inguinal canal) þegar sáðstrengurinn (funicle) gengur
niður í pung og er hann um 4 cm að lengd.1 Á leið sinni niður í pung
dregur sáðstrengurinn með sér hulu af lífhimnu sem kallast slíðurklakkur
(vaginal process) sem síðan lokast af í pungnum sem vaginalis mem-
brane. Sáðstrengurinn inniheldur sáðrás (vas deferens) og eistnaæðar
(spermatic artery/vein) og er hann umlukinn vöðvaþráðum (cremaster
muscle) frá obliquus internus vöðvanum. Hjá konum liggur hringlaga
sin (round ligament) í stað sáðstrengs í náraganginum. Náragangurinn
afmarkast af innri hringnum (deep inguinal ring) sem er dýpst, efst og
hliðlægt. Í lok gangsins myndast ytri hringurinn (superficial inguinal ring)
ofan við lífbeinið þegar sinafell (aponeurosis) external oblique vöðvans
klofnar í tvö blöð. Milli þeirra gengur sáðstrengurinn út úr náraganginum
niður í pung.16
Framveggur náragangsins er myndaður úr sinafelli external oblique
vöðvans. Nárabandið (inguinal ligament) er þykknun á neðri kanti
sinafells ins en það liggur milli lífbeinsins miðlægt og mjaðmakambsins
hliðlægt. Aftari veggur náragangsins er veikasti hluti nárans en hann er
gerður úr þunnri bandvefshimnu transversalis vöðvans.
Þetta svæði kallast Hasselbachs þríhyrningur og afmarkast hliðlægt
af neðri epigastric æðunum, miðlægt af sinafelli rectus vöðvans og að
neðan af nárabandinu. Neðri epigastric slagæðin greinist út frá external
iliaca, rétt ofan við nárabandið og liggur undir bandvefshimnu transversa-
lis vöðvans miðlægt við innri hringinn.1
Tafla I. Flokkun nárahaula.
Miðlæg
(direct)
nárakviðslit
Útbungun á bandvefshimnu transversalis
vöðvans fyrir innan Hasselbach´s
þríhyrning, sem afmarkast af rectus
vöðvanum miðlægt, neðri epigastric
æðunum hliðlægt og nárabandinu að
neðan.
Hliðlæg
(indirect)
nárakviðslit
Myndast hliðlægt við neðri epigastric
æðarnar og teygir sig út í gegnum innri
hringinn sem hluti af sáðstrengnum og
getur því náð alla leið út í pung.
Læriskviðslit Myndast undir nárabandinu, oftast miðlægt
við femoral bláæðina í lærisgangi (femoral
canal).
Mynd 1. Líffærafræði nárans sýnd að framanverðu eins og við opna aðgerð (A) og aftanverðu eins og við
holsjáraðgerð (B). Hvíti þríhyrningurinn sýnir Hasselbachs þríhyrning á meðan bláu hringirnir sýna hvar
kviðslitin koma út í gegnum kviðvegginn. (Mynd: Fritz H. Berndsen IV.)
Box 2.
Líffærafræði nárans
A
B