Læknablaðið - sep. 2019, Side 30
390 LÆKNAblaðið 2019/105
Y F I R L I T S G R E I N
Langtíma árangur skurðaðgerða
Endurtekin kviðslit
Endurtekin kviðslit eru helsta vandamálið eftir nárakviðslitsað-
gerð en með tilkomu netaðgerða hefur tíðni enduraðgerða lækk-
að úr 16,4% niður í 9%.5,12,52 Árangur mismunandi netaðgerða er
frekar áþekkur en fjöldi slembirannsókna hefur sýnt fram á svip-
aða tíðni endurtekinna kviðslita eftir Lichtenstein- og TEP-aðgerð
(sjá töflu V), eða í kringum 1,2- 2,4%.53
Langvarandi verkir eftir aðgerð
Langvarandi verkir og óþægindi eftir aðgerð er algengt vanda-
mál8,51 og er algengara hjá ungum sjúklingum og sjúklingum sem
eru með mikla verki á nárasvæði fyrir aðgerð.8,51,54 Þessa sjúklinga
þarf að skoða vel og oft er gerð ómun til að útiloka endurtekið
kviðslit. Í töflu VI eru sýndar niðurstöður slembirannsókna á tíðni
langvinna verkja eftir mismunandi nárakviðslitsaðgerðir. Í þeirri
stærstu voru óþægindi til staðar hjá 18,8% sjúklinga 5 árum eftir
Lichtenstein-aðgerð, borið saman við 9,4% sjúklinga eftir TEP-að-
gerð (p<0,001).54 Eftir enduraðgerðir er tíðni langvinnra verkja enn
hærri.
Dofi á aðgerðarsvæði er vel þekktur eftir opnar aðgerðir en
þarfnast yfirleitt ekki sérstakrar meðferðar. Langvarandi verkir
eða brennandi tilfinning benda hins vegar til taugahvotar (neural-
gia) vegna áverka eða klemmu á taug. Stundum er hægt að nota
deyfingu til að greina hvaða taug það er sem veldur óþægindum
og er þá hægt að skera viðkomandi taug í sundur með aðgerð. Í
einstaka tilvikum getur þurft að fjarlægja net ef um langvinna
verki er að ræða.
Bæði í Danmörku og Svíþjóð eru stórir gagnagrunnar þar sem
nær allar nárakviðslitsaðgerðir eru skráðar á landsvísu. Þannig er
hægt að fylgja eftir árangri aðgerðanna og tryggja betur gæði með-
ferðarinnar.5,43 Sambærilegir og enn stærri gagnagrunnar á megin-
landi Evrópu eru Herniamed og European registry of abdominal
wall hernias (EuraHS).55,56 Hérlendis er ekki til miðlægur gagna-
grunnur með nárakviðslitsaðgerðum og ekki hafa birst rann-
sóknir á árangri aðgerðanna á Landspítala eða á einkastofum. Á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi hefur hins vegar verið
starfræktur gagnagrunnur með öllum kviðslitsaðgerðum frá árinu
2004 og hafa niðurstöður úr 485 fyrstu nárakviðslitsaðgerðunum
sýnt að árangur er vel sambærilegur við það sem best gerist er-
lendis.57 Til þess að hægt sé að hefja skráningu á árangri nárakvið-
slitsaðgerða hérlendis með miðlægum gagnagrunni krefst það
þátttöku allra skurðlækna sem framkvæma slíkar aðgerðir. Einnig
er mikil vægt að slíkur gagnagrunnur sé fjármagnaður af hinu op-
inbera þar sem utanumhald krefst mikillar vinnu.
Lokaorð
Nárakviðslit eru algeng vandamál og mikilvægt að rétt sé staðið að
greiningu og meðferð. Flestum með einkennagefandi nárakviðslit
ber að ráðleggja skurðaðgerð og þá sérstaklega konum með læris-
kviðslit og öldruðum þar sem þessir hópar eru í aukinni hættu á
að fá alvarlega fylgikvilla eins og kreppuhaul og garnastíflu.
Inguinal hernia is the most frequently diagnosed hernia and during
their lifetime one third of males are diagnosed with an inguinal
hernia. The age distribution is bimodal with the highest incidence
in childhood and after 50 years of age. Diagnosis is usually set
through clinical examination of a lump in the inguinal region
although some patients can present with intestinal obstruction.
Inguinal hernia repair is the only definitive treatment and is one
of the most common surgical procedures performed. It is usually
performed as an elective procedure in local, spinal or general
anasthesia. The repair constitutes of reinforcing the posterior
wall of the inguinal canal, often using a polypropylene mesh;
either via an open anterior approach or posteriorly from within
the abdomen with laparoscopy. The most common complications
following a hernia repair are recurrent hernia and chronic discom-
fort but recurrence rates have improved with the use of mesh and
laparoscopic techniques. This evidence based review descri-
bes the epidemiology and etiology of inguinal hernia together
with the most common surgical procedures; focusing on recent
innovations.
Inguinal hernia - overview
ENGLISH SUMMARY
1Department of Surgery, Sahlgrenska University Hospital, Gothenborg, Sweden, 2Cardiothoracic Surgery, Landspítali University Hospital, 3 Faculty of Medicine,
University of Iceland, 4Department of Surgery, Health Care institution of West Iceland, Akranesi, Iceland.
Key words: inguinal hernia, chronic pain, recurrence, Lichtenstein, laparoscopy, review.
Correspondence: Marta Rós Berndsen, marta.berndsen@vgregion.se
Barst til blaðsins 2. apríl 2019, samþykkt til birtingar 13. ágúst 2019.
Marta Rós Berndsen1
Tómas Guðbjartsson2,3
Fritz H. Berndsen4