Læknablaðið - sep. 2019, Side 35
LÆKNAblaðið 2019/105 395
Báðar eru þær Elín og Þórdís í krefjandi
starfi eins og læknar þekkja. „Oft er mikill
erill í vinnunni og maður að takast á við
hluti sem geta snert mann mikið og haft
áhrif á andlega líðan,“ segir Þórdís. „Þá er
afar gott að nota hlaup til að kúpla sig frá
því. Að því leyti verður maður háður því
að hlaupa,“ segir hún en þótt hún æfi nú
af kappi fyrir 100 kílómetrana segir hún
átakalaust að leggja hreyfingu um tíma á
hilluna.
Önnur keppir við tíma, hin urðina
„Það kom mér á óvart þegar ég eignaðist
börnin mín hvað var auðvelt að fara frá
því að æfa á hverjum degi í að gera ekki
neitt, fatta þá að ég hafði ekki hreyft mig
í viku. Ég leið ekki fyrir það, þannig að
þetta er mismunandi eftir því hvað hentar
á hverjum tíma. En þeir sem ekki stunda
íþróttir af sama kappi og við líta á þetta
sem fíkn,“ segir hún og brosir.
Elín Edda tekur undir og segir: „Fíknin
hefur fengið slæmt orð á sig, ég myndi
ekki vilja nota það orð um þennan góða
hlut. En ég myndi segja að ég sækist í að
Elín Edda
með hlaðvarp
um hlaupin
Elín Edda Sigurðardóttir
læknir segir að hún hafi
verið hátt í sex vikur að
jafna sig fullkomlega eftir
maraþonið sem hún hljóp
í Hamborg í Þýskalandi í
apríl. Hún hljóp á næst besta
tímanum sem íslensk kona
hefur náð 2:49,00 en Martha
Ernstsdóttir, þjálfari hennar,
hljóp á 2:35,15 í Berlín 20
árum fyrr.
„Ég stefni á maraþon aft-
ur í október eða nóvember
og er enn að leggja niður
hvaða hlaup ég vel, skoða
brautir og veðurfar,“ segir
hún.
Elín og kærasti hennar
Vilhjálmur Þór halda úti
hlaðvarpinu Hlaupalíf sem
finna má til að mynda á
Spotify. „Við verjum svaka-
legum tíma af lífi okkar í
hlaup. Við tölum um hlaup,
lesum um hlaup. Þetta er
lífsstíll okkar,“ segir Elín og
hlær.
Langtímamarkmiðið
hennar er að slá met þjálfara
síns, Mörthu Ernstsdóttur.
„Ég tel það raunsætt ef ég
held áfram á þessari braut.
Svo getur ýmislegt komið
inn í myndina sem breytir
þeirri sýn,“ segir Elín Edda
af raunsæi.
Reykjavíkurmaraþon í ágúst 2018 Mynd XXX