Fréttablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 26
7 litir
Gult • Svart • Dökkblátt • Brúnt
Drappað • Ljósgrátt • Grænt
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Cherry Berry
buxurnar komnar
Kr. 4.990.-
Str. 2-9 (ca 38/40-52) Bandarísk-kúbanska leikkon-an og Íslandsvinurinn Eva Mendes á 46 ára afmæli í dag.
Hún vakti fyrst athygli alheimsins
þegar hún lék á móti Densel Wash-
ington í kvikmyndinni Training
Day árið 2001 en fyrirsætuferillinn
hefur líka verið blómlegur þar sem
Eva hefur setið fyrir hjá Calvin
Klein, Cartier, Reebok, Pantene
og fleirum. Þá hefur hún hannað
eigin fata- og snyrtivörulínur.
Ætla má að Eva eigi ljúfan
afmælisdag í vændum með sínum
heittelskaða, hjartaknúsaranum
Ryan Gosling, og dætrum þeirra
tveimur, en parið dvaldi part úr
sumri á Íslandi árið 2013 þegar
Gosling vann að kvikmyndinni
How To Catch A Monster.
Eva þykir með fegurstu konum
heims og hefur verið örlát á sín
eigin fegurðarráð þegar kemur að
hraustlegu og fallegu útliti.
Fegurðarráð Evu Mendes
Eva er 46 ára og kann ýmis ráð til að
viðhalda unglegu og fögru útliti.
Látum ekki gerræði borgaryfirvalda eyðileggja hann með víðtækum götulokunum
allt árið hvernig sem viðrar, gegn vilja afgerandi meirihluta rekstraraðila og íbúa.
Við viljum vera í miðbænum og halda áfram að þjónusta ykkur.
Án verslunar er ekkert mannlíf.
Við treystum á ykkar stuðning í baráttunni.
Aðgerðarhópurinn Björgum miðbænum.
BORGARBÚAR
Við eigum aðeins
einn Laugaveg og einn miðbæ
Opnum Laugaveginn og Skólavörðustíginn
1. Til að viðhalda teygjanleika
húðar og varna hrukkumyndun
tekur Eva daglega inn omega-3
fitusýrur.
2. Eva elskar kókosolíu og notar
hana á andlit sitt, hár og líkama
til að halda góðum raka og varna
bakteríumyndun.
3. Eva er alltaf með vatnsflösku
meðferðis til að halda húðinni
ferskri og vel nærðri.
4. Dags daglega notar hún lítinn
andlitsfarða til að vera sem
náttúrulegust í útliti og hreinsar
farðann af með blautum þvotta-
poka vættum með kókosolíu.
5. Á nokkurra vikna fresti djúp-
nærir Eva hárið með kókosolíu
sem hún nuddar í hárið. Hún setur
svo plasthettu yfir hárið og sefur
með olíuna í hárinu yfir nótt. Að
morgni skolar hún hárið vel og
útkoman er æðisleg.
6. Þegar Eva var þrettán ára fann
hún fyrst angan af ilmvatninu
Knowing frá Esteé Lauder og
hefur notað það æ síðan.
7. Móðir Evu Mendes kenndi
henni að bera á sig andlitskrem
með strokum upp á við og strá
svolitlu barnapúðri í hárið til að
koma í veg fyrir feitan hársvörð,
sem og hún gerir. Hún kenndi
henni líka að bera krem á oln-
bogana en Eva sér enn eftir því að
hafa ekki gert það.
8. Eva fer í ræktina þrjá til fimm
daga í viku. Þar hleypur hún og
lyftir lóðum.
9. Prótín er uppistaðan í fæðu
Evu Mendes. Hún borðar egg á
ýmsa vegu í morgunmat og á
stærri matmálstímum er salat,
lax, kínóa eða hrísgrjón í uppá-
haldi.
10. Eva er sælgætisgrís en stillir
sætindunum í hóf þar sem þau
eru slæm fyrir húðina. Hún
þakkar heilnæmum lífsstíl og
hreyfingu að hún geti þó leyft sér
sætabrauðið af og til.
Eva ber alltaf á sig
andlitskrem með
strokum upp á við.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R