Fréttablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 46
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg. ehf DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Kolbeins Marteinssonar BAKÞANKAR Auðvelt að versla á byko.is Ertu á leið í framkvæmdir? Framkvæmdaráðgjöf fyrir einstaklinga í samstarfi við Heildstæða hönnun Nýtt Allar nánari upplýsingar og skráning á: www.byko.is/framkvaemdaradgjof 25% afsláttur af öllu harðparketi 25% afsláttur af öllum flísum 20% afsláttur af allri vegg- og loftamálningu 25% afsláttur af öllum Grohe blöndunar- tækjum laugardalsvelli · opið kl. 10-21 öll kvöld Hvað ætlar þú að lesa næst?Fræði fyrir forvitna Njóttu Hjónaband hefur lengi verið talið einn af hornsteinum samfélagsins og rannsókn- ir benda til að það auðgi líf okkar og stuðli að hamingju. Giftir (eða fólk í sambúð) lifa lengur og mæl- ast hamingjusamari. Þrátt fyrir það enda um 33% hjónabanda á Íslandi með skilnaði. Skilnaður var nánast óhugsandi áður en frjálsræðis- og kvenna- bylting sjöunda áratugarins hófst en þá fjölgaði þeim úr 0,7 á hverja 1.000 íbúa árið 1962 í 2,2 árið 1985. Í ljósi þess sem síðar gerðist má vel hugsa sér að fyrir þann tíma hafi þessi svokallaði hornsteinn í raun verið efnahagslegt og samfélags- legt fangelsi fyrir fjöldann allan. Eitt sinn inn, en aldrei út. En af hverju endast sum hjóna- bönd en önnur ekki? Rannsóknir hafa sýnt að hjóna- bönd sem heppnast best eru þau þar sem elsta systkini giftist einstaklingi sem er yngstur í sínum systkinahópi. Slíkt tryggir „eðlilegan“ valdastrúktúr þar sem eldra systkini ræður aðeins meiru, rétt eins og í uppeldinu. Rannsóknir hafa einnig sýnt að það er betra að giftast ekki of snemma því líkur á skilnaði eru miklu meiri ef hjónaband hefst fyrir 25 ára aldur. Það hefur líka jákvæð áhrif að fólk sé á svipuðum aldri. Þá hefur það einnig sýnt sig að þótt vinátta, hlátur, fyrir- gefning, sameiginlegt gildismat og kynlíf skipti miklu máli þá er það traust sem skiptir mestu þegar kemur að heilbrigðu og farsælu hjónabandi. Er það samt ekki ágætis þróun að við skulum velja að fara úr tilfinningasnauðu eða ástlausu sambandi frekar en að hanga með drepleiðinlegum maka af því að allir aðrir í fjölskyldunni létu sig hafa það? Helsta ógn hjónabands- ins á 21. öldinni er samt sívaxandi hópur sem kýs að búa einn með sjálfum sér. Hjón skilja

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.