Fréttablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 42
Síðasta laugardag var undir-lína eins þekktasta tísku-merkis heims, Comme des Garçons, sýnd á tísku-vikunni í París. Línan heitir Noir og er sköpuð af
Kei Ninomiya, en hann fékk lista-
manninn Hrafnhildi Arnardóttur/
Shoplifter til að gera stórfenglega
hárskúlptúra fyrir sýninguna. Lilja
Baldursdóttir, listrænn framleið-
andi hennar, sagði Fréttablaðinu
frá ferlinu.
„Við Hrafnhildur höfum unnið
saman í fjögur ár. Ég sé um að
útfæra verkefnin hennar, allt sem
við kemur samningsatriðum, hug-
verkarétti, teymi, pressu og slíku,
en ég hef verið í þessu starfi í sjö ár
og unnið að verkefnum í mörgum
skapandi geirum. Fyrir þetta verk-
efni fengum við til liðs við okkur
Eddu Guðmundsdóttur stílista, en
þær Hrafnhildur þekkjast vel. Edda
er einstaklega klár stílisti og hefur
unnið í tískugeiranum erlendis
lengi, meðal annars með stjörnum
á borð við Björk, Jonas Brothers,
Bebe Rexha, Cardi B og f leirum,”
segir Lilja.
Gott samstarf
Vinur Hrafnhildar, Yasuhiro Wat-
anabe sem sér um Dover Street
Market í Japan, kynnti hana fyrir
Kei Ninomiya sem er hönnuður
línunnar Noir, fatalínu sem er undir
merkinu Comme des Garçons.
„Hann hafði mikinn áhuga á
að vinna með Hrafnhildi. Kei er
þekktur fyrir stórar og viðamiklar
fatalínur og hefur hann undanfarin
ár verið að vinna með blómalista-
manni að nafni Makoto Azuma
sem hefur búið til blómaskúlptúra á
módelin fyrir tískusýningar Kei. Í ár
vildi Kei fá Hrafnhildi til liðs við sig
og bað hann Hrafnhildi og Makoto
að vinna saman að skúlptúrunum.
Kei var mjög spenntur að vinna með
henni, en við höfum verið að vinna
að þessu verkefni síðastliðna fjóra
mánuði,” segir Lilja.
Hún segir ferlið hafa gengið vel
fyrir sig, en verkefnið var í raun
samstarf þriggja listamanna: Kei,
Hrafnhildar og Makoto.
„Það sem einkenndi samstarfið
var mikið traust og virðing þeirra
á milli. Kei nefndi að undirbún-
ingur fyrir sýningu hefði sjaldan
gengið svona hratt og vel fyrir sig.
Þau voru öll hæstánægð með hvert
annað og samstarfið. Það er búið að
tala mikið um fatalínuna og skúlp-
túrana síðan sýningin var afhjúpuð
á laugardaginn, þar á meðal í Vogue,
Love, Elle og f leiri miðlum, og All-
ure nefndi skúlptúrana sem einn af
bestu hárstílunum á tískuvikunni í
París í ár,” segir hún.
Eru skúlptúrarnir þungir?
„Já, sumir skúlptúrarnir eru þungir.
Shoplifter á
tískuvikunni
í París
Hrafnhildur Arnardóttir/ Shoplifter hann-
aði einstaka hárskúlptúra fyrir eitt stærsta
tískuhús heims. Þeir voru sýndir á tísku-
vikunni í París nú síðasta laugardag.
Teymið hefur unnið að skúlptúrunum í fjóra mánuði. MYND/GETTY IMAGES
Samstarfið milli listamannanna
þriggja gekk gífurlega vel að sögn
Lilju. MYND/GETTY IMAGES
Hrafnhildur Arnardóttir og Edda Guðmundsdóttir máta saman hárskúlptúr á eina fyrirsætuna. MYND/IMAGE AGENCY
Lilja og Edda vinna að undirbúningi sýningarinnar í París um helgina.
Hrafnhildur og blómalistamaðurinn Makoto vinna að skúlptúrunum.
Þeir eru gerðir úr lifandi plöntum
sem voru f luttar inn frá Japan og
notaðar með hárskúlptúrum sem
Hrafnhildur skapaði. Við bjuggum
til ákveðna stalla undir skúlp-
túrana til að mýkja þá á höfðum
módelanna, en það var smákúnst að
festa þá þannig að þeir myndu ekki
detta, sérstaklega þessa sem voru
þyngstir. L'Oreal styrkti okkur, svo
það voru einungis notaðar vörur frá
þeim í skúlptúrana.“
Áhrif kórónaveirunnar
Lilja segir að hátt í 80 manns hafi
verið á staðnum og tekið þátt í sýn-
ingunni.
„Hún var haldin á Hotel Potocki
í París. Það voru tvær æfingar áður
en aðaltískusýningin fór fram. Það
kom í raun ekkert upp á, en það var
mjög gott að hafa æfingarnar, því þá
gátum við séð hvað þurfti að laga.
Stofnandi Comme des Garçons, Rei
Kawakubo og hennar teymi, voru
stödd á æfingunni til að fylgjast
með,“ segir Lilja.
Hún segir kórónaveiruna því
miður hafa sett svip sinn á tísku-
vikuna í ár.
„Það var svolítið sérstakur andi
yfir tískusýningunni í ár út af kórón-
aveirunni. Við fréttum af nokkrum
sýningum og viðburðum sem var
hætt við, og sumir gengu um með
grímur. Allflestir voru samt rólegir
yfir þessu, en fólk heilsast án þess að
snertast, til dæmis með „loftkossum”
sem er reyndar kveðjumáti sem tíðk-
ast í tískuheiminum,“ segir hún.
Hvað er á næstunni hjá ykkur?
„Hrafnhildur verður með stóra
sýningu á Nordatlantens Brygge í
apríl, en annars erum við í fullum
undirbúningi á stóru verkefni með
BIOEFFECT sem við höfum verið að
vinna að síðan í sumar. Hrafnhildur
hefur hannað einstaka vöru fyrir
þá sem kemur út í maí og verður
seld víðsvegar um heiminn. Við
hlökkum mikið til að af hjúpa þá
vöru þegar hún kemur út.”
steingerdur@frettbladid.is
5 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ