Fréttablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 44
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Framlag Íslands til Euro-vision í ár, lagið Think about things með Daða og Gagnamagninu, hefur vakið töluverða athygli, bæði hér á landi og
erlendis, og spá veðbankar íslenska
laginu sigri þegar keppnin fer fram í
Rotterdam í Hollandi dagana tólfta
til sextánda maí. Daði Freyr Péturs-
son samdi sjálfur lagið og textann
en hann segist ekki hafa búist við
þeim viðbrögðum sem lagið hefur
fengið síðustu daga.
„Þetta kom mikið á óvart. Það er
enn þá mikið að hugsa um og þetta
er náttúrulega bara tækifæri sem
ég bjóst ekkert endilega við að fá
nokkurn tímann í lífi mínu. Ég ætla
bara að reyna að spila úr því eins
vel og ég get,“ segir Daði í samtali
við Fréttablaðið. Lagið sjálft samdi
Daði til dóttur sinnar, en hann segir
að atriðið hafi verið í rauninni verið
komið áður en hann samdi lagið.
„Ég veit ekki hversu mörg viðlög
ég prófaði við þetta, hversu margar
mismunandi laglínur ég prófaði,
áður en ég komst loksins að því sem
mig langaði að þetta myndi verða,“
segir Daði en hann segir mikla
pressu hafa verið á að koma með
betra lag en það sem lenti í öðru sæti
í Söngvakeppninni árið 2018. „Mér
finnst þetta bara miklu betra lag.“
Gera ekki ráð fyrir neinu
Aðspurður um hvernig það sé að
vera efstur í veðbönkunum segir
Daði það alls ekki vera leiðinlegt
en hann lýsir því að það hafi komið
honum á óvart. „Nú er bara kom-
inn eldur undir rassinn á okkur að
halda áfram og gera enn þá meira
til þess að komast sem lengst. Svo
kemur meiri athygli á okkar atriði
út af þessu.“ Þá segir hann ekki víst
að staða Íslands hjá veðbönkum
sé vísbending um gengi lagsins í
keppninni þar sem það eru dóm-
arar og fólkið sem kýs sem stjórnar
því í raun.
„Við erum alveg mjög spennt fyrir
því að fara út. Það var alltaf stefnan
að reyna að vinna þetta á Íslandi svo
við gætum farið út, þannig að við
erum bara mjög sátt,“ segir Daði um
hvernig tilfinningin hjá hópnum sé
en bætir við að hópurinn geri þó
ekki ráð fyrir neinu og ætla þau sér
einungis að gera sitt besta á stóra
sviðinu í Rotterdam.
Mikil athygli erlendis
Eins og áður hefur komið fram
hefur lagið, og myndbandið sem
hópurinn gaf út við það, verið mjög
vinsælt, en athygli vakti á dögunum
þegar stórleikarinn Russel Crowe
deildi myndbandinu á Twitter. Í
kjölfarið fóru samsæriskenningar á
loft um stuðning streymisveitunnar
Netflix við Daða. Sjálfur segir Daði
að svo sé ekki en að örfáir taki
slíkum kenningum alvarlega. „Mér
finnst þetta bara skemmtilegt og
þetta eykur bara umfjöllunina um
okkur. Allt sem er skrifað um okkur
núna held ég að sé bara að f leyta
atriðinu áfram.“
Að sögn Daða var lagið búið að
vekja athygli í Svíþjóð og Þýska-
landi áður en aðalkeppnin hófst og
eftir að lagið var valið hafi Bretland
slegist í hópinn. Þá hafi lagið fengið
um 127 þúsund spilanir á streymis-
veitunni Spotify í gær og eru sífellt
f leiri sem fylgjast með þeim á sam-
félagsmiðlum. „Mér datt aldrei í
hug að þessu yrði tekið svona eins
og þetta er búið að vera.“
Litlar breytingar í Rotterdam
Hópurinn vinnur nú að útfærslu
atriðisins í lokakeppninni. Ein-
hverjar breytingar verða á atrið-
inu en þær verða flestar í tengslum
við ljós og myndvinnslu á meðan
litlu verður breytt þegar kemur að
hreyfingum hópsins. „Þetta er allt
einhvern veginn miklu stærra bara,
það er miklu meira sem er hægt að
gera. Við erum bara að skoða þetta
núna,“ segir Daði að lokum.
fanndis@frettabladid.is
Tækifæri sem ég
bjóst ekki við að fá
„Nú er bara kominn eldur undir rassinn á okkur,“ segir Daði um þá
velgengni sem honum og Gagnamagninu er spáð í Eurovision
í maí, en lagið hefur vakið mjög mikla athygli úti um allan heim.
Lagi Daða og Gagnamagnsins er spáð sigri í Eurovision sem fer fram í maí næstkomandi. MYND/KARÍTAS SIGVALDSD.
ALLT SEM ER SKRIFAÐ
UM OKKUR NÚNA
HELD ÉG AÐ SÉ BARA AÐ FLEYTA
ATRIÐINU ÁFRAM.
5 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING á Hringbraut
og hringbraut.is
Fylgstu með!
Dagskráin
á Hringbraut
SÍÐASTA
SJÓNVARPS-
VIÐTALIÐ
Fyrir tæpu ári kom Ragnar Bjarnason
fram í tvöföldum Mannamáls-
þætti á Hringbraut og fór þar
eftirminnilega á kostum í frásögnum af
æsku sinni, uppvexti, ferlinum,
frægðinni, bransanum og gerði
óspart grín að sjálfum sér.
Við sýnum báða þættina í beit
kl. 20:00 í kvöld í minningu
Ragga Bjarna.