Fréttablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 30
Úr myndabók Jónasar Hall- grímssonar, eftir Pál Ísólfsson, er sjaldheyrt, en það er gaman að fá að hlýða á það á þessum tímamótum enda er þáttur Páls í sögu Sinfóníuhljómsveitar- innar stór. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra Hjálmars Freysteinssonar Duggufjöru 4, Akureyri. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem veittu honum og fjölskyldunni aðstoð og stuðning í veikindum hans. Sigríður Jórunn Þórðardóttir Guðbjörg Helga Hjálmarsdóttir Anna Þórunn Hjálmarsdóttir Bergsveinn Þórsson Þórður Örn Hjálmarsson Aldís, Baldur, Birkir, Kári og Sigríður Anna Góður vinur okkar, Ásmundur Ásmundsson Ökrum á Mýrum, Hraunhreppi, andaðist fimmtudaginn 27. febrúar í Brákarhlíð, Borgarnesi. Útförin fer fram laugardaginn 7. mars kl. 14.00 frá Akrakirkju. Öll blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Akrakirkju. Ólöf Sigríður Davíðsdóttir Oddný Þorsteinsdóttir Sigþór Sigurðsson Siggi og Ólöf á Kálfalæk Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Júlíusdóttir er látin. Kristmundur E. Jónsson, dætur og fjölskyldur þeirra. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýjar kveðjur og kærleika við andlát og útför okkar elskulegu Guðfinnu Hrefnu Arnórsdóttur (Guffýjar) Ásklifi 1, Stykkishólmi. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Karvel Hólm Jóhannesson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þorbjörg Ólafsdóttir frá Ísafirði, Grænumörk 3, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi þann 19. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Unnur Ólöf Matthíasdóttir Styrkár Hjálmarsson Benedikt Már Jóhannsson Auður Jóhannsdóttir Björn Bjarnason Ólafur Fannar Jóhannsson Berglind Rós Guðmundsdóttir Styrmir Jóhannsson Kolbrún Ýr Harðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kristján Arnfjörð Guðmundsson áður til heimilis að Brekkubyggð 89, Garðabæ, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 15. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 6. mars kl. 13.00. Jóna G. Gunnarsdóttir Kristjana Kristjánsdóttir Pétur A. Maack Hilmar S. Kristjánsson Josefine L. Kristjánsson Ragnar K. Kristjánsson Helga J. Hallgrímsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Mahler, Páll Ísólfsson og Sibelius eru höf-undar þeirra verka sem f lutt verða á hát íð at ón lei k u m S i n f ó n í u h l j ó m - sveitar Íslands í kvöld. Hin finnska Eva Ollikainen heldur um tónsprotann. „Þetta er afar glæsilegt prógramm,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar- innar, sannfærandi, þegar hún næst í smáviðtal að loknum einum af fundum dagsins. „Hljómsveitin verður stór, stundum krefjast verk þess og þannig er það í Sinfóníu nr. 1 eftir Mahler, þar er bætt við strengjum og hornum. Við erum alltaf með gott fólk á kantinum sem stekkur inn í þegar þörf krefur,“ segir hún og lýsir dagskránni frekar. „Fiðlusnillingurinn Augustin Adelich kemur frá Ítalíu og spilar fiðlukonsert Sibeliusar. Þriðja verkið, Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar, eftir Pál Ísólfs- son, er sjaldheyrt, en það er gaman að fá að hlýða á það á þessum tímamótum enda er þáttur Páls í sögu Sinfóníu- hljómsveitarinnar stór.“ Á laugardögum er Sinfóníuhljóm- sveitin jafnan með opið hús í Norður- ljósasal Hörpu og á laugardaginn verður stundin með afmælisívafi,“ að sögn Láru Sóleyjar. Hún rifjar upp að Sinfónían hafi farið í frækilega tónleikaferð til Bretlands í febrúar. „Það var partur af hátíðahöldunum hjá okkur,“ segir hún og bætir við: „En það er ekki bara Sinfón- íuhljómsveitin sem fagnar stórafmæli á þessu ári, heldur líka Íslenska óperan og Listahátíð í Reykjavík, fyrir utan Þjóð- leikhúsið og Ríkisútvarpið. Við verðum með uppsetningu á Valkyrjunum eftir Wagner í maí, í samstarfi við Listahátíð og Íslensku óperuna og sú uppsetning er líka þáttur í afmælishaldinu.“ Það er á sjötugasta afmælisárinu sem kona er í fyrsta sinn ráðin í stöðu aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Eva Ollikainen, stjórnandi kvöldsins, tekur við því embætti í byrj- un nýs starfsárs. Ég bið Láru Sóleyju að fræða mig um hana. „Eva stjórnaði Sin- fóníunni á einum tónleikum á síðasta starfsári og eitt sinn í Háskólabíói, þann- ig að hún á smá sögu með sveitinni. Hún er búsett í Danmörku, en mun stjórna sveitinni ákveðinn fjölda vikna á næsta starfsári og er líka listrænn stjórnandi, tekur þátt í verkefnavali og fleiru.“ Bjarni Frímann aðstoðarhljómsveit- arstjóri er mikilvægur Sinfóníuhljóm- sveitinni og stýrir sífellt f leiri tónleik- um, að sögn Láru Sóleyjar. „Draumur okkar er að byggja upp áhuga og tæki- færi fyrir fólk að sækja sér þekkingu í hljómsveitarstjórn, það er eitt af mark- miðunum,“ segir hún og upplýsir að Sinfónían sé þessar vikurnar að leggja lokahönd á stefnuskrá til næstu ára. Það sé meðal þess sem hljómsveitin gefi sér í afmælisgjöf. Lára Sóley tók við stöðu fram- kvæmdastjóra sveitarinnar síðasta haust og kveðst kunna vel við sig. „Þetta er afskaplega fjölbreytt starf því það er í mörg horn að líta, en hver einasti dagur er skemmtilegur. Ástríðan er mikil hjá öllum fyrir starfinu sínu, allir leggjast á eitt við að láta hlutina gerast og ganga upp. Það er dýrmætt að vinna í svoleiðis umhverfi.“ gun@frettabladid.is Ástríðan mikil hjá öllum Sjötíu ár eru nú í mars frá því fyrstu tónar Sinfóníuhljómsveitar Íslands voru slegnir opinberlega. Þess er minnst á hátíðatónleikum í Hörpu í kvöld. Uppselt er á þá. „Það er í mörg horn að líta en hver einasti dagur er skemmtilegur,” segir Lára Sóley framkvæmdastjóri. FRÉTTA- BLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Frá fyrstu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Austurbæjarbíói 9. mars 1950. Merkisatburðir 1865 Kirkjan á Möðru- völlum í Hörgárdal brennur. Arngrímur Gíslason list- málari málaði mynd af þessum atburði og telst hún vera fyrsta íslenska at- burðamyndin. 1912 Fiskverkakonur í Hafnarfirði gera verkfall. Er það í annað skipti sem konur fara í verkfall á Íslandi en það fyrsta var árið 1907 þegar sömu konur fóru í dagsverkfall. 1932 Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hefur starf- semi sína. 1933 Nasistaflokkurinn í Þýskalandi fær 44% greiddra atkvæða í þingkosningum. 1938 Aftaka norðanveður gerir og bæjarhús í Húsavík í Norður-Múlasýslu fjúka af grunninum og hafna niðri í fjöru. Fólk sem í húsunum er kemst þó lífs af og má það teljast kraftaverk. 1946 Winston Churchill heldur fræga ræðu þar sem hann nefnir Járntjaldið í fyrsta skipti. 1970 Ísland gerist aðili að Fríverslunarsamtökum Evrópu, EFTA. 5 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.