Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2000, Qupperneq 4

Hugur og hönd - 01.06.2000, Qupperneq 4
Fagurskrifarinn Soffía Arnadóttir Þegar fjallað er um fagra hand- skrift, fagurskrift eða kalligrafíu beinist hugurinn gjarna til íslensku handritanna sem mörg hver voru skrifuð og skreytt af mikilli og að- dáanlegri snilld. Því miður er alltof lítið vitað um sögu skriftar á íslandi á landnáms- öld og mörgum spurningum sem koma í hugann ósvarað. Voru pap- arnir læsir og skrifandi? Voru ein- hverjir landnámsmenn, til dæmis Skjaldarmerki listamannsins. Efni: Bómullarflauel og hrásilki, stafurinn upphleyptur. Kórónan er perlusaum- uð í silkisatín, vatteruð undir. Silki- snúra myndar kantinn, lögð niður all- an hringinn. Saumað með silkigami og klofnum flatsaum í öll homin. I þverböndum em gull og silkibönd skreytt með semelíusteini, náttúm- legum ametystum og perlum. Alagðar gullsnúmr mynda mynstrin. Soffía Ámadóttir. þeir sem komu frá írlandi, læsir og skrifandi? Við fáum varla trú- verðug svör héðan af. Ef skoðuð er skriftin í íslensku Hómilíubókinni í Stokkhólmi sem talin er skrifuð um 1200, vakna margar spurningar um sögu skriftar fram að þeim tíma hér á landi. Vitað er að klerkar héðan fóru til náms við skóla á megin- landinu strax á 11. öld. Þeir hljóta að hafa komið þaðan læsir og skrifandi þó litlum sögum fari af því. Líklega hafa þeir sumir lært að skera fjaðrapenna, útbúa blek og verka skinn þannig að hægt væri að skrifa á það. Björn K. Þórólfsson telur víst að skriftarkunnátta hafi svo að segja orðið samferða kristninni til Is- lands og að klerkar hafi þegar á 11. öld tekið að rita á móðurmáli sínu, það guðsorð sem alþýða þurfti mest á að halda, Faðir vor, trúarjátningu og barnskírnarorð. En ritöld er þó venjulega talin hefjast með skráningu landslaga veturinn 1117-18. En á þeim handritum sem við eigum í dag, til dæmis Stjórn, sem er talin hafa verið skrifuð um miðja 14. öld, má sjá að íslenskir skrifarar hafa staðið jafnfætis bestu skrifurum í Evrópu, og þannig hefur það verið fram á okkar daga. Kostnaðarsamt var að skrifa stór handrit á þeirri tíð og varla nema á færi höfðingja og stór- eignamanna að láta framkvæma slíkt. Mikla sérkunnáttu þurfti til og var þá gjarnan leitað til munka í klaustrum hér á landi, en þeir munu sumir hverjir, eins og munk- ar í klaustrum erlendis, hafa verið eins konar atvinnuskrifarar. Það virðist hafa verið svo að ýmsir íslenskir höfðingjar og efna- menn hafi kunnað að meta fagra rithönd og skreytingar og voru því bestu skrifarar mjög eftirsóttir og í miklum metum. Skrift varð almennari þegar pappír fór að flytjast til landsins en þó varð þess langt að bíða að allur almenningur yrði sæmilega skrif- andi. Listaskrifarar hafa lengi, eins og áður er sagt, verið eftirsóttir „Það er brattgengt til stjamanna". Vatnslitamynd. Gullduft blandað með eggjarauðu og gummi arabicum til að fá roðann í gullið. Síðan pússað með agatsteini til að fá fram glans eins og um blaðgyllingu væri að ræða. Vel skreyttir hástafir frá því um 900. Myndin líkist bóka- skreytingum frá miðöldum. 4 Hugur og hönd 2000

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.