Hugur og hönd - 01.06.2000, Blaðsíða 9
Eldliljan.
Til minningar
um brunann
mikla í Keflavík
30. desember 1934.
Brons og granít.
Verðlaun norskrar æsku til Eli Wiesel, handhafa friðarverðlauna Nobels.
Brons.
skólastjóri Gagnfræðaskólans í
Keflavík. Erlingur leitaði til hans og
fékk leyfi til að nota smíðastofu
skólans eftir að daglegri kennslu var
lokið. I samtali við Rögnvald sagði
hann að Erlingur hefði barist af
festu fyrir þessari hugmynd sinni.
Hann væri sannkallaður eldhugi og
enginn hefði staðist rök hans og eld-
heitan áhuga þegar hann lýsti áætl-
unum sínum. Þegar húsnæðið var
fengið varð hugmyndin að raun-
veruleika, námsaðstaðan fékk nafn-
ið „Baðstofan".
Starfsemin þar hófst og vakti
brátt mikla og verðskuldaða at-
hygli. Auk Erlings leiðbeindu marg-
ir þekktir myndlistamenn þátttak-
endum og Gunnar Dal, sem þá var
kennari við Gagnfræðaskólann í
Keflavík, lagði starfinu lið. Ekki má
gleyma áherslunni á að hver lærði
af öðrum eftir því sem tækifæri
gafst til. Það var í anda þess starfs
sem unnið var í gömlu baðstofun-
um, viðfangsefni og aðstaða var
önnur en þá, þáttur náms og þjálf-
unar eins.
I stuttri blaðagrein er ekki hægt
að greina frá öllu því óeigingjarna
starfi sem Erlingur vann í „Baðstof-
unni". Eins og allir vita er til þekkja
er hann framúrskarandi kennari,
hæfileikaríkur í besta lagi. Hann
hefur þá list fullkomlega á valdi
sínu, sem nauðsynleg er öllum góð-
um kennurum, þ.e. að vekja áhuga
nemenda sinna fyrir viðfangsefn-
inu, kveikja þann neista sem örvar
þá til að leggja sig fram og gera sitt
besta. Ahrif starfsins í „Baðstof-
unni" í Keflavík hafa verið mikil og
varanleg, enn er hún við lýði þó
skipulag sé nokkuð annað en áður.
Hugmynd og framkvæmd Erlings á
þessu sviði gæti sannarlega verið
öðrum byggðarlögum til fyrir-
myndar.
Þegar Erlingur hafði verið kenn-
ari í Keflavík í rúmlega 20 ár fékk
hann orlof frá kennslu árið 1976,
hélt utan til Noregs og nam við
Statens Lærerskole i Forming,
Notodden. Heim kominn hélt hann
áfram kennslustörfum. Hann
kenndi á mörgum kennaranám-
skeiðum í mynd- og handmennt
sem haldin voru á vegum mennta-
málaráðuneytisins og Kennarahá-
skóla Islands. Af öðrum námskeið-
Hugur og hönd 2000 9