Hugur og hönd - 01.06.2000, Qupperneq 10
Fulltrúi á Fiskiþingi. Stál patinerað með ýmsum málmum.
um má nefna að hann kenndi hljóð-
færasmíði árin 1978-1980 á nám-
skeiðum við Tónmenntaskóla
Reykjavíkur. I því sambandi má geta
þess að Erlingur hafði um árabil
numið fiðluleik hjá tónlistarmannin-
um Albert Klahn og smíði strengja-
hljóðfæra var honum ekki ókunnug,
hafði m.a. smíðað eigin fiðlu.
Aftur, 1980-1982, hélt Erlingur til
náms í Noregi, nú við Telemark
Lærerhogskole í Notodden. Þar
lagði hann stund á gerð þrívíðra
mynda með aðaláherslu á „portrett-
forming" eða gerð andlitsmynda.
Að því námi loknu kom hann heim
og kenndi einn vetur við framhalds-
deild í mynd- og handmennt sem
komið hafði verið á fót við Kennara-
háskóla Islands.
Haustið 1983 fluttist Erlingur til
Noregs og hóf kennslustörf í Osló.
Byrjaði við Oslo Lærerhogskole og
hefur frá 1995 haft heila stöðu sem
háskólalektor í lista- og handverks-
deild við I logskolen i Oslo. Einnig
hefur hann sinnt kennslu í hluta-
starfi við Bredtvet framhaldsskól-
ann, Linderud framhaldsskólann,
Bislet hogsskolecenter og
Barneverns-akademiet. Erlingur
hefur verið eftirsóttur kennari í
Noregi og alls staðar getið sér gott
orð sem kennari og listamaður.
Að lokum skal hér lítillega greint
frá listamannsferli hans. Löngu
áður en Erlingur fór til Noregs lagði
hann stund á myndlist, aðallega
höggmyndalist eða gerð þrívíðra
mynda. Verk hans höfðu vakið at-
hygli, til dæmis hafði Keflavíkur-
bær þá þegar eignast verk eftir
hann.
Erlingur var aðstoðarmaður Sig-
Portrett. Gifs.
urjóns Olafssonar myndhöggvara á
árunum 1974-1983. Það má geta
nærri að sá tími var lærdómsríkur
fyrir Erling. Vinátta þeirra var mik-
ilsverð fyrir báða. Þegar afsteypur
hafa verið gerðar af verkum Sigur-
jóns hefur Erlingur, allt til þessa
dags, alfarið annast og haft umsjón
með framkvæmdum.
Eftir að Erlingur flutti til Noregs
gafst honum meiri tími og betri að-
staða til listsköpunar. Hann kom sér
upp vel búnu verkstæði, komst í
kynni við marga virtustu myndlist-
armenn Noregs og varð félagi í
Norsk Billedhuggerforening og
Bildende Kunstnere i Bærum. Er-
lingur hefur tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum myndhöggvara, til
dæmis á hann verk núna, ásamt tíu
norskum myndhöggvurum, á far-
andsýningu sem er á vegum Norsk
Billedhuggerforening. Sýningin
stendur í átján mánuði.
Erlingur undirbýr nú einkasýn-
ingu á verkum sínum, hún verður
nú í vor í Notodden.
Hann hefur fengið mörg verkefni
hjá opinberum aðilum, fyrirtækjum
og einkaaðilum á íslandi og í Noregi
og unnið þar nokkrar samkeppnir
sem efnt hefur verið til.
Erlingur er viðurkenndur sér-
fræðingur í að gera afsteypur af þrí-
víðum myndlistarverkum, ýmsir
myndlistamenn og jafnvel söfn hafa
falið honum að annast slík verk.
10 Hugur og hönd 2000