Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2000, Qupperneq 13

Hugur og hönd - 01.06.2000, Qupperneq 13
annars hvaltennur, hreindýrshorn, vísundahorn og kindahorn í skeft- in, auk þess viðartegundir eins og íbenholt, rósavið, palisander og birkirót. Líklega er Páll sá eini hér á landi sem notar surtarbrand í smíðisgripi sína. Oft notar hann silfur og aðra málma til skreytinga. Stundum skreytir hann skeftin með út- skurði, hugmyndirnar að skreyt- ingunum eru gjarnan frá útskurði og skreytilist víkingatímabilsins. Hnífsblöðin eru einnig mjög mismunandi að lögun, fer það mjög eftir því til hvaða verka þau eru einkum ætluð. Blöðin eru nett og fagurlega formuð. Blaðlengdin má, samkvæmt íslenskum lögum, ekki vera meiri en 12,5 sentimetr- ar. I gamla daga voru hnífsblöðin eldsmíðuð og það verklag þekkist enn í dag. Sum blöð í hnífum Páls eru þannig gerð, en algengara er nú að þau séu úr ryðfríu stáli eða þá svokölluðu Damaskusstáli, oft- ast að formi til eftirlíkingar hnífs- blaða frá járnöld og víkingaöld. Allir hnífar Páls eru hafðir í slíðrum þegar þeir eru ekki í notk- un. Hann býr þau öll til sjálfur úr margs konar skinni og leðri, hefur jafnvel notað sútað fiskroð til skreytinga á slíðrin. Hann sníður efnið í slíðrin, formar það, saumar, litar og skreytir. Til saumanna not- ar hann oftast vaxborinn hörþráð, stundum kemur það fyrir að hann noti aðra þræði, t.d. hrosshár. Töluverður galdur er að ná fullu samræmi milli skeftis, hnífs- blaðs og slíðra, en á það leggur Páll mikla áherslu. Auga leið gefur að það eru ekki fá handtök sem þarf til að fullgera hnífana og slíðrin, og það þarf mikla þjálfun, kunnáttu og reynslu til að gera slíka gripi sem Páll sýndi fréttamanni blaðsins. Aðspurður segist hann aðeins selja hnífa sína í Gallerí Hnoss á Skólavörðustíg í Reykjavík og á Internetinu. Netfang hans er: Handcraft@islandia.is. Kaupend- ur geta einnig fengið sérsmíðaða hnífa hjá Páli, valið sjálfir bæði efni, form og liti. Þórir Sigurðsson Hugur og hönd 2000 13 Hvaltönn og buffalshorn. Seltönn og buffalshorn. Blööin eru handsmíðuð Damaskusblöð. (Móðir og barn). Snákaviður og buffalshorn. Blað úr handsmíðuðu þriggja laga stáli. Surtarbrandur og hvaltönn. Handsmíðað járnaldarblað. (Konuhnífur). hann þá oft til hnífsins í frístund- um og tálgaði smámuni og mynd- ir sem hann svo gaf frá sér. Fyrir nokkrum árum fékk hann áhuga á hnífasmíði, lærði hana að- allega af dönskum hnífasmiðum, en þeir hafa mjög rannsakað sögu hnífasmíði á Norðurlöndum og víðar. Einn þeirra virtustu í grein- inni, Thomas Norregárd, hefur komið til Islands og haldið nám- skeið í eldsmíði og hnífagerð, Páll segist hafa lært mikið af vinnu- brögðum hans og annarra nor- rænna hnífasmiða. Hnífasmíðin fangaði svo huga Páls að hann tók þá ákvörðun að einbeita sér að henni og gera að aðalstarfi sínu. Hann segir að hnífasmíðin hafi gengið yfirleitt mjög vel hjá sér, mikið sé að gera, salan gangi á- gætlega og hann fái vel viðunandi laun fyrir verk sín. A og við vinnuborð hans voru allmargir hnífar, sumir í vinnslu, aðrir fullbúnir. Engir tveir hnífar eru eins. Skeftin eru mjög fjöl- breytileg, bæði hvað varðar efni og form, lögð er áhersla á að þau fari vel í hendi. Páll notar meðal

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.